Beint í efni

21. fundur

10.06.2020
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

21. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Sveinatungu, Garðatorgi

10.06.2020

Kl. 17:00 - 19:010

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Emil Harðarson - varamaður

Starfsmenn

  • Edda Björg Sigurðardóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Þorgerður Anna Arnardóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Bryndís Stefánsdóttir - fulltrúi kennara

Ritari

  • Edda Björg Sigurðardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2005458

01

Ósk starfsfólks Sjálandsskóla um tilfærslu á skipulagsdegi á skóladagatali 2020-2021

Beiðni starfsfólks Sjálandsskóla tekin fyrir. Starfsfólk óskar eftir að færa til einn skipulagsdag annað hvort 16. september 2020 eða 25. maí 2021 yfir á 23. apríl 2021. Skólanefnd samþykkir beiðni starfsfólks enda tryggi skólinn vistun þeirra skólabarna sem óskað er eftir vistun fyrir. Mælst er til þess að færa skipulagsdaginn 25. maí 2021.

Málsnúmer 1908321

02

Endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar

Skjalið "Forvarnastefna Garðabæjar 2020" er tilbúið til kynningar. Það er hér með sent frá ÍTG á nefndir og ráð bæjarins til umsagnar. Allar ábendingar eru vel þegnar.

Síðar verður farið í að laga framsetningu, leturgerðir og fleira áður en þetta fer á vefinn.

Kári Jónsson kom til fundarins og kynnti nýja "Forvarnastefna Garðabæjar 2020" Forvarnarstefnan leggur áherslu á allt samfélagið og tengist heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Málsnúmer 2006120

03

Störf skólanefndar 2019-2020 samantekt

Störf skólanefndar 2019-2020 samantekt á störfum nefndarinnar 2019-2020 lögð fram. Formaður fór yfir samantekt á störfum nefndarinnar.

Málsnúmer 2006117

04

Áherslur Skólanefndar grunnskóla 2020-2021

Skólanefnd ræddi áherslur næsta skólaárs.