15. (855). fundur
15. (855). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu
17.10.2019
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - forseti bæjarstjórnar
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - varamaður
- Stella Stefánsdóttir - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Valborg Ösp Á. Warén - varamaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.
Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 3. október 2019 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 8/10´19.
Ingvar Arnarson, ræddi 20. tl., bréf Styrktarsjóðs Garðasóknar um framlag og ársreikning.
Gunnar Einarson, ræddi 20. tl., bréf Styrktarsjóðs Garðasóknar um framlag og ársreikning.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 14. tl., tilkynningu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um birtingu frumvarps til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og sveitarstjórnarlögum.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 4. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Hraungötu 8 (áður 10). Sigurður upplýsti að borist hafi greinargerð frá umsækjanda vegna framkominna athugasemda í grenndarkynningu og umsögn deiliskipulagshönnuða. Sigðurður lagði til að umsókninni verði vísað að nýju til umfjöllunar skipulagsnefndar. Þá ræddi Sigurður 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna umsóknar um fjölgun íbúða.
Almar Guðmundsson, ræddi 10. - 13. tl., bréf Stjörnunnar um viðhald og framkvæmdir við Stjörnuvöll o.fl. Þá ræddi Almar 14. tl., tilkynningu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um birtingu frumvarps til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og sveitarstjórnarlögum.
Fundargerðin sem er 25 tl. er samþykkt samhljóða.
1.3 - 1709349 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að Reynilundi 11.
Bæjarstjórn samþykkir að tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Reynilundi 11 um byggingarleyfi. Umsókn um byggingarleyfi hefur verið grenndarkynnt og bárust athugasemdir þar sem umsókninni var mótmælt. Ingvar Arnarson situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
1.4 - 1706258 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Hraungötu 8 (áður 10).
Bæjarstjórn samþykkir að vísa afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna gustlokunar svala hússins að Hraungötu 8 að nýju til nefndarinnar með vísan til nýrra gagna í málinu.
Fylgiskjöl
1.5 - 1907203 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi fyrirspurn um breytingu á bifreiðastæðum við Nýhöfn 1-3.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna erindi húsfélagsins að Nýhöfn 1-5 um breytingar á bílastæðum.
Fylgiskjöl
1.6 - 1907004 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Hraungötu 15-19.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Hraungötu 15-19 um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna fjölgunar íbúða.
Fylgiskjöl
1.7 - 1908434 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fjölbýlishúss við Hraungötu 2-6.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að sorpgeymslur verði staðsettar við lóðarmörk raðhúsalóðanna við Hraungötu 2-6 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
1.8 - 1710083 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi heiti á götu á Stórásreit.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að heiti götu á Stórásreit verði Eskiás.
Fylgiskjöl
1.9 - 1504148 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Lundahverfi.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa að nýju tillögu að deiliskipulagi Lundahverfis, samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 15/10´19.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., afgreiðslu menningar- og safnanefndar varðandi minjagarð á Hofsstöðum.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., afgreiðslu menningar- og safnanefndar varðandi minjagarð á Hofsstöðum.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., afgreiðslu menningar- og safnanefndar varðandi minjagarð á Hofsstöðum.
Almar Guðmundsson, ræddi 7. tl., bréf Vegagerðarinnar um yfirfærslu Vífilsstaðavegar Elliðavatnsvegar og Arnarnesvegar til Garðabæjar.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., afgreiðslu menningar- og safnanefndar varðandi minjagarð á Hofsstöðum, 4. tl., afgreiðslu menningar- og safnanefndar varðandi styrk til Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla, 6. tl., bréf Bocciu félagsins varðandi þakkir fyrir styrk vegna þátttöku á Landsmóti UMFÍ og 11. tl., gjöf á jólatré frá vinabænum Asker.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. tl., afgreiðslu menningar- og safnanefndar varðandi styrk til Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla. og 7. tl., bréf Vegagerðarinnar um yfirfærslu Vífilsstaðavegar Elliðavatnsvegar og Arnarnesvegar til Garðabæjar.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 4. tl., afgreiðslu menningar- og safnanefndar varðandi styrk til Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla.
Gunnar Einarsson, ræddi almennt menningarmál og störf menningar- og safnanefndar. Þá ræddi Gunnar 7. tl., bréf Vegagerðarinnar um yfirfærslu Vífilsstaðavegar, Elliðavatnsvegar og Arnarnesvegar til Garðabæjar og 1. tl. gjöf á jólatré frá vinabænum Asker.
Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða.
04
Fundargerð fjölskylduráðs frá 2/10´19.
Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., jafnréttisáætlun og 1. tl. kynningu á öldrunar- og heimaþjónustu í Garðabæ.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., kynningu á öldrunar- og heimaþjónustu í Garðabæ og 2. tl., jafnréttisáætlun.
Almar Guðmundsson ræddi að nýju 1. tl., kynningu á öldrunar- og heimaþjónustu í Garðabæ og 2. tl., jafnréttisáætlun.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi að nýju 2. tl., jafnréttisáætlun.
Björg Fenger, ræddi 2. tl., jafnréttisáætlun og sagði frá vinnu íþrótta- og tómstundaráðs við endurskoðun forvarnarstefnu.
Gunnar Einarsson ræddi 2. tl., jafnréttisáætlun og sagði frá vinnu mannauðs- og kjaradeildar við undirbúning jafnlaunavottunar fyrir Garðabæ.
Fundargerðin lögð fram.
05
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 4/10´19.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., minjagarð við Hofsstaði, 3. tl., beiðni um styrk til leiksýningar, 4. tl., beiðni um stuðning við fræðslufund, vefsíðugerð o.fl., 5. tl., Tónlistarveislu í skammdeginu, 6. tl. sameiginlegan fund með skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar og 7. tl., verkefni menningar- og safnanefndar 2019-2020.
Björg Fenger, ræddi 7. tl., verkefni menningar- og safnanefndar 2019-2020 og hrósaði öflugu starfi Bókasafns Garðabæjar.
Fundargerðin lögð fram.
07
Fundargerð skólanefndar frá 11/10´19.
Valborg Ösp Á Warén, ræddi 5. tl., innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.
Björg Fenger, ræddi 4. tl., öryggismál í grunnskólum Garðabæjar.
Gunnar Einarsson ræddi 4. tl. öryggismál í grunnskólum Garðabæjar.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 3. tl., ársskýrslur grunnskóla 2018-2019.
Fundargerðin lögð fram.
08
Fundargerð eigendafundar Sorpu bs.frá 7/10´19.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., heildarlausn í úrgangsmálum.
Fundargerðin lögð fram.
10
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 1/10´19.
Björg Fenger, ræddi 2. tl., fjárhagsáætlun skíðasvæðanna 2020 og 3. tl., tillögu að gjaldskrá fyrir árið 2020.
Fundargerðin lögð fram.
13
Samkomulag um skipulag og fjármögnun uppbyggingar á samgönguinnviðum. (síðari umræða)
Gunnar Einarsson, tók til máls og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja samkomulagið.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.
Björg Fenger, tók til máls og lýsti ánægju með að samkomulagið geri m.a. ráð fyrir framlengingu á gildistíma tilraunaverkefnis til eflingar almenningssamgangna til 12 ára og að í tengslum við uppbyggingu samgönguinnviða verði horft til uppfærðra rekstraráætlana almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðisins þ.m.t. um rekstur Borgarlínu. Mikilvægt er að þátttaka ríkisins verði tryggð að verkefninu allt tímabilið.
Valborg Ósk Á Warén, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið og þakkaði öllum sem komu að verkefninu fyrir þeirra störf. Valborg lagði fram eftirfarandi bókun.
„Garðabæjarlistinn fagnar sáttmála sveitarfélaganna um almenningssamgöngur. Hér er um gríðarlega mikla samgöngubót að ræða sem til lengri tíma litið mun um leið styðja við fleiri valkosti ungs fólk til búsetu hvar sem er á höfuðborgarsvæðinu. Garðabæjarlistinn fagnar því einnig að sjá stuðning, sérstaklega ungs fólks og kvenna, við borgarlínu sem varpar enn frekar ljósi á mikilvægi þjónustunnar og ekki síður þeirri staðreynd að bættar almenningssamgöngur bæta þjónustu við konur sérstaklega þar sem þær nýta ferðamátann í meiri mæli en karlar. Hér er því um leið mikið jafnréttismál.“
Almar Guðmundsson, tók til máls og fagnaði samkomulaginu.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið. Guðfinnur vék að mikilvægi uppbyggingar samgöngumannvirkja á höfuðborgarsvæðinu út frá öryggissjónarmiðum.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.
Jóna Sæmundsdóttir, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.
Stella Stefánsdóttir, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.
Sigurður Guðmundsson, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls að nýju.
Ingvar Arnarson, tók til máls og lýsti ánægju með samkomulagið.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samkomulagið.
14
Skýrsla um úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag Garðabæjar, dags. í september 2019.
Gunnar Einarsson, fylgdi úr hlaði skýrslu um úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjármálum Garðabæjar. Skýrslan er unnin af Haraldi L. Haraldssyni, hagfræðingi. Við vinnslu skýrslunnar var stuðst við gögn frá sveitarfélaginu og til samanburðar voru skoðuð gögn á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi rekstur sambærilegra sveitarfélaga. Þá var rætt við forstöðumenn um rekstur viðkomandi stofnunar ásamt því að yfirfara bókhaldsgögn og rekstrarútgjöld.
Gunnar gerði grein fyrir tilurð þess að skýrslan var unnin og lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Bæjarstjórn Garðabæjar lýsir ánægju með framkomna skýrslu sem staðfestir traustan rekstur bæjarfélagsins þar sem starfsmenn leggja sig fram af metnaði og með fagmennsku að leiðarljósi við að veita bæjarbúum góða þjónustu. Í skýrslunni felast jafnframt tækifæri til að gera enn betur með það að markmiði að fylgja eftir tillögum og ábendingum til að bæta rekstur, fjárhag og þjónustu bæjarins.
Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra að vinna aðgerðaráætlun um framgang einstakra tillagna og fylgja eftir ábendingum sem koma fram í skýrslunni. Aðgerðaráætlun skal lögð fram í bæjarráði og fylgt eftir með reglubundnu stöðumati að liðnum sex mánuðum.
Bæjarstjórn samþykkir að eftir kynningu á skýrslunni með forstöðumönnum stofnana bæjarins verði skýrslan birt á vef Garðabæjar og gerð aðgengileg öllum starfsmönnum og almenningi.“
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkomna tillögu.