Áskorun til sveitarfélaga um að fara eftir ákvæðum reglugerðar um framkvæmd notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar.
Ferill máls
Fjölskylduráð Garðabæjar
01
10. fundur
Mál nr. 1904077 lagt fram, áskorun til sveitarfélaga um að fara eftir ákvæðum reglurgerðar um framkvæmd notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar. Fjölskylduráð fjallar um málið. Bæjarráð samþykkti tillögu í minnisblaði sviðsstjóra fjölskyldusviðs um hækkun á jafnaðartaxta sem tekur gildi frá 01.01.2019. Beðið verður með að leggja fram reglur um NPA í Garðabæ sem og nokkrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu í ljósi álitaefna sem risið hafa í fjárhagslegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga.
Bæjarráð Garðabæjar
02
37. (1898). fundur
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs, dags. 19.09.2019.
Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði sviðsstjóra fjölskyldusviðs um hækkun á jafnaðartexta sem gildi frá 01.01.2019.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
03
28. (1889). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar hjá fjölskyldusviði.
Fylgiskjöl
Fjölskylduráð Garðabæjar
04
5. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1904077, Áskorun NPA miðstöðvarinnar til sveitarfélaga um að fara eftir ákvæðum reglugerðar um framkvæmd notendastýrðar persónulegrar aðstoðar. Farið var yfir þær kröfur sem NPA miðstöðin setti fram í erindi sínu og svarbréf Sambands íslenskra sveitarfélaga við bréfi NPA miðstöðvarinnar. Fram komu upplýsingar um yfirstandandi vinnu á fjölskyldusviði Garðabæjar vegna innleiðingar nýrra reglna um NPA á grundvelli laga nr. 38/2018 um þjónustu við fólk með langvarandi stuðningsþarfir og reglugerðar nr. 1250/2018 um NPA.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
05
2. fundur
Lagt er fyrir mál nr. 1904077, áskorun til sveitarfélaga um að fara eftir ákvæðum reglugerðar um framkvæmd notendastýrðar persónulegrar aðstoðar. Farið yfir þau atriði sem gerðar voru athugasemdir við í erindi NPA miðstöðvarinnar og viðbrögð Sambands íslenskra sveitarfélaga við erindinu. Upplýst var um yfirstandandi vinnu á fjölskyldusviði Garðabæjar vegna gerð nýrra reglna um NPA á grundvelli laga nr. 38/2018 um þjónustu við fólk með langvarandi stuðningsþarfir og reglugerðar nr. 1250/2018 um notendastýrða persónulega aðstoð.
Bæjarráð Garðabæjar
06
16. (1877). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í fjölskylduráði.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
07
14. (1875). fundur
Lögð fram og vísað til kynningar í fjölskylduráði og samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.