Átaksverkefni til að efla félagsstarf fullorðinna í samvinnu við sveitarfélögin,
Ferill máls
Öldungaráð
01
2. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 2103259, Aukið félagsstarf fullorðinna árið 2022 vegna COVID-19.
Félags- og vinnumarkaðsráðherra hvetur sveitarfélög til að efla félagsstarf fullorðinna á árinu 2022, með það að markmiði að rjúfa félagslega einangrun sem orðið hefur vegna COVID-19. Eldri borgarar hafa víða þurft að þola skerta samveru og félagslega einangrun vegna samkomutakmarkana og sjálfsskipaðrar sóttkvíar. Af þeim sökum er sérstaklega mikilvægt að leggja aukna áherslu á frístundaiðkun, geðrækt, hreyfingu, tæknilæsi og forvarnir með það að markmiðið að auka lífsgæði og heilbrigði fólks, fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun.
Mál nr. 2103259, tekið til umfjöllunar. Öldungaráð telur mikilvægt að nýta styrkinn til þess að efla félagsstarf eldri borgara í sumar með það að markmiði að rjúfa félagslega einangrun og auka frístundaðiðkun.
Öldungaráð
02
3. fundur
Skýrsla um félags- og heilsueflingu eldri borgara - sumar 2021 lögð fram til kynningar og umfjöllunar. Skýrslan er unnin af sumarstarfsmönnum Garðabæjar sem ráðnir voru í átaksverkefni á vegum félagsmálaráðuneytisins, til að efla félagsstarf fullorðinna. Styrkur til verkefnisins fékkst frá ráðuneytinu og mun skýrslan verða send þangað til kynningar. Í skýrslunni er lagt upp með heilsueflandi heimsóknir til 80 sem voru með stuðningsþjónustu frá Garðabæ. Markmið var að kanna líðan og bjóða fram stuðning til að sækja félagsstarf. Við verkefnið var útbúinn spurningalisti sem unnið var með og má sjá niðurstöður í framlagðri skýrslu.
Mál nr. 2103259 tekið til umfjöllunar í Öldungaráði, skýrsla um félags- og heilsueflingu eldri borgara. Aðilar sammála um mikilvægi þeirra upplýsinga sem fyrir liggja í skýrslunni svo og forvarnargildi þessa verkefnis. Ljóst er að verkefnið fellur vel að og styður við stefnu eldri borgara í Garðabæ. Almenn ánægja var með sumarstarfsfólkið sem vann í verkefnum sem tengjast starfi eldri borgara í Garðabæ.
Öldungaráð
03
2. fundur
Í bréfi frá félagsmálaráðuneyti dags. 4. mars 2021, kemur fram að sveitarfélög geta sótt um styrk í sérstök viðbótarverkefni til að efla félagsstarf fullorðinna. Markmiðið er að rjúfa félagslega einangrun sem orðið hefur vegna COVID-19. Eldri borgarar hafa víða þurft að þola skerta samveru og félagslega einangrun vegna samkomutakmarkana og sjálfsskipaðrar sóttkvíar. Af þeim sökum er sérstaklega mikilvægt að leggja aukna áherslu á frístundaiðkun, geðrækt, hreyfingu, tæknilæsi og forvarnir með það að markmiðið að auka lífsgæði og heilbrigði fólks, fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun.
Verkefnið hefur þegar fengið styrkgreiðslu sem nemur 4,2 mkr.
Tekið er fyrir mál nr. 2103259, átaksverkefni til að efla félagsstarf fullorðinna í samvinnu við sveitarfélögin. Búið er að vinna umsókn sem felur í sér þá þætti sem gerð er krafa um að komi fram. Um er að ræða verkefni undir heitinu Félags- og heilsuefling eldri borgara og er sótt um alls kr. 4.171.684. Öldungaráð fagnar þessu framtaki og góðri vinnu á fjölskyldusviði.
Bæjarráð Garðabæjar
04
16. (1974). fundur
Í tilkynningunni kemur fram að Garðabær hefur fengið úthlutað styrk að fjárhæð kr. 4.209.200 til eflingar á félagsstarfi fullorðinna.
Svanhildur Þengilsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerði nánari grein fyrir hugmyndum um ráðstöfun styrksins.
Fjölskylduráð Garðabæjar
05
5. fundur
Í bréfi frá félagsmálaráðuneyti dags. 4. mars 2021, kemur fram að sveitarfélög geta sótt um styrk í sérstök viðbótarverkefni til að efla félagsstarf fullorðinna. Markmiðið er að rjúfa félagslega einangrun sem orðið hefur vegna COVID-19. Eldri borgarar hafa víða þurft að þola skerta samveru og félagslega einangrun vegna samkomutakmarkana og sjálfsskipaðrar sóttkvíar. Af þeim sökum er sérstaklega mikilvægt að leggja aukna áherslu á frístundaiðkun, geðrækt, hreyfingu, tæknilæsi og forvarnir með það að markmiðið að auka lífsgæði og heilbrigði fólks, fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun.
Uppfylli verkefnið markmiðið um aukið félagsstarf fullorðinna árið 2021 vegna COVID-19 fær Garðabær greiðslu í byrjun júní 2021.
Tekið er fyrir mál nr. 2103259, átaksverkefni til að efla félagsstarf fullorðinna í samvinnu við sveitarfélögin. Búið er að vinna umsókn sem felur í sér þá þætti sem gerð er krafa um að komi fram. Um er að ræða verkefni undir heitinu Félags- og heilsuefling eldri borgara og er sótt um alls kr. 4.171.684. Fjölskylduráð fagnar þessu framtaki og góðri vinnu á fjölskyldusviði.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
06
30. fundur
Lagt fram til kynningar. Garðabær vinnur að því að sækja um fjárframlag í verkefnið. ÍTG hvetur FEBG og FEBÁ til að kynna sér verkefnið vel og þá möguleika sem í því felast.
Bæjarráð Garðabæjar
07
10. (1968). fundur
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í fjölskylduráði, öldungaráði og íþrótta- og tómstundaráði.