22. fundur
22. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
25.09.2020
Kl. 15:00 - 16:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - aðalmaður
- Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
- Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
- Guðjón Pétur Lýðsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 2008612
01
Forvarnarvika í Garðabæ 2020
Forvarnavika Garðabæjar verður haldin 7.-14.október nk. Drög að dagskrá eru kynnt ásamt kostnaði við viðburði og forvarnaefni.
Forvarnavika Garðabæjar verður haldin 7.-14.október nk. Drög að dagskrá eru kynnt ásamt kostnaði við viðburði og forvarnaefni.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2009026
02
Götuvaktin forvarnamál
Tillaga er að setja af stað tilraunaverkefni til að draga úr óæskilegri hópamyndun og eftirlitslausum samkomum unglinga í Garðabæ. Verkefnið er samstarfsverkefni félagsmiðstöðvanna sem sjá um að manna bílinn þegar "Götuvaktin" fer af stað. Verkefnið er fjármagnað af fjölskyldusviði og forvarnasjóði ÍTG. Framlag til verkefnisins er kr. 1.000.000,-
ÍTG samþykkir að setja af stað tilraunaverkefni haustið 2020 til að draga úr óæskilegri hópamyndun og eftirlitslausum samkomum unglinga í Garðabæ. Verkefnið er samstarfsverkefni félagsmiðstöðvanna sem sjá um að manna bíl þegar "Götuvaktin" fer af stað. Verkefnið er fjármagnað af fjölskyldusviði og forvarnasjóði ÍTG. Framlag til verkefnisins er kr. 1.000.000,-
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2009055
03
Bæklingur 2.0 um áhrif áfengis á Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Til kynningar hjá ÍTG
ÍTG tekur undir skaðsemi áfengis og hvetur fólk til hófsemi í meðferð þess, einkum í nálægð barna og ungmenna.
Málsnúmer 2009207
04
Umræður um íþróttastarf eldri borgara
Umræða um fyrirkomulag á skipulagi á íþróttum aldraðra af hálfu Garðabæjar.
Umræða um fyrirkomulag á skipulagi á íþróttum aldraðra af hálfu Garðabæjar. FEBG hefur haldið úti starfi samhliða þjónustu Jónshúss. Síðustu 6 mánuði hefur ekkert verið í boði hjá Garðabæ vegna Covid 19 og sóttvarna í skólahúsnæði/íþróttahúsum. FEBG merkir mikla eftirspurn meðal sinna félagsmanna eftir tilboðum til eldriborgara.
Málsnúmer 2002322
05
Staða ungmennaráða í sveitarfélögum
Umfjöllun um skipun fulltrúa í Ungmennaráð sveitarfélaga.
ÍTG fjallaði um skipun fulltrúa í Ungmennaráð sveitarfélaga og reglur um það í ljósi bréfs Umboðsmanns barna. Samband íslenskra sveitarfélaga er með málið í skoðun og mun ÍTG fylgjast með þróun mála. Komið er að endurnýjun í Ungmennaráð Garðabæjar.
Málsnúmer 2009336
06
Velsæld íbúa Garðabæjar til heilsueflingar
Lokaskýrsla um "Velsæld íbúa Garðabæjar"
Lokaskýrsla um "Velsæld íbúa Garðabæjar" var kynnt og farið yfir forsendur og helstu niðurstöður. ÍTG tekur undir þörf á nánari greiningu á stöðu og líðan aldurshópsins 18-44 ára eins og lagt er til í skýrslunni. Einnig að skoðað verði að fá heilsuræktarstöð fyrir almenning í Garðabæ í ljósi þess hve margir af yngri kynslóðinni leita út fyrir bæjarmörkin eftir slíkri þjónustu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2009552
07
Úthlutun úr 19. júní sjóði
Nýjar úthlutunarreglur og hugmyndir að verkefnum
Rætt var um nýjar úthlutunarreglur og áhugaverð verkefni til eflingar fyrirmynda í íþróttum kvenna í Garðabæ. Unnið verður fram að næsta fundi ÍTG að því að móta slíkt verkefni í framhaldi af sumarátakinu sl. sumar sem unnið var með Stjörnunni og UMFÁ.
a. Tilraunaopnun er í gangi í félagsmiðstöðvunum fyrir 16-18 ára eitt kvöld í viku, sem vísir að "ungmennahúsi".
b. Unnið er að því að útbúa kynningarefni um hvatapeninga og nýtingu þeirra. Er ætlunin að hvetja sérstaklega elstu árgangana til að nýta sér hvatapeningana en þar hefur nýtingin verið minni en í yngri árgöngunum.