Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Vörðugötu 2.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
26. (2033). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Vörðugötu 2. Tillagan gerir ráð fyrir að byggingarreitur bílageymslu stækki og að bílastæðum fjölgi en gestastæðum á lóð fækki. Byggingarmagn ofanjarðar helst óbreytt.
Samþykkt tillaga skal send til meðferðar Skipulagsstofnunar með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
7. (903). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Vörðugötu 2. Í tillögunni er gert ráð fyrir að byggingarreitur bílgeymslu stækki og að bílastæðum fjölgi en gestastæðum á lóð fækki. Byggingarmagn ofanjarðar helst óbreytt. (Mál nr. 2201312)
Bæjarráð Garðabæjar
04
16. (2023). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Vörðugötu 2. Í tillögunni er gert ráð fyrir að byggingarreitur bílgeymslu stækki og að bílastæðum fjölgi en gestastæðum á lóð fækki. Byggingarmagn ofanjarðar helst óbreytt.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
5. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4 sem nær til fjölbýishúslóðarinnar Vörðugata 2.
Í breytingartillögunni felst eftirfarandi:
Byggingarreitur bílgeymslu breytist og stækkar. Kjallara er bætt við undir húsið. Í stað inngrafinnar bílgeymslu suðaustan við byggingu með aðkomu frá bílastæðum á lóð er keyrt niður í bílgeymslu um a.m.k. hálfa hæð frá bílastæðum á lóð. Aðkomuhæð er lyft upp um að hámarki hálfa hæð. Innsti hluti aðkomuhæðar, sem er inngrafin verður hluti af byggingarreit bílgeymslu sem verður að hluta til á tveimur hæðum. Hámarkshæð húss frá bílastæðum er óbreytt. Bílastæðum í bílgeymslu er fjölgað og krafa um gestastæði á lóð er lækkuð úr 12 stæðum í 6 stæði.
Byggingamagn bílgeymslu, nú í kjallara, eykst um 1.574 m².
Form byggingarreits ofanjarðar breytist lítillega. Byggingamagn ofanjarðar helst óbreytt.
Heimilt er að koma fyrir hljóðvegg við Urriðaholtsstræti. Hámarkshæð hljóðveggs er 1,0 m.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41.gr. og 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
3. fundur
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar Urriðaholts Norðurhluta 4 um vinningstillögu í hugmyndasamkeppni um kennileytisbygging að Vörðugötu 2.
Skipulagsnefnd telur tillöguna vera glæsilega og þjóna tilgangi kennileytisbyggingar.
Tillagan kallar hinsvegar á breytingar á deiliskipulagi og þarf lóðarhafi því að sækkja um þær með formlegum hætti.
Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
2. fundur
Arkitektar frá Trípólí og Krads kynntu tillögu að fjölbýlishúsi að Vörðugötu 2 sem er skilgreint sem kennileytishús í deiliskipulagi. Urriðaholt ehf stóð fyrir arkitektasamkeppni um útfærslu byggingarinnar og varð þessi tillaga fyrir valinu.
Tillögu vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.