37. (1898). fundur
37. (1898). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
01.10.2019
Kl. 08:00 - 09:40
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Samkomulag um skipulag og fjármögnun uppbyggingar á samgönguinnviðum, dags. 26.09.19.
Á fund bæjaráðs mættu Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH og Hrafnkell Á. Proppé, svæðisskipulagsstjóri SSH og gerðu grein fyrir helstu atriðum í samkomulagi ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinum um fjármögnun uppbyggingar á samgönguinnviðum.
Bæjarráð samþykkir að vísa samkomulaginu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Björg Fenger, bæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
02
Drög að jafnlaunastefnu Garðabæjar.
Á fund bæjarráðs mætti Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri og gerði grein fyrir drögum að jafnlaunastefnu ásamt því að fara yfir stöðu á vinnu við undirbúning að jafnlaunavottun.
Bæjarráð vísar drögum að jafnlaunastefnu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
03
Hraungata 21 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita Hafsteini ehf., kt. 411069-0289, leyfi fyrir byggingu fjölbýlishúss með 11 íbúðum að Hraungötu 21.
04
Heiðarlundur 15 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita Hallgrími Sigurðssyni, kt. 010678-4719 leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi einbýlishús að Heiðarlundi 15.
05
Þernunes 13 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Grétari Má Pálssyni, kt. 060389-2419, leyfi fyrir innri breytingum við núverandi einbýlishús að Þernunesi 13.
06
Bréf Bergsins headspace varðandi rekstrarstyrk, dags. 16.09.19.
Bæjarráð vísar erindinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Fylgiskjöl
07
Bréf Skáksambands Íslands varðandi styrk vegna Evrópukeppni landsliða 2019, dags. 20.09.19.
Bæjarráð vísar erindi um styrk til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
08
Bréf NPA miðstöðvarinnar varðandi kröfu um hækkun á framlagi, dags. 19.09.19.
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs, dags. 19.09.2019.
Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði sviðsstjóra fjölskyldusviðs um hækkun á jafnaðartexta sem gildi frá 01.01.2019.
Fylgiskjöl
09
Bréf Starfsmannafélags Garðaskóla vegna óviðunandi aðstöðu í eldhúsi starfsmanna, dags 24.09.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjarhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Fylgiskjöl
10
Bréf félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla varðandi rekstrarstyrk, dags. 25.09.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar menningar- og safnanefndar og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjarhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Fylgiskjöl
11
Bréf Norræna félagsins í Garðabæ um styrk vegna vinabæjarmóts árið 2020, dags. 25.09.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjarhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Fylgiskjöl
12
Bréf Trés lífsins um minningagarð, dags. 20.09.19.
13
Fundargerð aðalfundar fulltrúaráðs EBÍ, dags. 20.09.19.
14
Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2019, dags. 18.09.19.
Lagt fram.
Almar Guðmundsson, vék af fundi kl. 09:25. Gunnar Einarsson, tók sæti hans á fundinum.
Fylgiskjöl
15
Tillaga Garðabæjarlistans um virkjun til atvinnuþátttöku.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til nánari útfærslu hjá fjölskylduráði.
Fylgiskjöl
16
Tillaga Garðabæjarlistans um heildar stefnumótun fyrir sveitarfélagið.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar
Fylgiskjöl
17
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um skráningu einstaklinga (heildarlög), 101. mál., dags. 26.09.19.
Lagt fram.
18
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988 (endurgreiðslu virðisaukaskatts), 26. mál., dags. 26.09.19.
Lagt fram.
19
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um rannsóknir á þunglyndi meðal eldri borgara 22. mál., dags. 26.09.19.
Lagt fram.
20
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um ráðstafanir til hagkvæmra uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta, 122. mál., dags. 25.09.19.
Lagt fram.