5. fundur
5. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
27.05.2020
Kl. 16:00 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
Ritari
- Bergljót Sigurbjörnsdóttir
Dagskrá
01
Húsnæðisáætlun sveitarfélaga
Tekið er fyrir mál nr. 2001383 húsnæðisáætlun. Bæjarstjóri Garðabæjar situr fundinn undir þessum lið.
Í samræmi við reglugerð 1248/2018 skulu sveitarfélög uppfæra húsnæðisáætlanir sínar árlega. Í bréfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar dags. 20. jan. 2020 kemur fram að auk almennrar yfirferðar áætlunarinnar m.t.t. hugsanlegra breytinga þá telji stofnunin þörf á að Garðabær uppfæri eða bæti inn upplýsingum um framboð leiguhúsnæðis og stöðu biðlista eftir leiguhúsnæði í eigu sveitarfélagsins.
Bæjarstjóri gerir grein fyrir fyrirhuguðum áætlunum Garðabæjar í húsnæðismálum á næstu árum og samhengi þeirra við uppbyggingu nýrra hverfa á næstu árum.
Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að fela fjölskyldusviði að taka saman upplýsingar í tengslum við uppfærslu húsnæðisáætlunar Garðabæjar.
02
Innleiðing Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, Heilsueflandi Garðabæ, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Tekið er fyrir mál nr. 1906094 innleiðing heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Svanhildur Þengilsdóttir, forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu situr fundinn undir þessum lið.
Tillaga starfshóps um val á yfirmarkmiðum heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna fyrir Garðabæ lögð fram og kynnt. Tillagan var lögð fram í bæjarráði Garðabæjar til kynningar í byrjun mars sem samþykkti að unnið yrði áfram með þau verkefni sem starfshópurinn valdi og vísaði tillögunni til umfjöllunar í fjölskylduráði og öðrum fastanefndum bæjarstjórnar. Svanhildur Þengilsdóttir greindi stuttlega frá vinnu starfshópsins.
Fjölskylduráð lýsir ánægju sinni með þau markmið sam samþykkt hefur verið að vinna áfram með og þakkar starfshópnum fyrir vinnuna. Markmiðin verða rauður þráður í vinnu fjölskylduráðs og fjölskyldusviðs á næstu mánuðum.
03
Staða biðlista í félagslegu leiguhúsnæði
Staða biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði í Garðabæ.
Tekið er fyrir mál nr. 2002291 staða biðlista í félagslegu leiguhúsnæði.
Sviðsstjóri leggur fram samantekt um stöðu biðlista í félagslegu leiguhúsnæði dags. 17.3. 2020.
Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að samantekt um stöðu biðlista verði lögð fram tvisvar á ári næst í sept. 2020.
04
Tilynning frá heilbrigðisráðuneytinu um aðgerðaáætlun í þjónustu við fólk með heilabilun, dags. 08.04.2020.
Tekið er fyrir mál nr. 2004135 Tilkynning frá heilbrigðisráðuneytinu um aðgerðaráætlun í þjónustu við fólk með heilabilun dags. 8.4. 2020.
Aðgerðaráætlun er lögð fram og rædd.
05
Tillögur að endurhæfingarstefnu kynntar og birtar í samráðsgátt
Tekið er fyrir mál nr. 2004252 tillögur Heilbrigðisráðuneytis að endurhæfingarstefnu.
Lagt fram og rætt.