Beint í efni

Tillaga Viðreisnar um að meta kostnað við að endurvekja næturstrætó í samstarfi við Kópavog og Hafnarfjörð.

Málsnúmer 2302575

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

9. (2062). fundur

Lögð fram eftirfarandi tillaga Viðreisnar.

„Bæjarstjóra verði falið að kalla eftir kostnaði við að halda úti næturstrætó á föstudögum og laugardögum og kanna um leið möguleika á samstarfi við Kópavog og Hafnarfjörð.“

Greinargerð.

Næturstrætó er mikilvægur valkostur fyrir íbúa á öllu höfuðborgarsvæðinu. Að komast leiða sinna með öruggum og skjótum hætti er mikilvægt og ekki síst mikið öryggistæki að næturlagi. Við í Viðreisn viljum sjá alvöru val um samgöngumáta. Við teljum mjög mikilvægt að mæta ungu fólki sérstaklega með öruggum samgöngum á milli sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og viljum svara kalli stúdenta um að tryggja öruggan og traustan ferðamáta að næturlagi.

Sara Dögg Svanhildardóttir

Oddviti Viðreisnar

Tillagan rædd.