Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Málsnúmer 2302240

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

28. (2081). fundur

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. júní 2023, um breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Tillagan gerir ráð fyrir að reiðstígur meðfram Flóttamannavegi verði felldur út og að göng komi undir Flóttamannaveg til að tengja íbúðarbyggð í Urriðaholti við útivistarsvæði í upplandi bæjarins.
Tillagan var auglýst 9. febrúar 2023 ásamt tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar var til 11. maí 2023. Athugasemdir og umsagnir við tillögurnar voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 22. maí 2023. Umsögn um athugasemdir liggur fyrir.
Í tilefni af umsögn Vegagerðarinnar leggur skipulagsnefnd til að á skipulagsuppdrætti bæði aðalskipulags og deiliskipulags verði skilgreint 30 metra breitt veghelgunarsvæði fyrir Flóttamannaveg sem er tengibraut samkvæmt skipulaginu. Landnotkunarreitur Íb 4.13 austan Vífilsstaða minnkar sem nemur veghelgunarsvæði Flóttamannavegar.
Athugasemdir og umsagnir kalla ekki að öðru leyti á breytingar á auglýstri tillögu.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarráðs auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

9. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 4.áfanga að lokinni auglýsingu sem gerir ráð fyrir því að reiðstígur sem skilgreindur er meðfram Flóttamannavegi verði felldur út og að undirgöng fyrir stofnstíg verði undir Flóttamannaveg. Lagðar fram þær athugasemdir og umsagnir sem borist hafa ásamt drögum að greinargerð þar sem að viðbrögð og svör Garðabæjar við þeim er að finna.
Í umsögn Vegagerðar kemur fram að ekki sé gerð athugsemd við undirgögn undir Flóttamannaveg. Einnig er bent á í umsögninni að Flóttamannavegur (Elliðavatnsvegur) sé flokkaður sem stofnvegur í umsjá stofnunarinnar og beri að sýna hann sem slíkan á skipulagsuppdráttum. Skipulagsnefnd bendir á að dæmi eru um að tengibrautir í aðalskipulagi sveitarfélaga sé stofnvegir í umsjá Vegagerðarinnar og því sé ekki ástæða til að skilgreina Flóttamannaveg sem stofnbraut. Skipulagsnefnd leggur til að á aðalskipulagsuppdrætti og á deiliskipulagsuppdráttum þar sem að tengibrautina Flóttamannaveg er að finna skuli skilgreint 30 m breytt veghelgunarsvæði tengibrautar.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri breytingu sem breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta 4.áfanga í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

7. fundur

Tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4 lögð fram að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

4. (919). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Tillagan gerir ráð fyrir breyttri legu Flóttamannvegar og undirgöngum undir veginn við göngustíg sem liggur milli Vífilsstaðahrauns og norðurhlíðar Urriðaholts. Einnig er gert ráð fyrir að reiðstígur sem liggur meðfram Flóttamannavegi verði felldur út.
Tillagan skal auglýst með athugasemdarfresti til 11. maí 2023 eins og tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar varðandi sama svæði sem nú er í kynningu.“ (Mál nr. 2302240)

Bæjarráð Garðabæjar

05

9. (2062). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Tillagan gerir ráð fyrir undirgöngum undir Flóttamannaveg við göngustíg sem liggur milli Vífilsstaðahrauns og norðurhlíðar Urriðaholts. Einnig er gert ráð fyrir að reiðstígur sem liggur meðfram Flóttamannavegi verði felldur út.
Tillagan skal auglýst með athugasemdarfresti til 11. maí 2023 eins og tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar varðandi sama svæði sem nú er í kynningu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

3. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulag Urriðaholts Norðurhluta 4 sem gerir ráð fyrir undirgöngum undir Flóttamannaveg við göngustíg sem liggur milli Vífilsstaðahrauns og norðurhlíðar Urriðaholts. Einnig er gert ráð fyrir að reiðstígur sem liggur meðfram Flóttamannavegi verði felldur út.
Tillagan er í samræmi við tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nú er í kynningu ásamt fleiri deiliskipulagstillögum.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr. 41.gr. og 31.gr.skipulagslaga nr. 123/2010 og skal frestur til að skila inn athugasemdum vera sá sami og þær auglýsingar sem nú eru í kynningu eða til 11.maí nk.