Beint í efni

Tillaga Garðabæjarlistans um gerð hjólreiðaáætlunar fyrir Garðabæ.

Málsnúmer 2205046

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

33. (2040). fundur

Bæjarráð samþykkir að skipa eftirfarandi einstaklinga í stýrihóp til að vinna drög að fimm ára hjólreiðaáætlun fyrir Garðabæ:

Stella Stefánsdóttir, formaður umhverfisnefndar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi.
Guðbjörg Brá Gísladóttir. deildarstjóri umhverfis og framkvæmda.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

32. (2039). fundur

Á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var 5. maí sl. var tillögunni vísað til tækni- og umhverfissviðs og til bæjarráðs hvað varðar skipun stýrihóps.

Bæjarráð vísar því til næsta fundar að skipa fulltrúa í stýrihóp.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

7. (903). fundur

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að sveitarfélagið skipi stýrihóp sem fær það verkefni að vinna drög að fimm ára hjólreiðaáætlun fyrir Garðabæ. Stefnt verði að því að drög verði tilbúin á vordögum 2023 og kynnt fyrir bæjarstjórn. Í hjólreiðaáætlun skulu vera mælanleg markmið, framkvæmdir og aðgerðir fyrir árin 2023-2028, en hún er smíðuð og sett fram í því skyni að auka hlutdeild hjólandi vegfarenda í Garðabæ.“

Greinargerð
Með samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins fylgja fjöldamörg tækifæri. Fyrirhuguð borgarlínustöð við Ásgarð mun gjörbylta aðgengi Garðbæinga að hágæða almenningssamgöngum út úr bænum, en mikilvægt er að Garðabær hafi farið í markvissa vinnu til þess að auka hlutfall þeirra sem nýta virka ferðamáta til þess að byggja undir þær framkvæmdir. Í bænum okkar eru stór tækifæri til bætinga á þessu sviði.
Hjólreiðar eru skemmtilegur, hagkvæmur og heilsusamlegur ferðamáti. Fyrir sveitarfélagið er aukin áhersla á hjólreiðar leið til þess að vinna að mörgum mikilvægum málum í einu. Hér er um að ræða lýðheilsumál (sbr. Heilsueflandi samfélag), lífsgæðamál, loftslagsmál og mál sem er til þess fallið að minnka mengun af völdum bílaumferðar. Til viðbótar er ljóst að hjólreiðaáætlun og framfylgd hennar mun auka umferðaröryggi hjólandi og gangandi vegfarenda á öllum aldri, bæta lífsgæði íbúa og bæjarbraginn.

Björg Fenger, tók til máls um framkomna tillögu og lagði til að tillögunni verði vísað til tækni- og umhverfissviðs.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls að nýju.

Gunnar Einarsson, tók til máls og lagði til að tillögu um stýrihóps verði vísað til bæjarráðs.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls. Guðfinnur nýtti tækifærið og þakkaði Gunnari fyrir samstarfið í bæjarstjórn.

Ingvar Arnarson, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóma að vísa tillögunni til tækni - og umhverfissviðs og til bæjarráðs hvað varðar skipun stýrihóps.

Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og þakkaði bæjarfulltrúum Jónu Sæmundsdóttur og Gunnari Einarssyni, sem munu láta af störfum sem bæjarfulltrúar í lok kjörtímabilsins, fyrir samstarfið í bæjarstjórn.