Víkurgata 12 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
11. (2064). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurbirni Inga Magnússyni, kt. 260976-3039, leyfi til að breyta innra skipulagi núverandi einbýlishúss við Víkurgötu 12.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
4. (919). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að bifreiðageymsla neðanjarðar og útigeymsla fari lítillega út fyrir byggingarreit lóðarinnar við Víkurgötu 12 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“ (Mál nr. 1810318)
Bæjarráð Garðabæjar
03
9. (2062). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að bifreiðageymsla neðanjarðar og útigeymsla fari lítillega út fyrir byggingarreit lóðarinnar við Víkurgötu 12 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
3. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi einbýlishúss að Víkurgötu 12 sem gerir ráð fyrir að bifreiðargeymsla neðanjarðar og útigeymsla fari lítillega út fyrir byggingarreit.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað þessi atriði varðar.
Bæjarráð Garðabæjar
05
36. (1897). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurbirni Inga Magnússyni, kt. 260976-3039, leyfi fyrir útigeymslu við hús í byggingu að Víkurgötu 12.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
07
7. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi íbúðarhússins Víkurgata 12 þar sem gert er ráð fyrir stækkun byggingarreits fyrir niðurgrafna útigeymslu á bak við stoðvegg sem nær út fyrir núverandi byggingarreit. Grenndarárhrif geymslunnar eru hverfandi. Gert er ráð fyrir dyrum í stoðvegg að geymslunni.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts Vesturhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarráð Garðabæjar
08
45. (1860). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurbirni Inga Magnússyni, kt. 260976-3039 leyfi til að byggja einbýlishús að Víkurgötu 12.