2. fundur
2. fundur
Öldungaráð
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
02.10.2020
Kl. 08:30 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
- Ástbjörn Egilsson - aðalmaður
- Ólafur J Proppé - aðalmaður
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - aðalmaður
- Margrét Björnsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2004135
01
Tilkynning frá heilbrigðisráðuneytinu um aðgerðaáætlun í þjónustu við fólk með heilabilun, dags. 08.04.2020.
Tekið er fyrir mál nr. 2004135 tilkynning frá heilbrigðisráðuneytinu um aðgerðaráætlun í þjónustu við fólk með heilabilun.
Þau málefnasvið sem tekin eru fyrir í aðgerðaáætluninni eru:
1. Sjálfsákvörðunarréttur, þátttaka sjúklinga og lagaleg umgerð.
2. Forvarnir.
3. Tímanleg greining á heilabilun á réttum stað og eftirfylgni eftir greiningu.
4. Virkni, sjálfshjálp og stuðningur.
5. Rétt þjónusta miðað við stig heilabilunar.
6. Umfang, rannsóknir, þekking og hæfni.
Undir hverju málefnasviði eru birtar áherslur ráðherra, þær aðgerðir sem ákveðið hefur verið að ráðast í, áhrif þeirra á samfélagið og framtíðarsýn við lok gildistíma áætlunarinnar árið 2030 sem jafnframt er gildistími samþykktrar heilbrigðisstefnu
Lagt fram og rætt.
Öldungaráð telur mikilvægt að Garðabær haldi áfram að vinna að því að fjölga dagvistarplássum fyrir heilabilaða í Garðabæ.
Málsnúmer 1710101
02
Stefna í málefnum eldri borgara - Aðgerðaráætlun
Tekið er fyrir mál nr. 1710101 Stefna í málefnum eldri borgara - aðgerðaráaætlun.
Á síðasta fundi Öldungaráðs var samþykkt að leggja fram nýja aðgerðaráætlun í þeim 5 stefnumálum sem sett voru í forgang. Í forgangi eru;
1. Upplýsingaflæði.
2. Félagsleg þátttaka.
3. Forvarnir og heilsuefling.
4. Búsetuúrræði.
5. Velferðartækni.
Formleg vinna vinnuhóps vegna aðgerðaráætlunar hefur ekki farið fram að undanförnu vegna aðstæðna í samfélaginu en í sumar var unnið að verkefnum tengdum stefnumálum nr. 2 og 3 með góðum árangri sem vert að skoða betur.
Í sumar var í gangi verkefni þar sem lögð var áhersla á að hafa samaband við eldri borgara, 80 ára og eldri, með ýmsum hætti og mikilvægt að halda slíkri vinnu áfram eins og mögulegt er. Á næsta fundi mun verða lögð fram samantekt á þeim verkefnum.
Málsnúmer 1908321
03
Endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar
Tekið er fyrir mál nr. 1908321 endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar. Skjalið "Forvarnarstefna Garðabæjar 2020" er tilbúið til kynningar og er sent frá ÍTG á nefndir og ráð bæjarins til umsagnar. Allar ábendingar eru vel þegnar.
Síðar verður farið í að laga framsetningu, leturgerðir og fleira áður en þetta fer á vefinn.
Lagt fram og rætt.
Málsnúmer 1911304
04
Tillaga um skipun starfshóps til að vinna að framgangi stafrænnar framþróunar og þjónustu hjá Garðabæ.
Tekið er fyrir mál nr. 1911304 - tillaga um skipun starfshóps til að vinna að framgangi stafrænnar framþróunar og þjónustu hjá Garðabæ.
Lagt var upp með 4 verkefni sem voru metin út frá ákveðnum þáttum m.a. hversu margir nýta þjónustuna, tímasparnaður, árlegur fjöldi umsókna/fyrirspurna ásamt ávinningi.
Verkefnin voru;
1. Stafrænt Garðakort.
2. Umhverfisgátt.
3. Stuðningsþjónusta.
4. Snjöll afgreiðsla leikskólaumsókna.
Öldungaráð fjallar um málið og lýsir ánægju sinni með val verkefna.
Málsnúmer 2003455
05
Ályktun frá Landsambandi eldri borgara.
Tekið er fyrir mál nr. 2003455 - ályktun frá Landssambandi eldri borgara. Bæjarráð Garðabæjar vísar málinu til umfjöllunar í öldungaráði.
Um er að ræða frumvarp til laga um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða.
Ályktun frá LEB er varðar aðgerðir sem snerta hagsmuni eldri borgara meðan á kórónuveirufaraldri stendur og afgreiðsla á frumvarpi að lögum nr. 666, lögð fram til kynningar.