Beint í efni

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi upplýsinga- og samráðsfund vegna innleiðingar Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, dags. 12.07.22.

Málsnúmer 1906094

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

26. (2033). fundur

Lagt fram.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

37. (1995). fundur

Bæjarráð samþykkir að Garðabær sæki um þátttöku í verkefninu og tilnefnir Björgu Fenger, forseta bæjarstjórnar og Sunnu G. Sigurðardóttur, verkefnastjóra fulltrúa Garðabæjar til að taka ábyrgð á innleiðingu verkefnisins hjá Garðabæ.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

17. (1975). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Sunna G. Sigurðardóttir, verkefnastjóri og gerði grein fyrir stöðu innleiðingar hjá Garðabæ á Heimsmarkmiðum SÞ, barnasáttmála SÞ, heilsueflandi samfélags og velferð barna í Garðabæ.

Fram kom að unnið er að innleiðingu 38 undirmarkmiða og tengingu þeirra við núverandi stefnur Garðabæjar að við endurskoðun á stefnum verður unnið með heimsmarkmiðin í huga.

Unnið hefur verið að innleiðingu barnasáttmála SÞ og tekur Garðabær þátt í verkefninu Barnvæn sveitarfélög sem er í smstarfi við félagsmálaráðuneytið og UNICEF

Heilsueflandi samfélag er verkefni sem byggir á samkomulagi við Landlæknisembættið frá árinu 2018.

Velferð barna í Garðabæ er verkefni sem stuðlar að samvinnu allra aðila innan bæjarfélagsins sem vinna með börnum.

Harpa Þorsteinsdóttir, var á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið tengd fjarfundarbúnaði.

Fylgiskjöl

Öldungaráð

04

1. fundur

Lagt fram til kynningar. Garðabær vinnur að innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem gilda til ársins 2030.
Um mitt ár 2019 var settur á fót starfshópur um innleiðingu heimsmarkmiðanna í Garðabæ. Í starfshópnum sitja fulltrúar frá öllum sviðum Garðabæjar auk verkefnastjóra og á hópurinn að vinna náið með nefndum og starfsmönnum bæjarins, félagasamtökum og öðrum tengdum aðilum.
Yfirmarkmið Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna eru 17 talsins og undirmarkmiðin 169. Starfshópur Garðabæjar valdi alls 38 undirmarkmið og var það álit starfshópsins að þau 38 undirmarkmið sem valin voru tengist vel inn á þrjár meginstoðir sjálfbærrar þróunar; efnahagslegar, félagslegar og umhverfislegar. Þessar stoðir eru grunnur að því að tryggja velferð einstaklinga og samfélaga með sjálfbærni til framtíðar í huga.
Skoða á hvernig stefnur Garðabæjar falla að undirmarkmiðunum.

Mál nr. 1906094 lagt fram til kynningar. Svanhildur Þengilsdóttir fór yfir stöðu innleiðingar heimsmarkmiðanna hjá Garðabæ sem staðið hefur yfir í 12 mánuði og áhrifa þeirrar innleiðingar á aðrar stefnur bæjarins þar á meðal stefnu í málefnum eldri borgara. Öldungaráð lýsir yfir ánægju sinni með þá vinnu sem unnin hefur verið við innleiðinguna.

Bæjarráð Garðabæjar

05

50. (1958). fundur

Bæjarráð samþykkir að skipa eftirfarandi einstaklinga í stýrihóp vegna innleiðingar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Almar Guðmundsson, formaður fjölskylduráðs.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður skólanefndar.
Björg Fenger, formaður íþrótta- og tómstundaráðs.
Sara Dögg Svanhildardóttir, fulltrúi minnihlutans.
NN-stúlka, fulltrúi ungmennaráðs.
NN - drengur, fulltrúi ungmennaráðs.
Sigurður Garðar Flosason, fulltrúi fjölskyldusviðs.
Haldóra Pétursdóttir, fulltrúi fræðslu- og menningarsviðs.
Sóveig Helga Jóhannsdóttir, fulltrúi tækni- og umhverfissviðs.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fulltrúi fjármála- og stjórnsýslusviði.

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

06

2. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1906094, innleiðing heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, heilsueflandi Garðabær, Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna. Sunna Sigurðardóttir, verkefnisstjóri, og Kári Jónsson, íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúi sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tillaga starfshóps um val á yfirmarkmiðum heimsmarkmiða sameinuðu þjóðanna fyrir Garðabæ lögð fram. Tillagan var lögð fram í bæjarráði Garðabæjar til kynningar í byrjun mars. Bæjarráð samþykkti að unnið yrði áfram með þau verkefni sem starfshópurinn valdi og vísaði tillögu starfshópsins til umfjöllunar í fastanefndum bæjarstjórnar. Sunna greinir frá vinnu starfshópsins.

Fjölskylduráð Garðabæjar

07

5. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1906094 innleiðing heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Svanhildur Þengilsdóttir, forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu situr fundinn undir þessum lið.
Tillaga starfshóps um val á yfirmarkmiðum heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna fyrir Garðabæ lögð fram og kynnt. Tillagan var lögð fram í bæjarráði Garðabæjar til kynningar í byrjun mars sem samþykkti að unnið yrði áfram með þau verkefni sem starfshópurinn valdi og vísaði tillögunni til umfjöllunar í fjölskylduráði og öðrum fastanefndum bæjarstjórnar. Svanhildur Þengilsdóttir greindi stuttlega frá vinnu starfshópsins.
Fjölskylduráð lýsir ánægju sinni með þau markmið sam samþykkt hefur verið að vinna áfram með og þakkar starfshópnum fyrir vinnuna. Markmiðin verða rauður þráður í vinnu fjölskylduráðs og fjölskyldusviðs á næstu mánuðum.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

08

2. fundur

Formaður lagði fram til kynningar.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

09

20. fundur

Tillaga starfshóps um val á yfirmarkmiðum heimsmarkmiða sameinuðu þjóðanna fyrir Garðabæ tekið fyrir.

Tillaga starfshóps um val á yfirmarkmiðum heimsmarkmiða sameinuðu þjóðanna fyrir Garðabæ lögð fram.
Tillagan var lögð fram í bæjarráði Garðabæjar til kynningar í byrjun mars. Bæjarráð samþykkti að unnið yrði áfram með þau verkefni sem starfshópurinn valdi og vísaði tillögu starfshópsins til umfjöllunar í fastanefndum bæjarstjórnar.
Eiríkur Björn Björgvinsson, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, greindi stuttlega frá vinnu starfshópsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

3. fundur

Lagt fram. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við val á verkefnum.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

11

21. fundur

Guðbjörg Brá Gísladóttir gerði grein fyrir tillögu starfshóps um val á forgangsmarkmiðum Garðabæjar á heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.
Umhverfisnefnd samþykkir að áfram verði unnið með þau markmið sem starfshópurinn hefur valið.
Umhverfisnefnd þakkar starfshópnum vandaða vinnu.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

12

18. fundur

ÍTG fagnar þeirri vinnu sem farið hefur fram hjá Garðabæ við val á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og mun nýta þá vinnu og tengja við forvarnarstefnu bæjarins sem nú er í vinnslu.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

13

4. (863). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

14

9. (1918). fundur

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir tillögu starfshóps um val á verkefnum.

Bæjarráð þakkar starfshópnum sem skipaður er fulltrúum allra sviða fyrir vandaða vinnu og telur að góð rök liggi að baki niðurstöðum um val á einstaka verkefnum. Bæjarráð samþykkir að áfram verði unnið með þau verkefni sem starfshópurinn hefur valið

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu starfshópsins til umfjöllunar í fastanefndum bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Leikskólanefnd Garðabæjar

15

10. fundur

Kynning á innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, Heilsueflandi Garðabæ og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

16

13. fundur

Eiríkur Björn, forstöðumaður fræðslu og menningarsviðs, kynnti vinnu stýrihóps varðandi innleiðingu heimsmarkmiða sameinuðu þjóðanna.

Bæjarráð Garðabæjar

17

22. (1883). fundur

Bæjarráð samþykkir erindisbréf fyrir starfshóp vegna innleiðingar Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, Heilsueflandi Garðabæ, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og velferð barna í Garðabæ.

Bæjarstjóra falið að ganga frá skipun fulltrúa í starfshópinn.

Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram eftirfarandi bókun.

"Garðabæjarlistinn fagnar því að skipað verði í stýrihóp vegna verkefnanna um Heilsueflandi samfélag, Innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, Heimsmarkmiðanna og velferð barna. Enda verkefnin yfirgripsmikli sem krefjast yfirsýnar og eftirfylgni. Um leið vill Garðabæjarlistinn láta færa til bókar vonbrigði með að tillaga Garðabæjarlistans um sama efni sem lögð var fram á bæjarstjórnarfundi þann 6. júní hafi verið felld af meirihlutanum. Í stað þess að sýna í verki vilja til samvinnu og samstarfs minni- og meirihluta við að þoka málum áfram óháð því hver leggur málið fram."

Fylgiskjöl