5. fundur
5. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
22.05.2019
Kl. 16:00 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
Ritari
- Hildigunnur Árnadóttir
Dagskrá
01
Áskorun til sveitarfélaga um að fara eftir ákvæðum reglugerðar um framkvæmd notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar.
Tekið er fyrir mál nr. 1904077, Áskorun NPA miðstöðvarinnar til sveitarfélaga um að fara eftir ákvæðum reglugerðar um framkvæmd notendastýrðar persónulegrar aðstoðar. Farið var yfir þær kröfur sem NPA miðstöðin setti fram í erindi sínu og svarbréf Sambands íslenskra sveitarfélaga við bréfi NPA miðstöðvarinnar. Fram komu upplýsingar um yfirstandandi vinnu á fjölskyldusviði Garðabæjar vegna innleiðingar nýrra reglna um NPA á grundvelli laga nr. 38/2018 um þjónustu við fólk með langvarandi stuðningsþarfir og reglugerðar nr. 1250/2018 um NPA.
02
Snjallvæðing Garðabæjar
Lagt er fram mál nr. 1802205, snjallvæðing Garðabæjar. Farið yfir minnisblað um málið sem lagt var fram af tækni- og umhverfissviði og upplýsingadeild Garðabæjar um lausnir sem í boði eru í átt að frekari snjallvæðingu sveitarfélagsins. Fjölskylduráð leggur áherslu á að velferðartækni verði nýtt til að efla stuðningsþjónustu á fjölskyldusviði, til dæmis í málefnum fatlaðs fólks og aldraðra, sbr. meðal annars stefnu bæjarins um málefni eldri borgara. Sviðsstjóra fjölskyldusviðs falið að fylgja málinu eftir og leggja fram drög að aðgerðaráætlun þess efnis á fundi fjölskylduráðs í september.
03
Skýrslu sérfræðihóps um málefni fatlaðra barna
Lagt er fram mál nr. 1905119, skýrsla sérfræðihóps um málefni fatlaðra barna. Í skýrslunni koma fram fjölmargar ábendingar frá börnunum sjálfum sem meðal annars lúta að mikilvægi þess að hlusta á raddir fatlaðra barna, að leitað sé eftir sjónarmiðum þeirra og reynslu í tengslum við ákvarðanir sem þau varða, aðgengi, ferðaþjónustu, upplýsingagjöf, tómstundastarf, fordóma og virðingu í samskiptum svo fátt eitt sé nefnt. Fjölskylduráð telur að þessar ábendingar séu mikilvægur leiðarvísir fyrir alla þá sem koma að starfi eða ákvarðanatökum í málefnum fatlaðra barna. Efni skýrslurnnar verður rætt áfram m.a. á fundi samráðshóps um málefni fatlaðs fólks.
04
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Tekið er fyrir mál nr.1904076, umsókn um fjárhagsaðstoð. Fjölskylduráð fjallar um málið. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
05
NPA (notendastýrð persónul. aðstoð) 2018
Málskot lagt fram vegna umsóknar um fjölgun NPA vinnustunda.
Málskot til fjölskylduráðs Garðabæjar vegna ákvörðunar afgreiðslufundar um úthlutaðar NPA vinnustundir. Sólveig Steinsson kom inn á fundinn undir þessum lið.
Nánar er bókað um málið í trúnaðarhluta fundargerðar.
06
Tillaga um eflingu lýðræðislegra vinnubragða í tenglsum við afgreiðslu á fjárhagsáætlun 2019.
Fjallað um stöðu lýðræðisverkefnisins "Betri Garðabær" en kosning er að hefjast. Þá var farið yfir endurskoðun lýðræðisstefnu bæjarins en undirbúningsnefnd um verkefnið mun hefja störf á næstu vikum. Frekari upplýsingar um framkvæmd verkefnisins munu koma fyrir fjölskylduráð á næstu mánuðum.