9. (2062). fundur
9. (2062). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
28.02.2023
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2206112
01
Fjárhagsáætlun 2023 - lántaka.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 500.000.000. Lánið er jafngreiðslulán til 17 ára, verðtryggt með 3,12% föstum vöxtum og án uppgreiðsluheimildar. Í skilmálum lánssamnings kemur fram að tilgangur lánsins er fjármögnun á verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu og uppfyllir skilyrði sem sett eru fram í grænni umgjörð sjóðsins, nánar tiltekið fjármögnun á byggingu svansvottaðs leikskóla. Verkefnið telst þess eðlis að hafa jákvæð áhrif á umhverfið og sporna gegn loftslagsbreytingum. Fyrir liggja drög að lánssamningi.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Málsnúmer 2212136
02
Aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.
Skólastarf í Flataskóla og Hofsstaðaskóla er að færast sem mest í eðlilegt horf með þeim röskunum sem fylgir færslu á bekkjum milli stofa og kennslu í lausum kennslustofum. Viðgerðir sem stefnt var að í þessar lotu hafa gengið vel og skemmt efni verið fjarlægt úr húsnæðinu. Í undirbúningi er að gera útboðsskilmála vegna frekari framkvæmda og lagfæringa á húsnæði skólanna sem munu hefjast í sumar eftir skólaslit.
Niðurstöður sýna úr Álftanesskóla, Tónlistarskóla og skammtímaheimili að Móaflöt hafa borist og eru þau að hluta til jákvæð. Bregðast þarf við með lokun og viðgerðum á rýmum í Álftanesskóla og Móaflöt. Í Tónlistarskólanum þarf að þrífa sal skólans og gera við lítinn leka en ekki er talin ástæða til að loka salnum nema tímabundið á meðan þrifin fara fram.
Málsnúmer 2211051
03
Eskiás 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Framkvæmdafélaginu Eskiási ehf., kt. 501286-1419, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 35 íbúðum að Eskiási 5.
Málsnúmer 2212444
04
Hraungata 16 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Maríu Rebekku Þórisdóttur, kt. 280970-5739, leyfi til að breyta klæðningu einbýlishúss í byggingu að Hraungötu 16.
Málsnúmer 2302010
05
Lambamýri 1 (MHL.02) - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Húsbygg ehf., kt. 630210-1430, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 10 íbúðum og þjónusturými að Lambamýri 1.
Málsnúmer 2302011
06
Lambamýri 1 (MHL.03) - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Húsbygg ehf., kt. 630210-1430, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 16 íbúðum að Lambamýri 1.
Málsnúmer 1810318
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi útgáfu á byggingarleyfi fyrir einbýlishús að Víkurgötu 12.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að bifreiðageymsla neðanjarðar og útigeymsla fari lítillega út fyrir byggingarreit lóðarinnar við Víkurgötu 12 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 2301648
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Seltjarnarnesbæjar 2015-2033.
Lögð fram.
Málsnúmer 2102110
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir félagssvæði hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi fyrir félagsvæði Hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi.
Tillagan er auglýst að nýju þar sem formleg staðfesting á samþykkt bæjarstjórnar á skipulagi svæðisins var ekki birt innan lögákveðins frests samkvæmt 2. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 2302240
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Tillagan gerir ráð fyrir undirgöngum undir Flóttamannaveg við göngustíg sem liggur milli Vífilsstaðahrauns og norðurhlíðar Urriðaholts. Einnig er gert ráð fyrir að reiðstígur sem liggur meðfram Flóttamannavegi verði felldur út.
Tillagan skal auglýst með athugasemdarfresti til 11. maí 2023 eins og tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar varðandi sama svæði sem nú er í kynningu.
Málsnúmer 2301105
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar vegna tilkynningar Landsnets um framkvæmdir við breytingar á Hamraneslínu.
Í bókun skipulagsnefndar kemur fram að nefndin telji nauðsynlegt að svigrúm gefist til að taka upp viðræður við Landsnet til að ræða stöðu og legu háspennulína innan bæjarins og móta tillögur í því sambandi. Slíkar tillögur þurfa að vera í samræmi við stefnu í aðalskipulagi Garðabæjar þar sem háspennulínur eru lagðar í jörð eins og eðlilegt er að gera í byggð og á útivistarsvæðum í nálægð byggðar.
Bæjarráð tekur undir bókun skipulagsnefndar og felur bæjarstjóra að hlutast til um að viðræður fari fram við Landsnet um stöðu mála.
Málsnúmer 2209382
12
Staða framkvæmda við byggingu leikskóla að Holtsvegi 20.
Bæjarstjóri fór yfir mögulegar lausnir til að ná fram áformum Garðabæjar um að byggja sex deilda leikskóla við Holtsveg 20.
Þær leiðir sem hafa verið til skoðunar eru að halda í upphafleg áform og hafa hluta leikskólans á tveimur hæðum eða að stækka byggingarreit skólans og hafa leikskólann sex deildir á einni hæð. Við mat á þessum tveimur leiðum þykir ljóst að sú leið að byggja leikskólann í samræmi við upphaflega hönnum er hagkvæmari og uppfyllir betur markmið um mikilvæga samfélagslega uppbyggingu.
Í því sambandi er bent á eftirfarandi atriði.
- Betri aðstaða starfsmanna þar sem mætt er kröfum um að tryggja öruggt og heilsusamlegt umhverfi.
- Skerðir ekki útileiksvæði barna innan lóðar
- Styttri framkvæmdatími
- Hagkvæmri bygging í rekstri
- Minni framkvæmdakostnaður
- Kallar ekki á lóðarstækkun
- Er í samræmi við niðurstöður hönnunarsamkeppni
Bæjarráð leggur áherslu á þá samfélagslegu hagsmuni sem liggja því til grundvallar að byggja leikskóla fyrir 120 börn í Urriðaholti til standa undir væntingum og kröfum ungra barnafjölskyldna um að eiga kost á leikskóladvöl barna sinna frá 12 mánaða aldri.
Bæjarráð samþykkir að vísa til skipulagsnefndar að móta tillögu að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 20 þannig að upphafleg hönnun byggingar leikskóla falli að skilmálum deiliskipulagsins.
Bæjarráð lýsir yfir vilja til að leita leiða til að lækka heildarhæð þess hluta leikskólans sem er tveggja hæða til að koma á móts við sjónarmið íbúa um að takmarka útsýnisskerðingu þeirra eins og kostur er.
Málsnúmer 2211569
13
Húsnæðisáætlun Garðabæjar 2023.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir vinnu við endurskoðun húsnæðisáætlunar Garðabæjar sem ber að gera árlega samkvæmt 3. gr. reglugerðar um húsnæðisáætlanir sveitarfélaga.
Stefnt er að því að leggja fram tillögu að endurskoðun húsnæðisáætlunar Garðabæjar árið 2023 á fundi bæjarráðs 14. mars, til kynningar í fjölskylduráði 15. mars og til afgreiðslu og staðfestingar í bæjarstjórn 16. mars.
Bæjarstjóri mun upplýsa Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um stöðu málsins, sbr. ákvæði 5. gr. reglugerðarinnar.
Málsnúmer 2209603
14
Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi hækkun á áætluðum framlögum vegna málefna fatlaðs fólks, dags. 17.02.23.
Lögð fram tilkynning innviðaráðuneytis þar sem fram kemur áætlun um hækkun á framlagi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna málefna fatlaðs fólks. Heildarhækkun nemur 5,0 ma.kr. Áætlað framlag til Garðabæjar hækkar úr 716,3 m.kr. í 922,5 m.kr. eða um 206,2 m.kr.
Málsnúmer 2302456
15
Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi bókun Samtaka orkusveitarfélaga um orkumál, dags. 20.02.23.
Lögð fram.
Málsnúmer 2302558
16
Bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu varðandi samráð við sveitarfélög, dags. 23.02.23.
Í bréfinu er er vísað til samráðskyldu sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu við sveitarfélögin, sbr. 7. gr. laga um framkvæmdavald og stjórnsýslu ríkisins í héraði nr. 50/2014 og óskað eftir fundi með kjörnum fulltrúum Garðabæjar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um að verða við beiðni sýslumanns um samráðsfund.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2302575
17
Tillaga Viðreisnar um að meta kostnað við að endurvekja næturstrætó í samstarfi við Kópavog og Hafnarfjörð.
Lögð fram eftirfarandi tillaga Viðreisnar.
„Bæjarstjóra verði falið að kalla eftir kostnaði við að halda úti næturstrætó á föstudögum og laugardögum og kanna um leið möguleika á samstarfi við Kópavog og Hafnarfjörð.“
Greinargerð.
Næturstrætó er mikilvægur valkostur fyrir íbúa á öllu höfuðborgarsvæðinu. Að komast leiða sinna með öruggum og skjótum hætti er mikilvægt og ekki síst mikið öryggistæki að næturlagi. Við í Viðreisn viljum sjá alvöru val um samgöngumáta. Við teljum mjög mikilvægt að mæta ungu fólki sérstaklega með öruggum samgöngum á milli sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og viljum svara kalli stúdenta um að tryggja öruggan og traustan ferðamáta að næturlagi.
Sara Dögg Svanhildardóttir
Oddviti Viðreisnar
Tillagan rædd.