10. fundur
10. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
16.10.2019
Kl. 16:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
Ritari
- Hildigunnur Árnadóttir
Dagskrá
01
Kynning frá Þroskahjálp varðandi rekstur íbúakjarna
Aðilar frá Þroskahjálp kynna rekstrarfyrirkomulag búsetukjarna.
Á fund fjölskylduráðs komu Bryndís Snæbjörnsdóttir og Friðrik Sigurðsson frá Þroskahjálp og kynntu sína nálgun varðandi rekstur íbúakjarna fyrir fatlað fólk. Undir þessum dagskrárlið sátu aðilar úr samráðshópi um málefni fatlaðs fólks og umsjónarþroskaþjálfi.
02
Beiðni um umsögn vegna umsóknar um leyfi sem fósturforeldri
Umsögn vegna umsóknar um leyfi til að gerast fósturforeldri.
Mál nr. 1908185 lagt fram, beiðni um umsögn vegna umsóknar um leyfi til að gerast fósturforeldri. Fjölskylduráð fjallaði um málið á grundvelli fyrirliggjandi gagna og umsagnar félagsráðgjafa. Nánar er fjallað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
03
Beiðni um umsögn vegna umsóknar um hæfni sem fósturforeldrar
Umsögn vegna umsóknar um leyfi til að gerast fósturforeldrar.
Mál nr. 1909143 lagt fram, beiðni um umsögn vegna umsóknar um leyfi sem fósturforeldrar. Fjölskylduráð fjallaði um málið á grundvelli fyrirliggjandi gagna og umsagnar félagsráðgjafa. Nánar er fjallað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
04
Tvöföld skólavist barns í leik eða grunnskóla
Mál nr. 1910018 lagt fram til kynningar, leiðbeinandi álit Sambands íslenskra sveitarfélaga um tvöfalda skólavist barns. Fjölskylduráð fjallaði um málið.
05
Tillaga Garðabæjarlistans um virkjun til atvinnuþátttöku
Mál nr. 1909427 lagt fram til útfærslu, tillaga Garðabæjarlistans um virkjun til atvinnuþátttöku. Fjölskylduráð tekur jákvætt í tillöguna og felur sviðstjóra fjölskyldusviðs að skoða með hvaða hætti er hægt að stuðla að aukinni virkni einstaklinga sem fá fjárhagsaðstoð.
06
Áskorun til sveitarfélaga um að fara eftir ákvæðum reglugerðar um framkvæmd notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar.
Mál nr. 1904077 lagt fram, áskorun til sveitarfélaga um að fara eftir ákvæðum reglurgerðar um framkvæmd notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar. Fjölskylduráð fjallar um málið. Bæjarráð samþykkti tillögu í minnisblaði sviðsstjóra fjölskyldusviðs um hækkun á jafnaðartaxta sem tekur gildi frá 01.01.2019. Beðið verður með að leggja fram reglur um NPA í Garðabæ sem og nokkrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu í ljósi álitaefna sem risið hafa í fjárhagslegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga.
07
Jafnréttisstefna Garðabæjar 2019-2022
Drög að jafnréttisstefnu og framkvæmdaáætlun lögð fram til kynningar og umræðu.
Mál nr. 1909205, drög að jafnréttisstefnu og framkvæmdaáætlun lögð fram til kynningar og umræðu. Formanni og starfsmönnum er falið að vinna úr athugasemdum fjölskylduráðs varðandi jafnréttisstefnuna og framkvæmdaáætlun.