Beint í efni

25. fundur

11.12.2020
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

25. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

11.12.2020

Kl. 15:00 - 16:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
  • Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
  • Guðjón Pétur Lýðsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Vegna sóttvarnaráðstafana fer fundurinn fram á Teams fjarfundaforritinu.

Dagskrá

Málsnúmer 2011287

01

Íþróttahátið íþrm ársins 2020

Vegna samkomutakmarkana við 10 manns fram yfir 12.janúar 2021 verður Íþróttahátíð Garðabæjar með nýju sniði. Útnefningu íþróttamanna ársins verður lýst og í beinni útsendingu á vef. Aðrar viðurkenningar verða teknar upp og sýndar á undan.

Vegna samkomutakmarkana við 10 manns fram yfir 12. janúar 2021 verður Íþróttahátíð Garðabæjar með nýju sniði. Útnefningu íþróttamanna ársins verður lýst í beinni útsendingu á vef þann 10. janúar nk.

Vefkosning verður opin almenningi til 2. janúar og gildir hún sem eitt atkvæði á móti 5 atkvæðum nefndarfólks ÍTG.

Málsnúmer 1908321

02

Endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar

Lokadrög forvarnastefnu Garðabæjar liggja nú fyrir.

Samþykkt að setja drögin að forvarnastefnunni í upplýsingagátt bæjarins til 15. janúar nk. til kynningar og óska eftir ábendingum og sjónarmiðum íbúa. Eftir það fer stefnan til lokaafgreiðslu og staðfestingar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2012127

03

Íþróttastefna Garðabæjar til endurskoðunar

Íþróttastefnan er frá 2014 og þarfnast nú yfirferðar og endurskoðunar.

Samþykkt var að hefja endurskoðun á "íþróttastefnu Garðabæjar" og ljúka því fyrir miðjan maí 2021.

Málsnúmer 2011517

04

Afreksíþróttastefna - endurskoðun

Komið er að endurnýjun afreksstefnu Garðabæjar. Sú sem unnið er eftir er síðan 2005.

Samþykkt að endurskoða "afreksstefnu Garðabæjar" um leið og íþróttastefnuna. Unnið verður eftir núgildandi stefnu varðandi afreksstyrki þar til ný stefna tekur gildi næsta vor.

Málsnúmer 2009552

05

Úthlutun úr 19. júní sjóði

Verkefni þvert á íþróttafélög og flokka í Garðabæ til eflingar ímynd og sýnileika afreksíþróttakvenna.

ÍTG samþykkir að hefja verkefni þvert á íþróttafélög og íþróttagreinar til þjálfunar leiðtoga og eflingar ímyndar og sýnileika afreksíþróttakvenna í Garðabæ.

Verkefninu er stjórnað af íþróttafulltrúa Garðabæjar. Kostnaðaráætlun mun liggja fyrir á fundi ÍTG í byrjun árs 2021.

Önnur mál:
a. Rætt var um að halda sameiginlegan fund ÍTG og Fjölskylduráðs í upphafi árs 2021 til að samræma forvarnir og þau brýnu mál sem uppi væru á tímum Covid 19.
b. GR rakti fundi samráðshóps sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Hann fór einnig yfir stöðu innleiðingar á Barnasáttmála SÞ í Garðabæ.
c. Farið var yfir stöðu Götuvaktarinnar sem er í gangi á föstudögum.
d. Stefanía spurðist fyrir um stöðuna á ráðningu leiðbeinenda í þeim heilsuræktartilboðum sem hafa verið á vegum bæjarins. Mikilvægt sé að geta byrjað strax þegar lokunum vegna Covid 19 afléttir.