Beint í efni

Tilkynning frá heilbrigðisráðuneytinu um aðgerðaáætlun í þjónustu við fólk með heilabilun, dags. 08.04.2020.

Málsnúmer 2004135

Ferill máls

Öldungaráð

01

2. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 2004135 tilkynning frá heilbrigðisráðuneytinu um aðgerðaráætlun í þjónustu við fólk með heilabilun.

Þau málefnasvið sem tekin eru fyrir í aðgerðaáætluninni eru:
1. Sjálfsákvörðunarréttur, þátttaka sjúklinga og lagaleg umgerð.
2. Forvarnir.
3. Tímanleg greining á heilabilun á réttum stað og eftirfylgni eftir greiningu.
4. Virkni, sjálfshjálp og stuðningur.
5. Rétt þjónusta miðað við stig heilabilunar.
6. Umfang, rannsóknir, þekking og hæfni.
Undir hverju málefnasviði eru birtar áherslur ráðherra, þær aðgerðir sem ákveðið hefur verið að ráðast í, áhrif þeirra á samfélagið og framtíðarsýn við lok gildistíma áætlunarinnar árið 2030 sem jafnframt er gildistími samþykktrar heilbrigðisstefnu

Lagt fram og rætt.

Öldungaráð telur mikilvægt að Garðabær haldi áfram að vinna að því að fjölga dagvistarplássum fyrir heilabilaða í Garðabæ.

Fjölskylduráð Garðabæjar

02

5. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 2004135 Tilkynning frá heilbrigðisráðuneytinu um aðgerðaráætlun í þjónustu við fólk með heilabilun dags. 8.4. 2020.
Aðgerðaráætlun er lögð fram og rædd.

Bæjarráð Garðabæjar

03

15. (1924). fundur

Bæjarráð vísar málinu til kynningar í fjölskylduráði og öldungaráði.