Tillögur að nýju skipulagi íþróttastarfs eldri borgara
Ferill máls
Öldungaráð
01
2. fundur
Lögð eru fram til kynningar drög að samstarfssamningi annars vegar við FEBG og hins vegar við FEBÁ. Samningarnir fela í sér samstarf á milli Garðabæjar og félaganna um heilsu- og líkamsrækt fyrir eldri borgara (60 ára og eldri) í Garðabæ. Umræður um breytingar á fyrirkomulagi heilsu- og líkamsræktar fyrir eldri borgara í Garðabæ hafa farið fram undanfarna mánuði, þar sem meðal annars hefur verið fundað með formönnum félaganna. Í framhaldi voru unnin drög að samstarfssamningi sem hér eru lögð fram.
Tekið er fyrir mál nr. 2009207, samstarfssamningur Garðabæjar við FEGB og FEBÁ. Öldungaráð lýsir yfir ánægju með samstarfssamninginn og innihald hans.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
22. fundur
Umræða um fyrirkomulag á skipulagi á íþróttum aldraðra af hálfu Garðabæjar.
Umræða um fyrirkomulag á skipulagi á íþróttum aldraðra af hálfu Garðabæjar. FEBG hefur haldið úti starfi samhliða þjónustu Jónshúss. Síðustu 6 mánuði hefur ekkert verið í boði hjá Garðabæ vegna Covid 19 og sóttvarna í skólahúsnæði/íþróttahúsum. FEBG merkir mikla eftirspurn meðal sinna félagsmanna eftir tilboðum til eldriborgara.