Sporið - útivistarverkefni
Málsnúmer 2010241
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
27. fundur
Umhverfisnefnd tekur jákvætt í beiðnina og óskar eftir nánu samstarfs milli starfsmanna Tækni- og umhverfissviðs, íþrótta og forvarnarfulltrúa við Sporið um val á leiðum að aðferðum við framkvæmdir. Sumir þessara stíga liggja inná friðlandi og þá þarf að upplýsa Umhverfisstofnun.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
23. fundur
Lagning skíðagönguspora í Vífilsstaðahlíð með tengingu við aðra stíga í Heiðmörk til að auka autivistarmöguleika Garðbæinga að vetrarlagi.
ÍTG tekur jákvætt í samstarf við Sporið um lagningu skíðagönguspora í Vífilsstaðahlíð með tengingu við aðra stíga í Heiðmörk til að auka útivistarmöguleika Garðbæinga að vetrarlagi. Íþróttafulltrúa var falið að vinna að málinu með umhverfisdeild Garðabæjar.