Beint í efni

23. fundur

23.10.2020
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

23. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

23.10.2020

Kl. 15:00 - 16:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
  • Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
  • Guðjón Pétur Lýðsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Gestir fundarins voru forstöðumenn félagsmiðstöðvanna Klakans, Elítunnar og Garðalundar og fulltrúar Ungmennaráðs Garðabæjar.

Guðjón Pétur Lýðsson vék af fundi af persónulegum ástæðum áður en 8. liður kom á dagskrá.

Dagskrá

Málsnúmer 2008612

01

Forvarnarvika í Garðabæ 2020

Stutt grein gerð fyrir framkvæmd forvarnaviku 2020. Nokkur röskun varð á dagskrá vegna samkomutakmarkana. Sumum dagskrárliðum var frestað og verða framkvæmdir þegar hægt verður. Framleiðsla leikins efnis Ungmennaráðs tókst vel, einnig efni ætlað leikskólunum.

ÍTG þakkar öllum sem komu að framkvæmd forvarnavikunnar 2020. Nokkur röskun varð á dagskrá vegna samkomutakmarkana. Sumum dagskrárliðum var frestað og verða framkvæmdir þegar hægt verður. Framleiðsla leikins efnis Ungmennaráðs tókst sérlega vel, einnig efni ætlað leikskólunum. Fram kom ánægja fulltrúa Ungmennaráðs að fá að taka svona viðamikið verkefni að sér og að geta tengt efnið við sinn eigin reynsluheim.

Málsnúmer 2004226

02

Áhrif Covid 19 á rekstur íþróttafélaga í Garðabæ

Ný úttekt Stjörnunnar á stöðu skráninga í starfi deilda og útistandandi æfingagjalda.

Umræður um áhrif Covid 19 og þær takmarkanir sem hafa verið á skipulagt íþrótta- og tómstundastarf barna og ungmenna og hvort slíkt leiði til brottfalls. Farið var yfir úttekt Stjörnunnar á stöðu skráninga í starfi deilda og útistandandi æfingagjöld.

Málsnúmer 2010177

03

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Lísa Bergdís Arnarsdóttir kt.1102022530 hlýtur ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- vegna Færeyjaferðar með U-18 HSÍ 31.7.-3.8.2020

Lísa Bergdís Arnarsdóttir kt.1102022530 hlýtur ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- vegna Færeyjaferðar með U-18 HSÍ 31.7.-3.8.2020

Málsnúmer 2005102

04

Guðrún Fjóla Guðmundsdóttir - Umsókn fyrir 19. júní

Frisbígolf fyrir konur á höfuðborgarsvæðinu.

ÍTG fagnar verkefni um Frisbígolf fyrir konur á höfuðborgarsvæðinu. Þar sem verkefnið fór ekki í gang að fullu hvetur ÍTG hópinn til að sækja um aftur næsta vor þegar auglýst verður eftir umsóknum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2009552

05

Úthlutun úr 19. júní sjóði

Sagt frá fundi með framkvæmdastjórum Stjörnunnar, UMFÁ og afreksstjóra GKG um hugmyndir að eflingu fyrirmynda í kvennaíþróttum bæði inn á við í starfi félaganna og út á við gagnvart almenningi.

Sagt var frá fundi með framkvæmdastjórum Stjörnunnar, UMFÁ og afreksstjóra GKG um hugmyndir að "eflingu fyrirmynda í kvennaíþróttum" bæði inn á við í starfi félaganna og út á við gagnvart almenningi.

ÍTG samþykkir að hefja undirbúning að slíku verkefni þvert á íþróttafélög í Garðabæ.

Málsnúmer 2010153

06

Stofnun kvennaliðs KFG

Styrkbeiðni vegna stofnunar kvennaliðs KFG.

Fjallað var um styrkbeiðni vegna stofnunar kvennaliðs KFG. ÍTG hefur óskað eftir nánari upplýsingum um málið.

Málsnúmer 2010241

07

Sporið - útivistarverkefni

Lagning skíðagönguspora í Vífilsstaðahlíð með tengingu við aðra stíga í Heiðmörk til að auka autivistarmöguleika Garðbæinga að vetrarlagi.

ÍTG tekur jákvætt í samstarf við Sporið um lagningu skíðagönguspora í Vífilsstaðahlíð með tengingu við aðra stíga í Heiðmörk til að auka útivistarmöguleika Garðbæinga að vetrarlagi. Íþróttafulltrúa var falið að vinna að málinu með umhverfisdeild Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2001317

08

Rekstrarstyrkir KFG 2020

Ósk KFG um stuðning vegna skuldar við KSÍ frá 2019.

Afgreiðslu erindisins um viðbótar styrk frestað til sameiginlegrar umræðu um fjárhagsvanda íþróttafélaga við gerð fjárhagsáætlunar.

Önnur mál:
a) Forstöðumenn fóru yfir starfsemi félagsmiðstöðvanna Klakans, Elítunnar og Garðalundar
b) Staða framkvæmda við íþróttamannvirki Garðabæjar í Vetrarmýri, vallarsvæðið við Breiðumýri og íþróttahúsið Breiðumýri auk íþróttasalarins og sundlaugarinnar í Mýrinni.
c) Lagt var til að bæta við og laga hreystitæki við göngustíginn við Vífilsstaðavatn.