Skýrslu sérfræðihóps um málefni fatlaðra barna
Ferill máls
Fjölskylduráð Garðabæjar
01
5. fundur
Lagt er fram mál nr. 1905119, skýrsla sérfræðihóps um málefni fatlaðra barna. Í skýrslunni koma fram fjölmargar ábendingar frá börnunum sjálfum sem meðal annars lúta að mikilvægi þess að hlusta á raddir fatlaðra barna, að leitað sé eftir sjónarmiðum þeirra og reynslu í tengslum við ákvarðanir sem þau varða, aðgengi, ferðaþjónustu, upplýsingagjöf, tómstundastarf, fordóma og virðingu í samskiptum svo fátt eitt sé nefnt. Fjölskylduráð telur að þessar ábendingar séu mikilvægur leiðarvísir fyrir alla þá sem koma að starfi eða ákvarðanatökum í málefnum fatlaðra barna. Efni skýrslurnnar verður rætt áfram m.a. á fundi samráðshóps um málefni fatlaðs fólks.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
02
2. fundur
Mál lagt fram nr. 1905119, skýrsla sérfræðihóps um málefni fatlaðra barna. Farið yfir efni skýrslunnar og þær fjölmörgu ábendingar sem koma frá börnum og byggja á þeirra reynslu m.a. mikilvægi þess að leitað sé eftir sjónarmiðum þeirra og reynslu í tengslum við ákvarðanir sem þau varða, aðgengi, ferðaþjónustu, upplýsingagjöf, tómstundastarf, fordóma og virðingu í samskiptum svo fátt eitt sé nefnt. Rætt var um stuðning við fötluð börn á sumarnámskeið í Garðabæ, rætt um mikilvægi þess að fötluð börn hafi tryggt aðgengi að aðila innan skóla sem gæti hagsmuna þeirra, rætt um mikilvægi þess að íþrótta- og tómstundafélögin mæti þröfum barna til íþróttaiðkunar og virkni. Fjölskyldusvið Garðabæjar mun kynna ábendingarnar fyrir starfsmönnum og fylgja því eftir að tekið verði tillit til þeirra í öllu er varðar málefni fatlaðra barna.