Beint í efni

9. fundur

08.10.2019
afgreiðslufundir skipulagsstjóra

9. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

08.10.2019

Kl. -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Anna María Guðmundsdóttir
  • Eysteinn Haraldsson
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1907239

01

Gilsbúð 7 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingar á atvinnuhúsnæðinu Gilsbúð 7. Hámarksnýtingarhlutfall samkvæmt skipulagsskilmálum Bæjargils er 0.4. Breyting á því deiliskipulagi var grenndarkynnt sem óveruleg breyting árið 2006 og þá gert ráð fyrir því að hámarksnýtingarhlutfall hækkaði í 0.47. Samkvæmd byggingarleyfisumsókn hækkar nýtingarhlutfall í 0.55.

Í kjölfar úrskurðar úrskurðanefndar skipulags-og byggingarmála árið 2010 telst deiliskipulag sem samþykkt var áður en fyrsta aðalskipulag Garðabæjar tók gildi ekki í gildi. Aðalskipulag Garðabæjar 1985-2005 tók gildi árið 1987 og er svæðið sem deiliskipulag Bæjargils nær til án deiliskipulags í gildi þar sem það var samþykkt árið 1984.

Í samræmi við 1.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 er byggingarleyfisumsókn vísað til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigenum Gilsbúðar 5 og 9 og og Smiðsbúðar 6 og 8.Þar sem að þeir sem grenndarkynning nær til hafa með áritun sinni lýst því yfir að þeir geri ekki athugasemd við umsóknina er frekari grenndarkynning felld niður. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi sé veitt.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 1909297

02

Sveinskotsvör 5 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur íbúðarhúss fari 2,9 m2 út fyrir byggingarreit að vestanverðu.

Þar sem að hér er um breytingu að ræða þar sem hagsmunir nágranna skerðast í engu varðandi útsýni, landnotkun skuggavarp eða innsýn gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 1908136

03

Hörgslundur 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram byggingarleyfisumsókna um viðbyggingu við íbúðarhús. Tillagan er innan marka ákvæða tillögu að deiliskipulagi sem enn hefur ekki tekið gildi en byggir á eldri deiliskiplagsákvæðum.

Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.

Grenndarkynna skal eigendum Hörgslundar 3, 4, 6, 7 og 8 sem og Reynilundar 4,6 og 8.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 1908480

04

Urriðaholtsstræti 40-42 - Fjölgun íbúða. Urriðaholt, 3. áfangi norður og háholt. Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram beiðni um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að lóðinni Urriðaholtsstræti 40-42 verði skipt upp í tvær lóðir, Urriðaholtsstræti 40 og Urriðaholtsstræti 42 enda gerir umsókn um byggingarleyfi ráð fyrir tveimur sjálfstætt standand húsum með sitt hvorri bílageymslunni án innri tenginga.

Skipulagstjóri metur tillögu að uppskiptingu lóðarinnar sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 3 í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og og sveitarfélagsins er grenndarkynning felld niður sbr.3.mgr.44.gr.sömu laga.

Málsnúmer 1908224

05

Keldugata 4-14 (áður 4-20) húsnúmerabreyting

Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að lóðin Keldugata 6-12 skiptist upp í 4 raðhúsalóðir, Keldugötu 6, Keldugötu 8, Keldugötu 10 og Keldugötu 12. Deiliskipulag gerir ráð fyrir 4 íbúðum í raðhúslengju á einni lóð.

Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Vesturhluta sbr.2.mgr.43.gr.Skipulagslagaa nr.123/2010. Í samræmi við 3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annara en umsækjanda og Garðabæjar.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.