33. (2040). fundur
33. (2040). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
20.09.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - varamaður
- Hlynur Elías Bæringsson - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Hildigunnur Árnadóttir - yfirfélagsráðgjafi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Móttaka flóttafólks - staða mála.
Guðrún Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Garðabæ vegna móttöku flóttafólks kom á fund bæjarráðs. Guðrún gerði grein fyrir minnisblaði um móttöku flóttafólks í Garðabæ
Í lok ágústmánaðar voru 99 flóttamenn skráðir með lögheimili í Garðabæ og þar af voru 44 börn.
Fylgiskjöl
02
Fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026) - forsendur og vinnuferli.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir forsendum og vinnuferlum vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2023 (2023-2026). Fjárhagsáætlun verður lögð fram í bæjarráði 25. október 2022 og tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn 3. nóvember 2022. Síðari umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð 1. desember 2022. Bæjarráð samþykkir forsendur og vinnuferla fjárhagsáætlunar 2023.
Fylgiskjöl
03
Urriðaholtsstræti 2 (01-01)- Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Húsinu í hverfinu, kt. 571218-0380, leyfi fyrir breyttri notkun rýmis 01-01 í atvinnuhúsnæði við Urriðaholtsstræti 2.
04
Urriðaholtsstræti 2 - (2.-4. hæð) Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Húsinu í hverfinu, kt. 571218-0380, leyfi fyrir breyttri notkun rýmis á 2.-4. hæð í atvinnuhúsnæði við Urriðaholtsstræti 2.
05
Víkurgata 14- Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Magnúsi Mikaelssyni, kt. 041282-4609, leyfi til að stækka núverandi einbýlishús við Víkurgötu 14.
06
Víkurgata 17 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Óðalsteini ehf., kt. 531109-0900, leyfi til að stækka núverandi einbýlishús við Víkurgötu 17.
07
Kumlamýri 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hjálmtý Bergssyni Sandholt, kt. 250796-2939, leyfi til að byggja parhús við Kumlamýri 9.
08
Kumlamýri 11 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Alfreð Gunnarssyni Baarregaard, kt. 161172-3919, leyfi til að byggja parhús við Kumlamýri 11.
09
Kumlamýri 13 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Valdimar Ólafssyni, kt. 170559-3399, leyfi til að byggja parhús við Kumlamýri 13.
10
Kumlamýri 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gylfa Jens Gylfasyni, kt. 170574-5599, leyfi til að byggja parhús við Kumlamýri 15.
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar Urriðaholtsstræti 9.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga Urriðaholts vegna lóðarinnar Urriðaholtsstræti 9 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
12
Tilkynning frá forsætisráðuneytinu varðandi drög að upplýsingastefnu stjórnvalda til umsagnar í Samráðsgátt, dags. 14.09.22.
Lögð fram.
13
Drög að samningi við Knattspyrnusamband Íslands um aðstöðu í Miðgarði.
Lögð fram að nýju drög að samningi við Knattspyrnusamband Íslands um aðstöðu í Miðgarði.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
14
Tillaga Garðabæjarlistans um gerð hjólreiðaáætlunar fyrir Garðabæ.
Bæjarráð samþykkir að skipa eftirfarandi einstaklinga í stýrihóp til að vinna drög að fimm ára hjólreiðaáætlun fyrir Garðabæ:
Stella Stefánsdóttir, formaður umhverfisnefndar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi.
Guðbjörg Brá Gísladóttir. deildarstjóri umhverfis og framkvæmda.
Fylgiskjöl
15
Tilboð í byggingu dælustöðvar vatnsveitu í Vetrarmýri.
Eftirfarandi tilboð bárust í byggingu dælustöðvar fyrri vatnsveitu í Vetrarmýri.
Langeldur ehf. kr. 109.747.000
Fortis ehf. kr. 111.809.316
Stéttafélagið ehf. kr. 103.878.870
Kostnaðaráætlun kr. 77.797.950
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu á næsta fundi bæjarráðs.
16
Fyrirspurn Viðreisnar um framkvæmd og stöðu barnaverndarmála í Garðabæ.
Lögð fram fyrirspurn Viðreisnar um framkvæmd og stöðu barnaverndarmála í Garðabæ. Fyrirspurnin fylgdi fundarboði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.
Fylgiskjöl
17
Drög að samkomulagi við Urriðaholt ehf. um uppbyggingu lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9 - Viðauki XII.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samkomulag við Urriðaholt ehf. um uppbyggingu lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9, samkvæmt deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
18
Samskipta- og þjónustuferlar og efling stafrænnar þróunar.
Bæjarstjóri gerði nánari grein fyrir að ákveðið hefur verið að aðlaga skipulag bæjarskrifstofa að nýjum áherslum. Markmið breytinganna er að greina og styrkja allt þjónustuferli bæjarins. Auka áherslu á stafræna þróun og þjónustu, vægi miðlunar upplýsinga og samskipta við bæjarbúa og fyrirtæki í bænum.
Í tengslum við þessa skipulagsbreytingu mun Hulda Hauksdóttir, verða deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar. Hún mun leiða frekari þróun á starfsemi þjónustuvers og vinnu þess gagnvart öðrum sviðum.
Samskiptadeild er ný eining þar sem áhersla verður lögð á mikilvægi opinna og greiðra samskipta vegna aukinna samfélagslegra krafna um upplýsingar. Markmiðið er jafnframt að efla almannatengsl og samskiptastjórnun ásamt því að auka sýnileika og fanga sérstöðu bæjarins.
Starf samskiptastjóra verður auglýst laust til umsóknar 24. september nk.
Fram kom hjá bæjarstjóra að málið hefur verið kynnt starfsmönnum bæjarskrifstofa.