Úthlutun úr 19. júní sjóði
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
25. fundur
Verkefni þvert á íþróttafélög og flokka í Garðabæ til eflingar ímynd og sýnileika afreksíþróttakvenna.
ÍTG samþykkir að hefja verkefni þvert á íþróttafélög og íþróttagreinar til þjálfunar leiðtoga og eflingar ímyndar og sýnileika afreksíþróttakvenna í Garðabæ.
Verkefninu er stjórnað af íþróttafulltrúa Garðabæjar. Kostnaðaráætlun mun liggja fyrir á fundi ÍTG í byrjun árs 2021.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
23. fundur
Sagt frá fundi með framkvæmdastjórum Stjörnunnar, UMFÁ og afreksstjóra GKG um hugmyndir að eflingu fyrirmynda í kvennaíþróttum bæði inn á við í starfi félaganna og út á við gagnvart almenningi.
Sagt var frá fundi með framkvæmdastjórum Stjörnunnar, UMFÁ og afreksstjóra GKG um hugmyndir að "eflingu fyrirmynda í kvennaíþróttum" bæði inn á við í starfi félaganna og út á við gagnvart almenningi.
ÍTG samþykkir að hefja undirbúning að slíku verkefni þvert á íþróttafélög í Garðabæ.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
22. fundur
Nýjar úthlutunarreglur og hugmyndir að verkefnum
Rætt var um nýjar úthlutunarreglur og áhugaverð verkefni til eflingar fyrirmynda í íþróttum kvenna í Garðabæ. Unnið verður fram að næsta fundi ÍTG að því að móta slíkt verkefni í framhaldi af sumarátakinu sl. sumar sem unnið var með Stjörnunni og UMFÁ.