Beint í efni

Samkomulag um skipulag og fjármögnun uppbyggingar á samgönguinnviðum. (síðari umræða)

Málsnúmer 1909437

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

15. (855). fundur

Gunnar Einarsson, tók til máls og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja samkomulagið.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.

Björg Fenger, tók til máls og lýsti ánægju með að samkomulagið geri m.a. ráð fyrir framlengingu á gildistíma tilraunaverkefnis til eflingar almenningssamgangna til 12 ára og að í tengslum við uppbyggingu samgönguinnviða verði horft til uppfærðra rekstraráætlana almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðisins þ.m.t. um rekstur Borgarlínu. Mikilvægt er að þátttaka ríkisins verði tryggð að verkefninu allt tímabilið.

Valborg Ósk Á Warén, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið og þakkaði öllum sem komu að verkefninu fyrir þeirra störf. Valborg lagði fram eftirfarandi bókun.

„Garðabæjarlistinn fagnar sáttmála sveitarfélaganna um almenningssamgöngur. Hér er um gríðarlega mikla samgöngubót að ræða sem til lengri tíma litið mun um leið styðja við fleiri valkosti ungs fólk til búsetu hvar sem er á höfuðborgarsvæðinu. Garðabæjarlistinn fagnar því einnig að sjá stuðning, sérstaklega ungs fólks og kvenna, við borgarlínu sem varpar enn frekar ljósi á mikilvægi þjónustunnar og ekki síður þeirri staðreynd að bættar almenningssamgöngur bæta þjónustu við konur sérstaklega þar sem þær nýta ferðamátann í meiri mæli en karlar. Hér er því um leið mikið jafnréttismál.“

Almar Guðmundsson, tók til máls og fagnaði samkomulaginu.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið. Guðfinnur vék að mikilvægi uppbyggingar samgöngumannvirkja á höfuðborgarsvæðinu út frá öryggissjónarmiðum.

Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.

Jóna Sæmundsdóttir, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.

Stella Stefánsdóttir, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.

Sigurður Guðmundsson, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls að nýju.

Ingvar Arnarson, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samkomulagið.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

14. (854). fundur

Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir helstu atriðum samkomulagsins. Gunnar lagði til að því verði vísað til síðari umræðu á næsta fundi bæjarstjórnar.

Guðjón Pétur Lýðsson, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.

Gunnar Valur Gíslason tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.

Gunnar Einarsson, tók til máls að nýju.

Sigurður Guðmundsson, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.

Björg Fenger, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.

Valborg Ösp Á Warén, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa samkomulagi ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um skipulag og fjármögnun uppbyggingar á samgönguinnviðum, sem undirritað var af fulltrúum sveitarfélaganna 26. september sl., til síðari umræðu í bæjarstjórn, sbr. 3. tl. 1. mgr. 14. gr. samþykktar um stjórn Garðabæjar.

Forseti óskaði Guðjóni Pétri Lýðssyni til hamingju með jómfrúarræðu í bæjarstjórn Garðabæjar en Guðjón Pétur situr sinn fyrsta bæjarstjórnarfund.

Bæjarráð Garðabæjar

03

37. (1898). fundur

Á fund bæjaráðs mættu Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH og Hrafnkell Á. Proppé, svæðisskipulagsstjóri SSH og gerðu grein fyrir helstu atriðum í samkomulagi ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinum um fjármögnun uppbyggingar á samgönguinnviðum.

Bæjarráð samþykkir að vísa samkomulaginu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Björg Fenger, bæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.