Forvarnarvika í Garðabæ 2020
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
23. fundur
Stutt grein gerð fyrir framkvæmd forvarnaviku 2020. Nokkur röskun varð á dagskrá vegna samkomutakmarkana. Sumum dagskrárliðum var frestað og verða framkvæmdir þegar hægt verður. Framleiðsla leikins efnis Ungmennaráðs tókst vel, einnig efni ætlað leikskólunum.
ÍTG þakkar öllum sem komu að framkvæmd forvarnavikunnar 2020. Nokkur röskun varð á dagskrá vegna samkomutakmarkana. Sumum dagskrárliðum var frestað og verða framkvæmdir þegar hægt verður. Framleiðsla leikins efnis Ungmennaráðs tókst sérlega vel, einnig efni ætlað leikskólunum. Fram kom ánægja fulltrúa Ungmennaráðs að fá að taka svona viðamikið verkefni að sér og að geta tengt efnið við sinn eigin reynsluheim.
Leikskólanefnd Garðabæjar
02
18. fundur
Greint var frá fræðsluefni sem unnið var fyrir leikskólastigið í tilefni af forvarnarviku. Leikskólanefnd lýsir ánægju með gerð efnisins.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
22. fundur
Forvarnavika Garðabæjar verður haldin 7.-14.október nk. Drög að dagskrá eru kynnt ásamt kostnaði við viðburði og forvarnaefni.
Forvarnavika Garðabæjar verður haldin 7.-14.október nk. Drög að dagskrá eru kynnt ásamt kostnaði við viðburði og forvarnaefni.
Fylgiskjöl
Leikskólanefnd Garðabæjar
04
16. fundur
Fjallað var um áhersluþætti forvarnarviku og leggur leikskólanefnd áherslu á mikilvægi þess að byrja forvarnir í leikskólum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
9. fundur
Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur sagði frá fyrirhugaðri forvarnarviku 7.- 14. október 2020. Yfirskrift vikunnar verður „Að standa með sjálfum sér“.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
06
22. fundur
Kári Jónsson forvarnarfulltrúi kom til fundarins og sagði frá fyrirhugaðri forvarnarviku 7.- 14. október 2020. Yfirskrift vikunnar verður „Að standa með sjálfum sér“.