7. (903). fundur
7. (903). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
05.05.2022
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger
- Sigríður Hulda Jónsdóttir
- Gunnar Valur Gíslason
- Jóna Sæmundsdóttir
- Almar Guðmundsson
- Gunnar Einarsson
- Guðfinnur Sigurvinsson
- Stella Stefánsdóttir
- Sara Dögg Svanhildardóttir
- Ingvar Arnarson
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 7. apríl 2022 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 12/4 ´22.
Fundargerðin sem er 13. tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
1.7 - 2204148 - Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi viðauka við þjónustusamning við Fjölsmiðjuna, dags. 06.04.22.
Bæjarstjórn samþykkir viðauka við þjónustusamning fyrir Fjölsmiðjuna þar sem gert er ráð fyrir viðbótarframlagi kr. 11.500.000 á ári árin 2022, 2023 og 2024.
Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að láta gera viðauka við fjárhagsáætlun vegna ársins 2022 og vísar viðauka við samninginn til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023. (Mál nr. 2204148)
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 26/4 ´22.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 3. tl., bréf Hjallastefnunnar varðandi viðbyggingu, lóðarréttindi og þjónustusamning vegna starfsemi Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum. Sara Dögg lagði fram eftirfarandi bókun.
„Viðreisn harmar þá stöðu sem virðist vera að teiknast upp i Garðabæ. Hér er sveitarfélagið að missa forystu sína í stuðningi við sjálfstætt starfandi skóla, sem er ekki lengur sambærilegt við rekstrarumhverfi nágrannasveitarfélaganna. Garðabær er að taka stór skref afturábak á sama tíma og Hafnarfjörður og Reykjavíkurborg taka stór skref í þágu foreldra og valfrelsis.“
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., bréf Hjallastefnunnar varðandi viðbyggingu, lóðarréttindi og þjónustusamning vegna starfsemi Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 3. tl., bréf Hjallastefnunnar varðandi viðbyggingu, lóðarréttindi og þjónustusamning vegna starfsemi Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum.
Gunnar Einarsson, ræddi 3. tl., bréf Hjallastefnunnar varðandi viðbyggingu, lóðarréttindi og þjónustusamning vegna starfsemi Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 3. tl., bréf Hjallastefnunnar varðandi viðbyggingu, lóðarréttindi og þjónustusamning vegna starfsemi Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum.
Almar Guðmundsson, ræddi 3. tl. bréf Hjallastefnunnar varðandi viðbyggingu, lóðarréttindi og þjónustusamning vegna starfsemi Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum
Fundargerðin sem er 18 tl. er samþykkt samhljóða.
03
Fundargerð bæjarráðs frá 3/5 ´22.
Almar Guðmundsson, ræddi 3. tl., byggingarleyfi fyrir íbúðarkjarna við Brekkuás 3 og 21. tl., bréf Félags eldri borgara í Garðabæ varðandi framkvæmd samstarfssamnings.
Ingvar Arnarson, ræddi 21. tl., bréf Félags eldri borgara í Garðabæ varðandi framkvæmd samstarfssamnings og 9. tl., tilboð í framkvæmdir við byggingu leikskóla í Urriðaholti - Urriðaból.
Gunnar Einarsson, ræddi 21. tl., bréf Félags eldri borgara í Garðabæ varðandi framkvæmd samstarfssamnings, 29. tl., úthlutunarsamning um lóðir í Vetrarmýri og 9. tl., tilboð í framkvæmdir við byggingu leikskóla í Urriðaholti - Urriðaból.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 9. tl., tilboð í framkvæmdir við byggingu leikskóla í Urriðaholti - Urriðaból.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 9. tl., tilboð í framkvæmdir við byggingu leikskóla í Urriðaholti - Urriðaból.
Fundargerðin sem er 30 tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
3.14 - 2201312 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Vörðugötu 2.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Vörðugötu 2. Í tillögunni er gert ráð fyrir að byggingarreitur bílgeymslu stækki og að bílastæðum fjölgi en gestastæðum á lóð fækki. Byggingarmagn ofanjarðar helst óbreytt. (Mál nr. 2201312)
Fylgiskjöl
3.15 - 2109133 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 6.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits á lóðinni við Blikanes 6. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Blikaness 3,4,5,7 og 8 og Tjaldaness 3,5 og 7. (Mál nr. 210933)
Fylgiskjöl
3.16 - 2203574 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi austur- og vesturhluta Urriðaholts vegna afmörkun svæðanna.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta og vesturhluta Urriðaholts er varðar afmörkun deiliskipulagssvæðanna. (Mál nr. 2203574)
Fylgiskjöl
3.17 - 2109356 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 4.
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Kauptúns, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna aukningar á byggingarmagni og stækkun lóðarinnar við Kauptún 4. Tillagan var auglýst og liggja fyrir umsagnir umsagnaraðila. Í tillögunni felst að lóðin stækkar til vesturs um 16.866 m². Byggingarreitur stækkar til vesturs og hámarksbyggingamagn á lóð eykst úr 22.500 m² í 35.500 m². Fjöldi bílastæða eykst í samræmi við bílastæðakröfu sem er óbreytt, þ.e. 1 stæði fyrir hverja 30 m².
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. (Mál nr. 2109356)
Ingvar Arnarson situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
3.18 - 2107195 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 1.
Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns sem gerir m.a. ráð fyrir stækkun byggingarreits og auknu byggingarmagni á lóðinni við Kauptún 1. (Mál nr. 2107195)
Ingvar Arnarson og Þorbjörg Þorvaldsdóttir sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
3.19 - 2103095 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 3. hluta Urriðaholts vegna lóða við Vinastræti.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem gerir m.a. ráð fyrir breytingu á lóðarmörkum lóðanna Vinastræti 30 og Vinastræti 22-28. Byggingarmagn er aukið vegna stækkun bílakjallara. (Mál nr. 2103095)
Fylgiskjöl
3.24 - 2204011 - Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs varðandi drög að samstarfssamning við Skátafélagið Vífil.
Bæjarstjórn samþykkir samstarfssamning við Skátafélagið Vífil og felur bæjarstjóra undirritun hans. (Mál nr. 2204011)
Fylgiskjöl
3.29 - 2109388 - Vetrarmýri - úthlutunarsamningar vegna sölu lóða.
Bæjarstjórn samþykkir samninga við Framkvæmdafélagið Arnarhvol um úthlutun lóða í Vetrarmýri, sbr. tilboð í lóðirnar og felur bæjarstjóra undirritun samninganna.
04
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 5/4 ´22.
Björg Fenger, ræddi 4. tl., Forsetahlaupið, 5. tl., Stjörnuhlaupið, 6. tl., stafræn sundkort og 8. tl., leiðtoga og fyrirmyndir í kvennaíþróttum í Garðabæ.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 6. tl., stafræn sundkort.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 8. tl., leiðtoga og fyrirmyndir í kvennaíþróttum í Garðabæ.
Gunnar Einarsson, ræddi 6. tl., stafræn sundkort.
Fundargerðin lögð fram.
07
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 4/4 ´22.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., barnamenningarhátíð í Garðabæ, 2.tl., Jazzhátíð Garðabæjar í Sveinatungu og 7. tl., Jónsmessugleði 2022.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2.tl., Jazzhátíð Garðabæjar í Sveinatungu.
Fundargerðin lögð fram.
09
Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla frá 17/3 ´22.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., málefni Tónlistarskólans í Garðabæ.
Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., málefni Tónlistarskólans í Garðabæ.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 1. tl., málefni Tónlistarskólans í Garðabæ.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., málefni Tónlistarskólans í Garðabæ.
Ingvar Arnarson, ræddi að nýju 1. tl., málefni Tónlistarskólans í Garðabæ.
Gunnar Einarsson, ræddi að nýju 1. tl., málefni Tónlistarskólans í Garðabæ.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., málefni Tónlistarskólans í Garðabæ.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 1. tl., málefni Tónlistarskólans í Garðabæ.
Fundargerðin lögð fram.
10
Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 16/2 ´22.
Stella Stefánsdóttir, ræddi 1. tl., rekstrarreikning 2021, 3. tl., dagatal viðburða og sýninga 2022 og 5. tl., endurráðningu forstöðumanns safnsins.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi málefni Hönnunarsafns Íslands.
Fundargerðin lögð fram.
11
Fundargerð umhverfisnefndar frá 27/4 ´22.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., kynningu Pure North á tilraunaverkefni á sviði úrgangstjórnunar, 2. tl., innleiðingu innkaupa- og úrgangsstefnu - Garðabær gegn sóun og 3. tl., loftlagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið og aðgerðaráætlun Garðabæjar. Í lok máls síns þakkaði Jóna, sem nú situr sinn síðasta fund í bæjarstjórn, bæjarfulltrúum og bæjarstjóra fyrir samstarfið á kjörtímabilinu.
Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., innleiðingu innkaupa- og úrgangsstefnu - Garðabær gegn sóun. Ingvar þakkaði Jónu fyrir störf hennar sem formaður umhverfisnefndar og samstarfið í bæjarstjórn.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 2. tl., innleiðingu innkaupa- og úrgangsstefnu - Garðabær gegn sóun. Guðfinnur Sigurvinsson, þakkaði Jónu samstarfið í umhverfisnefnd.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., innleiðingu innkaupa- og úrgangstefnu - Garðabær gegn sóun. Sigríður Hulda þakkaði Jónu fyrir störf hennar sem formaður umhverfisnefndar. Við þetta tækifæri nefndi Sigríður Hulda að í dag situr Gunnar Einarsson sinn síðasta bæjarstjórnarfund. Sigríður Hulda þakkaði Gunnari fyrir samstarfið í bæjarstjórn.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 2. tl., innleiðingu innkaupa- og úrgangstefnu - Garðabær gegn sóun. Þorbjörg þakkaði Jónu fyrir störf hennar sem formaður umhverfisnefndar.
Sara Dögg Svanhildardóttir 2. tl., ræddi innleiðingu innkaupa- og úrgangstefnu - Garðabær gegn sóun. Sara Dögg þakkaði Jónu störf hennar sem formaður umhverfisnefndar og samstarfið í umhverfinefnd. Sara Dögg þakkaði einnig Gunnari Einarssyni fyrir samstarfið í bæjarstjórn.
Gunnar Einarsson, kvaddi sér hljóðs og þakkaði góð orð í sinn garð.
Fundargerðin lögð fram.
13
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 1/4 ´22.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., fjárhagsstöðu Strætó. Gunnar Valur þakkaði bæjarfulltrúum Jónu Sæmundsdóttur og Gunnari Einarssyni fyrir samstarfið í bæjarstjórn.
Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., fjárhagsstöðu Strætó.
Fundargerðin lögð fram.
14
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 27/4 ´22.
Björg Fenger ræddi 4. tl., minnisblað framkvæmdastjóra um stöðuna í fjöllunum og 3. tl., minnisblað framkvæmdastjóra varðandi áætlun um uppbyggingu á skíðasvæðunum.
Björg nýtti tækifærið og þakkaði Jónu Sæmundsdóttur fyrir störf hennar sem formaður umhverfisnefndar og samstarfið í bæjarstjórn. Þá þakkaði Björg einnig Gunnari Einarssyni fyrir samstarfið í bæjarstjórn.
Fundargerðin lögð fram.
15
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 29/4 ´22.
Ingvar Arnarson, ræddi 5. tl., bókun fulltrúa Hafnarfjarðar varðandi Flóttamannaveginn.
Ingvar nýtti tækifærið og þakkaði Gunnari Einarssyni fyrir samstarfið í bæjarstjórn.
Fundargerðin lögð fram.
16
Kosning fulltrúa í yfirkjörstjórn og undirkjörstjórnir.
Sigríður Logadóttir er kosin varamaður í yfirkjörstjórn í stað Hrafnhildar Helgadóttur sem lýst hefur yfir vanhæfi til að starfa sem varamaður í yfirkjörstjórn.
Þorgerður Kristinsdóttir er kosin fulltrúi í hverfiskjörstjórn Álftaness í stað Andrésar Sigurðssonar sem lýst hefur yfir vanhæfi til að starfa hverfiskjörstjórn..
Þá eru eftirfarandi aðilar kosnir í undirkjörstjórn vegna yfirlýsingar kjörstjórnarfulltrúa um vanhæfi.
Hafdís Bára Kristmundsdóttir, Asparholti 5
Halldóra Pétursdóttir, Tunguási 2
Svava Kristín Þórisd. Jensen, Holtsvegi 51
Ríkey Jóna Eiríksdóttir, Hrísmóum 6
Erna Ingólfsdóttir, Löngumýri 45
17
Tillaga Garðabæjarlistans um gerð hjólreiðaáætlunar fyrir Garðabæ.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að sveitarfélagið skipi stýrihóp sem fær það verkefni að vinna drög að fimm ára hjólreiðaáætlun fyrir Garðabæ. Stefnt verði að því að drög verði tilbúin á vordögum 2023 og kynnt fyrir bæjarstjórn. Í hjólreiðaáætlun skulu vera mælanleg markmið, framkvæmdir og aðgerðir fyrir árin 2023-2028, en hún er smíðuð og sett fram í því skyni að auka hlutdeild hjólandi vegfarenda í Garðabæ.“
Greinargerð
Með samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins fylgja fjöldamörg tækifæri. Fyrirhuguð borgarlínustöð við Ásgarð mun gjörbylta aðgengi Garðbæinga að hágæða almenningssamgöngum út úr bænum, en mikilvægt er að Garðabær hafi farið í markvissa vinnu til þess að auka hlutfall þeirra sem nýta virka ferðamáta til þess að byggja undir þær framkvæmdir. Í bænum okkar eru stór tækifæri til bætinga á þessu sviði.
Hjólreiðar eru skemmtilegur, hagkvæmur og heilsusamlegur ferðamáti. Fyrir sveitarfélagið er aukin áhersla á hjólreiðar leið til þess að vinna að mörgum mikilvægum málum í einu. Hér er um að ræða lýðheilsumál (sbr. Heilsueflandi samfélag), lífsgæðamál, loftslagsmál og mál sem er til þess fallið að minnka mengun af völdum bílaumferðar. Til viðbótar er ljóst að hjólreiðaáætlun og framfylgd hennar mun auka umferðaröryggi hjólandi og gangandi vegfarenda á öllum aldri, bæta lífsgæði íbúa og bæjarbraginn.
Björg Fenger, tók til máls um framkomna tillögu og lagði til að tillögunni verði vísað til tækni- og umhverfissviðs.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls að nýju.
Gunnar Einarsson, tók til máls og lagði til að tillögu um stýrihóps verði vísað til bæjarráðs.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls. Guðfinnur nýtti tækifærið og þakkaði Gunnari fyrir samstarfið í bæjarstjórn.
Ingvar Arnarson, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóma að vísa tillögunni til tækni - og umhverfissviðs og til bæjarráðs hvað varðar skipun stýrihóps.
Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og þakkaði bæjarfulltrúum Jónu Sæmundsdóttur og Gunnari Einarssyni, sem munu láta af störfum sem bæjarfulltrúar í lok kjörtímabilsins, fyrir samstarfið í bæjarstjórn.