Endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
25. fundur
Lokadrög forvarnastefnu Garðabæjar liggja nú fyrir.
Samþykkt að setja drögin að forvarnastefnunni í upplýsingagátt bæjarins til 15. janúar nk. til kynningar og óska eftir ábendingum og sjónarmiðum íbúa. Eftir það fer stefnan til lokaafgreiðslu og staðfestingar.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
24. fundur
Nýjustu drög að "forvarnastefnu Garðabæjar" eru hér lögð fram. Kynning hefur farið fram í nefndum og tekið tillit til ábendinga sem komið hafa.
Lokafrágangur forvarnastefnu er í gangi og verður afgreidd til bæjarstjórnar eftir næsta fund ÍTG. Kynning hefur farið fram í nefndum og tillit tekið til ábendinga sem komið hafa.
Umræða var um eineltismál og aðgerðaáætlanir skóla og íþróttafélaga. Aðgerðaráætlanir eru nú í endurskoðun þar sem fjallað verður meira um samskipti milli einstaklinga/hópa. Mikið samráð og samstarf er milli skóla og frístundavettvangs. Átak er nú í undirbúningi á aukinni fræðslu sem nær til starfsfólks og íbúa Garðabæjar og er m.a. stefnt að því að halda opinn fræðslufund um næstu mánaðarmót.
Fylgiskjöl
Öldungaráð
03
2. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1908321 endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar. Skjalið "Forvarnarstefna Garðabæjar 2020" er tilbúið til kynningar og er sent frá ÍTG á nefndir og ráð bæjarins til umsagnar. Allar ábendingar eru vel þegnar.
Síðar verður farið í að laga framsetningu, leturgerðir og fleira áður en þetta fer á vefinn.
Lagt fram og rætt.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
04
3. fundur
Skjalið "Forvarnastefna Garðabæjar 2020" er tilbúið til kynningar. Það er hér með sent frá ÍTG á nefndir og ráð bæjarins til umsagnar. Allar ábendingar eru vel þegnar.
Síðar verður farið í að laga framsetningu, leturgerðir og fleira áður en þetta fer á vefinn.
Skólanefnd tónlistarskólans leggur áherslu á forvarnargildi tónlistar og tónlistarkennslu.
Fjölskylduráð Garðabæjar
05
7. fundur
Á fundi sínum 1. júlí 2020 óskaði fjölskylduráð eftir því að íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúi kynnti fyrir ráðinu drög að forvarnarstefnu Garðabæjar með áherslu á þau atriði er snerta sérstaklega málaflokka sviðsins.
Tekið er fyrir mál nr. 1908321 Endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar. Íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúi kemur á fund ráðsins og kynnir drög að endurnýjaðri forvarnarstefnu Garðabæjar. Forvarnarfulltrúi hefur gert breytingar á stefnunni til samræmis við fyrri athugasemdir fjölskylduráðs og starfsmanna fjölskyldusviðs. Drögin rædd og ábendingum og athugasemdum fjölskylduráðs komið til skila. Fjölskylduráð lýsir ánægju sinni með vinnuna.
Fjölskylduráð Garðabæjar
06
6. fundur
Forvarnarstefna Garðabæjar 2020
Tekið er fyrir mál nr. 1908321 - endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar.
Drög að endurskoðaðri forvarnarstefnu eru send frá ÍTG á nefndir og ráð bæjarins til kynningar. Í drögum að nýrri forvarnarstefnu er lögð áhersla á allt samfélagið og stefnan er tengd heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Fjölskyldusviði er falið að fylgja eftir þeim atriðum sem tengjast málaflokkum sviðsins og hafa samráð við ábyrgðaraðila stefnunnar. Fjölskylduráð óskar eftir nánari kynningu frá íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúa Garðabæjar.
Fylgiskjöl
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
07
2. fundur
Skjalið "Forvarnastefna Garðabæjar 2020" er tilbúið til kynningar. Það er hér með sent frá ÍTG á nefndir og ráð bæjarins til umsagnar.
Tekið er fyrir mál nr. 1908321, endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar. Kári Jónsson, íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúi situr fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnir nýja forvarnarstefnu Garðabæjar 2020. Forvarnarstefnan leggur áherslu á allt samfélagið og tengist heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Fram kemur í máli Kára að allar ábendingar eru vel þegnar. Málið rætt.
Leikskólanefnd Garðabæjar
08
15. fundur
Íþrótta, tómstunda og forvarnarfulltrúi kynnti forvarnarstefnu Garðabæjar.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
09
23. fundur
Skjalið "Forvarnastefna Garðabæjar 2020" er tilbúið til kynningar. Það er hér með sent frá ÍTG á nefndir og ráð bæjarins til umsagnar. Allar ábendingar eru vel þegnar.
Síðar verður farið í að laga framsetningu, leturgerðir og fleira áður en þetta fer á vefinn.
Kári Jónsson, íþrótta- og forvarnarfulltrúi kynnti drög af forvarnarstefnu Garðabæjar 2020.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
10
21. fundur
Skjalið "Forvarnastefna Garðabæjar 2020" er tilbúið til kynningar. Það er hér með sent frá ÍTG á nefndir og ráð bæjarins til umsagnar. Allar ábendingar eru vel þegnar.
Síðar verður farið í að laga framsetningu, leturgerðir og fleira áður en þetta fer á vefinn.
Kári Jónsson kom til fundarins og kynnti nýja "Forvarnastefna Garðabæjar 2020" Forvarnarstefnan leggur áherslu á allt samfélagið og tengist heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
6. fundur
Tillaga að Forvarnastefna Garðabæjar 2020 lögð fram.
Skipulagsnefnd gerir engar athugasemdir.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
12
19. fundur
Forvarnarstefna tilbúin til kynningar í öðrum nefndum bæjarins.
Drög að forvarnarstefnu Garðabæjar verður á næstunni send til kynningar í nefndum bæjarins.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
13
18. fundur
Vinnuskjal um nýja forvarnaráætlun Garðabæjar með tengingum við "heimsmarkmið Sameinuðuþjóðanna" til yfirlestrar.
Vinnuskjal um nýja forvarnaráætlun Garðabæjar með tengingum við "heimsmarkmið Sameinuðuþjóðanna" var kynnt. Ákveðið að taka sérstakan vinnufund ÍTG um stefnuna 27. mars nk. til að klára skjalið áður en það fer til kynningar í öðrum nefndum.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
14
17. fundur
Drög að forvarnaráætlun til umræðu innan ÍTG. Meðfylgjandi skjal er enn í vinnslu...
ÍTG vinnur áfram að áætluninni og framsetningu hennar fram að næsta fundi.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
15
14. fundur
Vinna við að yfirfara stefnu í forvarnarmálum Garðabæjar
Rætt um nálgun og uppsetningu á nýrri forvarnarstefnu. Ákveðið að tómstunda- og íþróttafulltrúi myndu vinna áfram í stefnunni í samræmi við umræður á fundinum og vinnan héldi svo áfram hjá nefndinni á næsta fundi.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
16
13. fundur
Umræða um endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar
Unnið verður áfram að forvarnarstefnunni. Skal hin nýja stefna ná til allra bæjarbúa og jafnframt þarf að tryggja það að hún tengist öðrum markmiðum Garðabæjar.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
17
12. fundur
Unnið er að endurnýjun á forvarnarstefnu Garðabæjar sem er frá 2014.
ÍTG er að hefja endurskoðun á forvarnarstefnu Garðabæjar. Ætlunin er m.a. að skoða með hvaða hætti stefnan tengist öðrum stefnum bæjarins, innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og Heimsmarkmiðunum. Stefnt er að gera aðgerðaráætlun á grundvelli endurskoðaðrar áætlunar sem hægt er að leggja fram við gerð fjárhagsáætlunar Garðabæjar fyrir árið 2020.
Umræður um Dale Carnegie námskeið sem haldið hefur verið undanfarin ár fyrir 13-15 ára unglinga sem búsettir eru í bænum. Námskeiðið er niðurgreitt að hluta af Garðabæ. Samþykkt að bjóða áfram upp á námskeið og mun það hefjast nú í október.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
18
11. fundur
Til athugunar er að endurnýja forvarnaráætlun Garðabæjar haustið 2019.
ÍTG sem nú fer með forvarnarmál bæjarins einsetur sér að endurnýja forvarnaráætlun Garðabæjar haustið 2019. Einnig verður stefna í íþróttamálum skoðuð með hliðsjón af verkefninu "Heilsueflandi Garðabær".