Beint í efni

36. (1897). fundur

24.09.2019
Bæjarráð Garðabæjar

36. (1897). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

24.09.2019

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - varamaður
  • Björg Fenger - varamaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1908478

01

Miðhraun 4 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Miðhrauni 4, húsfélagi kt. 490518-0450, leyfi fyrir innri breytingum núverandi húss að Miðhrauni 4.

Málsnúmer 1810318

02

Víkurgata 12 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurbirni Inga Magnússyni, kt. 260976-3039, leyfi fyrir útigeymslu við hús í byggingu að Víkurgötu 12.

Málsnúmer 1806425

03

Víkurgata 14- Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Magnúsi Mikaelssyni, kt. 041282-4609, leyfi fyrir stækkun húss í byggingu að Víkurgötu 14.

Málsnúmer 1909066

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur - Iðnaðarsvæði í Álfsnesvík.

Lögð fram.

Málsnúmer 1805169

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, Sjómannaskólareitur og Veðurstofuhæð.

Lögð fram.

Málsnúmer 1908480

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 40-42.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Urriðaholtsstræti 40-42 um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna fjölgunar íbúða.

Málsnúmer 1906365

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 55.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Holtsvegi 55 um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna fjölgunar íbúða.

Málsnúmer 1903374

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar um lýsingu vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er varðar norðurnes Álftaness.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lýsingu vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga er tekur til svæðis á norðurnesi Álftaness. Samhliða verður unnið að gerð deiliskipulags fyrir sama svæði.

Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum. Jafnframt skal lýsingin kynnt almenningi.

Málsnúmer 1909255

09

Tilkynning frá stjórn Alþjóða geðheilbrigðisdagsins varðandi hátíðardagskrá, dags. 17.09.19.

Málsnúmer 1909249

10

Bréf Golfklúbbsins Odds varðandi endurskoðun á samstarfssamningi, dags. 17.09.19.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1909307

11

Bréf Hönnunarsafns Íslands varðandi vegvísa, dags. 19.09.19.

Bæjarráð tekur jákvætt i erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1908257

12

Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga varðandi Skólaþing 2019, dags. 19.09.19.

Bæjarráð vísar bréfinu til ungmennaráðs og hvetur ráðið til að taka til umfjöllunar og afgreiðslu spurningar sem Samband ísl. sveitarfélaga hefur vísað til ungmennaráða í sveitarfélögum. Jafnframt hvetur bæjarráð ungmennaráð til að senda fulltrúa til setu á Skólaþingi 2019.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1907177

13

Bréf Evrópska Ungmennaþingsins á Íslandi varðandi styrk, dags. 20.09.19.

Bæjarráð tekur jákvætt í umsókn um styrk vegna þátttökugjalda ungmenna úr Garðabæ er sækja ráðstefnu á vegum Evrópska Ungmennaþingsins sem haldin verður í Reykjavík dagana 16. - 20. október. Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1909327

14

Bréf Skáksambands Íslands og Taflfélags Garðabæjar varðandi Íslandsmótið í skák, dags. 17.09.19.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindi um að veita stuðning við að Íslandsmót í skák 2020 verði haldið í Garðabæ. Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1909328

15

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um endurnýjun rekstrareyfis fyrir veitingastað í IKEA.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði endurnýjað.