26. (2033). fundur
26. (2033). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
26.07.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2206201
01
Þórsmörk - staðsetning færanlegra kennslustofa
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Alþjóðaskólanum á Íslandi, kt. 510407-0160, leyfi til eins árs fyrir færanlegum kennslustofum á lóð Þórsmerkur.
Málsnúmer 2201312
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Vörðugötu 2.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Vörðugötu 2. Tillagan gerir ráð fyrir að byggingarreitur bílageymslu stækki og að bílastæðum fjölgi en gestastæðum á lóð fækki. Byggingarmagn ofanjarðar helst óbreytt.
Samþykkt tillaga skal send til meðferðar Skipulagsstofnunar með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Málsnúmer 2103095
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóða við Vinastræti.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóða við Vinastræti 22-30 og háholts Urriðaholts. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir breytingu á lóðarmörkum lóðanna Vinastræti 30 og Vinastræti 22-28. Byggingarmagn er aukið vegna stækkun bílakjallara.
Samþykkt tillaga skal send til meðferðar Skipulagsstofnunar með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Málsnúmer 2205471
04
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála varðandi kæru Þarfaþings hf. á útboði vegna framkvæmda við byggingu leikskóla í Urriðaholti.
Lögð fram og málinu vísað til nánari skoðunar hjá bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1906094
05
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi upplýsinga- og samráðsfund vegna innleiðingar Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, dags. 12.07.22.
Málsnúmer 2205418
06
Tilnefningar fulltrúa í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks.
Á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var 2. júní sl. voru eftirfarandi einstaklingar kosnir í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks.
Kristín Einarsdóttir, Sveinbjörn Halldórsson, og Hjördís Guðmundsdóttir.
Öryrkjabandalag Íslands hefur tilnefnt eftirfarandi einstaklinga til setu í samráðshópnum.
Bergþóra Bergsdóttir og Elín Hoe Hinriksdóttir.
Landssamtökin Þroskahjálp hafa tilnefnt eftirfarandi einstakling til setu í samráðshópnum.
Árni Björn Kristjánsson.
Bæjarráð samþykkir ofangreindar tilnefningar hagsmunasamtaka fatlaðs fólks samkvæmt 2. mgr. 42. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, sbr. 11. gr. laga nr. 37/2018.
Málsnúmer 2206073
07
Tillaga umhverfisnefndar varðandi viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi 2022.
Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi árið 2022. Fyrirhugað er að veita viðkomandi aðilum viðurkenningar fimmtudaginn 25. ágúst nk. kl. 17:00.
Málsnúmer 2207259
08
Tilkynning frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru vegna ákvörðunar byggingarfulltrúa að krefjast ekki að stoðveggur að Hraungötu 10 verði fjarlægður, dags. 11.07.22.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.