Víkurgata 14- Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
33. (2040). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Magnúsi Mikaelssyni, kt. 041282-4609, leyfi til að stækka núverandi einbýlishús við Víkurgötu 14.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
2. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir að gluggalaust geymslurými inn af bílskúr fari lítillega út fyrir byggingarreit neðanjarðar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað notkun þakpappa varðar á meðan litur er í gráskala. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarráð Garðabæjar
04
36. (1897). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Magnúsi Mikaelssyni, kt. 041282-4609, leyfi fyrir stækkun húss í byggingu að Víkurgötu 14.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
06
7. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi íbúðarhússins Víkurgata 14 þar sem gert er ráð fyrir stækkun byggingarreits fyrir niðurgrafna útigeymslu á bak við stoðvegg sem nær út fyrir núverandi byggingarreit. Grenndarárhrif geymslunnar eru hverfandi. Gert er ráð fyrir dyrum í stoðvegg að geymslunni.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts Vesturhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarstjórn Garðabæjar
07
1. (841).. fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis að Víkurgötu 14 þó að vikið sé frá skilmálum við útfærslu handriða og stoðveggja en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni. Þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skriflegt samþykki lóðarhafa þarf að liggja fyrir varðandi útfærslu á lóðarmörkum.
Bæjarráð Garðabæjar
08
2. (1863). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skilmálum við útfærslu handriða og stoðveggja en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni. Þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skriflegt samþykki lóðarhafa þarf að liggja fyrir varðandi útfærslu á lóðarmörkum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
16. fundur
Lögð fram tilllaga að byggingarleyfisumsókn ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Útfærslur handriða og stoðveggja víkja lítillega frá ákvæðum deiliskipulags. Umsögn deiliskipulagshöfundar er jákvæð. Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulegt frávik og gerir ekki athugasemdi við að við veitingu byggingarleyfis sé vikið frá ákvæði deiliskipulags hvað þetta varðar. Skriflegt samþykki lóðarhafa þarf að liggja fyrir varðandi útfærsltu á lóðarmörkum.
Bæjarráð Garðabæjar
10
45. (1860). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Magnúsi Mikaelssyni, kt. 041282-4609 leyfi til að byggja einbýlishús að Víkurgötu 14.