Beint í efni

Gilsbúð 7 - Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 1907239

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

8. (1917). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Palace ehf., kt. 430507-2300, leyfi fyrir stækkun atvinnuhúsnæðis að Gilsbúð 7.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

9. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingar á atvinnuhúsnæðinu Gilsbúð 7. Hámarksnýtingarhlutfall samkvæmt skipulagsskilmálum Bæjargils er 0.4. Breyting á því deiliskipulagi var grenndarkynnt sem óveruleg breyting árið 2006 og þá gert ráð fyrir því að hámarksnýtingarhlutfall hækkaði í 0.47. Samkvæmd byggingarleyfisumsókn hækkar nýtingarhlutfall í 0.55.
Í kjölfar úrskurðar úrskurðanefndar skipulags-og byggingarmála árið 2010 telst deiliskipulag sem samþykkt var áður en fyrsta aðalskipulag Garðabæjar tók gildi ekki í gildi. Aðalskipulag Garðabæjar 1985-2005 tók gildi árið 1987 og er svæðið sem deiliskipulag Bæjargils nær til án deiliskipulags í gildi þar sem það var samþykkt árið 1984.
Í samræmi við 1.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 er byggingarleyfisumsókn vísað til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigenum Gilsbúðar 5 og 9 og og Smiðsbúðar 6 og 8.Þar sem að þeir sem grenndarkynning nær til hafa með áritun sinni lýst því yfir að þeir geri ekki athugasemd við umsóknina er frekari grenndarkynning felld niður. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi sé veitt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

13. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

04

7. fundur

Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingur sem gerir ráð fyrir því að nýtingarhlutfall hækki úr 0.40 í 0.45 í samræmi við reyndarteikningar. Bílastæði á lóð eru uí samræmi við kröfur deiliskipulags.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Bæjargils í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Gilsbúðar 5 og 9 og Smiðsbúðar 6 og 8.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.