7. fundur
7. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
04.09.2019
Kl. 13:30 - 14:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson
- Anna María Guðmundsdóttir
- Eysteinn Haraldsson
- Guðjón Erling Friðriksson
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1810317
01
Víkurgata 10 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi íbúðarhússins Víkurgata 10 þar sem gert er ráð fyrir stækkun byggingarreits fyrir niðurgrafna útigeymslu á bak við stoðvegg sem nær út fyrir núverandi byggingarreit. Grenndarárhrif geymslunnar eru hverfandi. Gert er ráð fyrir dyrum í stoðvegg að geymslunni.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts Vesturhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eiganda Víkurgötu númer 8 og skal undirritað samþykki eiganda þeirrar lóðar liggja fyrir þar sem að útigeymslan liggur að lóðarmörkum. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1810318
02
Víkurgata 12 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi íbúðarhússins Víkurgata 12 þar sem gert er ráð fyrir stækkun byggingarreits fyrir niðurgrafna útigeymslu á bak við stoðvegg sem nær út fyrir núverandi byggingarreit. Grenndarárhrif geymslunnar eru hverfandi. Gert er ráð fyrir dyrum í stoðvegg að geymslunni.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts Vesturhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1806425
03
Víkurgata 14- Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi íbúðarhússins Víkurgata 14 þar sem gert er ráð fyrir stækkun byggingarreits fyrir niðurgrafna útigeymslu á bak við stoðvegg sem nær út fyrir núverandi byggingarreit. Grenndarárhrif geymslunnar eru hverfandi. Gert er ráð fyrir dyrum í stoðvegg að geymslunni.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts Vesturhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1908224
04
Keldugata 4-14 (áður 4-20) húsnúmerabreyting
Lögð fram tillaga Urriðaholts ehf að breytingu á húsnúmerum í Keldugötu í kjölfar deiliskipulagsbreytinga.
Keldugata nr.4-6 verður nr.4, Keldugata nr.8-12 verður nr.6-12 og Keldugata nr.20 verður nr.14.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts Vesturhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1904300
05
Hliðsnes - breyting húsnúmera í fasteignaskrá
Hafnað að svo stöddu.
Málsnúmer 1907239
06
Gilsbúð 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingur sem gerir ráð fyrir því að nýtingarhlutfall hækki úr 0.40 í 0.45 í samræmi við reyndarteikningar. Bílastæði á lóð eru uí samræmi við kröfur deiliskipulags.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Bæjargils í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Gilsbúðar 5 og 9 og Smiðsbúðar 6 og 8.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1908042
07
Vesturtún 55a - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn þar sem sótt er um að fá að breyta þaki bílageymslna í þaksvalir.
Deiliskipulag veitir ekki heimild til gerðar þaksvala. Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Vesturtúns í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grendarkynna skal eigendum Vesturtúns 34, 36, 38, 40, 42, 53a, 53b, 56 og 57. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.