14. (854). fundur
14. (854). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu
03.10.2019
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - varamaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - aðalmaður
- Valborg Ösp Á. Warén - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Guðjón Pétur Lýðsson - varamaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.
Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 19. september 2019 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 24/9 ´19.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála:
1.6 - 1908480 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 40-42.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Urriðaholtsstræti 40-42 um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna fjölgunar íbúða.
Fylgiskjöl
1.7 - 1906365 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 55.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Holtsvegi 55 um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna fjölgunar íbúða.
Fylgiskjöl
1.8 - 1903374 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um lýsingu vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er varðar norðurnes Álftaness.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um lýsingu vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga er tekur til svæðis á norðurnesi Álftaness. Samhliða verður unnið að gerð deiliskipulags fyrir sama svæði.
Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum. Jafnframt skal lýsingin kynnt almenningi.
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 1/10 ´19.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 12. tl., bréf Trés lífsins um minningagarð og 9. tl., bréf Starfsmannafélags Garðaskóla varðandi óviðunandi aðstöðu í eldhúsi
Fundargerðin sem er 20 tl. er samþykkt samhljóða.
03
Fundargerð skipulagsnefndar frá 20/9 ´19.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., nýtt leiðanet Strætó bs.
Fundargerðin er lögð fram.
04
Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla frá 19/9 ´19.
Valborg Ösp Á Warén, ræddi 1. tl., kynningu á skólastarfi og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:
Fjöldi nemenda við nám hjá Tónlistarskóla Garðabæjar eru 470 samkvæmt upplýsingum frá skólastjórnenda.
-Hversu mörg börn eru á biðlista hjá Tónlistarskóla Garðabæjar?
-Er á áætlun að taka á þeim húsnæðisvanda sem Tónlistarskóli Garðabæjar býr við?
Fundargerðin er lögð fram.
06
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 30/8 ´19.
Björg Fenger, ræddi 4. tl., nýtt leiðanet og 5. tl., akstursþjónustu fatlaðs fólks.
Gunnar Einarsson, ræddi 5. tl., akstursþjónustu fatlaðs fólks. Gunnar gerði grein fyrir tillögum er hann hefur lagt fram í stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga og varða starfsemi Jöfnunarsjóðs og reglur um úthlutun framlaga.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 4. tl., nýtt leiðanet.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., útboð vegna vagnakaupa.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 5. tl., akstursþjónustu fatlaðs fólks og tillögur um úttekt á starfsemi Jöfnunarsjóðs. Guðfinnur vék að opnun íbúðakjarna við Unnargrund sem hann kvað mikið fagnaðarefni í búsetumálum fatlaðs fólks.
Fundargerðin er lögð fram.
07
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 27/9 ´19.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., úttekt á verkferlum og fyrirkomulagi og 7. tl., notkun metan hjá Strætó bs.
Ingvar Arnarson, ræddi 7. tl., notkun metan hjá Strætó bs..
Björg Fenger, ræddi 7. tl., notkun metan hjá Strætó bs..
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi að nýju 7. tl., notkun metan hjá Strætó bs.. Þá ræddi Jóna 1. tl., fjármögnun
Tækjabúnaðar.
Ingvar Arnarson, ræddi að nýju 7. tl., notkun metan hjá Strætó bs..
Sigurður Guðmundsson, ræddi 7. tl., notkun metan hjá Strætó bs..
Björg Fenger, ræddi að nýju 7. tl., notkun metan hjá Strætó bs.
Fundargerðin er lögð fram.
08
Fundargerðir stjórnar SSH frá 9/9 og 25/9 ´19.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., fg. frá 25/9, aðalfund 2019.
Gunnar Einarsson ræddi 2. tl., fg. frá 25/9, aðalfund 2019 og upplýsti að á aðalfundinum mun fara fram umræða um málefni og stöðu byggðasamlaganna.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 2. tl., fg. frá 25/9, aðalfund 2019 og vék að starfsemi og reglum Jöfnunarsjóðs.
Fundargerðin er lögð fram.
09
Jafnlaunastefna 2019
Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir forsendum og markmiðum tillögu að jafnlaunastefnu Garðabæjar.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi tillögu að jafnlaunastefnu Garðabæjar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða jafnlaunastefnu Garðabæjar.
10
Samkomulag um skipulag og fjármögnun uppbyggingar á samgönguinnviðum.
Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir helstu atriðum samkomulagsins. Gunnar lagði til að því verði vísað til síðari umræðu á næsta fundi bæjarstjórnar.
Guðjón Pétur Lýðsson, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.
Gunnar Valur Gíslason tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.
Gunnar Einarsson, tók til máls að nýju.
Sigurður Guðmundsson, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.
Björg Fenger, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.
Valborg Ösp Á Warén, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa samkomulagi ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um skipulag og fjármögnun uppbyggingar á samgönguinnviðum, sem undirritað var af fulltrúum sveitarfélaganna 26. september sl., til síðari umræðu í bæjarstjórn, sbr. 3. tl. 1. mgr. 14. gr. samþykktar um stjórn Garðabæjar.
Forseti óskaði Guðjóni Pétri Lýðssyni til hamingju með jómfrúarræðu í bæjarstjórn Garðabæjar en Guðjón Pétur situr sinn fyrsta bæjarstjórnarfund.