2. fundur
2. fundur
Öldungaráð
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
20.05.2021
Kl. -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Anna Guðrún Hugadóttir - aðalmaður
- Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Rúnar Símonarson - aðalmaður
- Ólafur J Proppé - aðalmaður
- Margrét Björnsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2103259
01
Átaksverkefni til að efla félagsstarf fullorðinna í samvinnu við sveitarfélögin,
Í bréfi frá félagsmálaráðuneyti dags. 4. mars 2021, kemur fram að sveitarfélög geta sótt um styrk í sérstök viðbótarverkefni til að efla félagsstarf fullorðinna. Markmiðið er að rjúfa félagslega einangrun sem orðið hefur vegna COVID-19. Eldri borgarar hafa víða þurft að þola skerta samveru og félagslega einangrun vegna samkomutakmarkana og sjálfsskipaðrar sóttkvíar. Af þeim sökum er sérstaklega mikilvægt að leggja aukna áherslu á frístundaiðkun, geðrækt, hreyfingu, tæknilæsi og forvarnir með það að markmiðið að auka lífsgæði og heilbrigði fólks, fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun.
Verkefnið hefur þegar fengið styrkgreiðslu sem nemur 4,2 mkr.
Tekið er fyrir mál nr. 2103259, átaksverkefni til að efla félagsstarf fullorðinna í samvinnu við sveitarfélögin. Búið er að vinna umsókn sem felur í sér þá þætti sem gerð er krafa um að komi fram. Um er að ræða verkefni undir heitinu Félags- og heilsuefling eldri borgara og er sótt um alls kr. 4.171.684. Öldungaráð fagnar þessu framtaki og góðri vinnu á fjölskyldusviði.
Málsnúmer 2105267
02
Beiðni um umsögn vegna umsóknar Ræstitækni um starfsleyfi til að veita stuðnings og stoðþjónustu í sveitarfélaginu sbr. VII kafla laga nr. 40/1991 um stuðningsþjónustu
Lagt fram til kynningar umsókn Ræstitækni um starfsleyfi til að veita stuðnings- og stoðþjónustu í sveitarfélaginu skv. kafla VII laga nr. 40/1991 um stuðningsþjónustu. Fyrir liggur að Gæða- og eftirlitsstofnun hefur aflað upplýsinga um Ræstitækni sbr. meðfylgjandi tp. og mælir með því að starfsleyfið sé veitt.
Tekið er fyrir mál nr. 2105267, umsókn um starfsleyfi Ræstitækni. Öldungaráð gerir ekki athugasemdir við að starfsleyfið verði veitt.
Málsnúmer 2009207
03
Tillögur að nýju skipulagi íþróttastarfs eldri borgara
Lögð eru fram til kynningar drög að samstarfssamningi annars vegar við FEBG og hins vegar við FEBÁ. Samningarnir fela í sér samstarf á milli Garðabæjar og félaganna um heilsu- og líkamsrækt fyrir eldri borgara (60 ára og eldri) í Garðabæ. Umræður um breytingar á fyrirkomulagi heilsu- og líkamsræktar fyrir eldri borgara í Garðabæ hafa farið fram undanfarna mánuði, þar sem meðal annars hefur verið fundað með formönnum félaganna. Í framhaldi voru unnin drög að samstarfssamningi sem hér eru lögð fram.
Tekið er fyrir mál nr. 2009207, samstarfssamningur Garðabæjar við FEGB og FEBÁ. Öldungaráð lýsir yfir ánægju með samstarfssamninginn og innihald hans.
Málsnúmer 2105383
04
Tillaga til þingsályktunar um nýja velferðarstefnu fyrir aldraðra, 720. mál.
Lagt er fram til kynningar bréf alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um nýja velferðarstefnu fyrir aldraða. Leitað er eftir umsögnum um tilöguna fyrir 2. júní n.k. Í þingskjalinu kemur fram að horfið skuli frá einhliða hugmyndafræði um stofnanþjónustu og að leggja skuli áherslu á virk búsetuúrræði og að ný sýn stjórnvalda auðveldi eldra fólki umskipti í húsnæði við hæfi með virkum, þekktum og raunhæfum leiðum.
Mál nr. 2105383, er lagt fram til kynningar fyrir öldungaráð. Aðilar sammála um bjóða þurfi öldruðum upp á notendamiðaða þjónustu, fjölbreytt og virk búsetuúrræði þegar kemur að auknum stuðningi vegna heilsufarsástæðna. Þar spilar saman samþætt þjónusta frá heilbrigðis- og velferðarkerfi.
Málsnúmer 2101415
05
Málefni eldri borgara - stuðningsþjónusta
Svanhildur Þengilsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir kynningu á stuðningsþjónustu Garðabæjar.
Svanhildur Þengilsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Garðabæjar kynnir núverandi stöðu málaflokksins og fer yfir helstu áherslur stuðningsþjónustunnar.