Afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi styrk til stuðnings við vefsíðugerð, skráningu upplýsnga o.fl.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
39. (1900). fundur
Lögð fram til kynningar samþykkt menningar- og safnanefndar um að veita Félagi áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla styrk að fjárhæð kr. 325.000.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
15. fundur
Erindi Félags áhugamanna um sögu Bessastaskóla tekið fyrir.
Bréf Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla, dags. 25. september 2019, um styrkbeiðni vegna fræðslufundar, vefsíðugerðar og varðveislu gagna lagt fram. Erindið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs 1. október sl. og vísað til umfjöllunar menningar- og safnanefndar og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð 325 000 kr fyrir árlegan fræðslufund 26. október nk. og varðveislu gagna er tengjast sögu félagsins.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
03
37. (1898). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar menningar- og safnanefndar og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjarhagsáætlunar fyrir árið 2020.