Urriðaholtsstræti 40-42 - Fjölgun íbúða. Urriðaholt, 3. áfangi norður og háholt. Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
01
9. fundur
Lögð fram beiðni um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að lóðinni Urriðaholtsstræti 40-42 verði skipt upp í tvær lóðir, Urriðaholtsstræti 40 og Urriðaholtsstræti 42 enda gerir umsókn um byggingarleyfi ráð fyrir tveimur sjálfstætt standand húsum með sitt hvorri bílageymslunni án innri tenginga.
Skipulagstjóri metur tillögu að uppskiptingu lóðarinnar sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 3 í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og og sveitarfélagsins er grenndarkynning felld niður sbr.3.mgr.44.gr.sömu laga.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
14. (854). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Urriðaholtsstræti 40-42 um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna fjölgunar íbúða.
Bæjarráð Garðabæjar
03
36. (1897). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Urriðaholtsstræti 40-42 um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna fjölgunar íbúða.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
13. fundur
Lögð fram fyrirspurn um breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða um eina, úr 19 í 20 íbúðir. Lögð fram umsögn skipulagshöfunda og Urriðaholts ehf sem skipulagsnefnd óskaði eftir.
Skipulagsnefnd telur rétt að bóka : Þó að koma megi auknu magni íbúða fyrir á lóð án aukins byggingarmagns þá eru lóðirnar seldar miðað við ákveðið byggingarmagn og ákveðin fjölda íbúða og því má telja eðlilegt er að þeir sem kaupa slikar lóðir haldi sig innan þessara heimilda. Enda telur skipulagsnefnd slíkt skipta miklu með tilliti til uppbyggingar samgangna, skóla og leikskóla í hverfinu. Eins þarf hlutfall á milli stærða ibuða að haldast.
Svar skipulagsnefndar er því neikvætt.
Í umsögn er mælt með því að lóðinni sé skipt í tvennt ef byggja á samkvæmt tillögunni. Skiplagsnefnd tekur undir það.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum fundarlið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
12. fundur
Lögð fram umsókn um deiliskiplagsbreytingu þar sem íbúðum er fjölgað um 1 án þess að byggingarmagn sé aukið.
Vísað til umsagnar hjá deiliskipulagshöfundi.
Baldur Ó Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.