Staða framkvæmda við byggingu leikskóla að Holtsvegi 20.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
9. (2062). fundur
Bæjarstjóri fór yfir mögulegar lausnir til að ná fram áformum Garðabæjar um að byggja sex deilda leikskóla við Holtsveg 20.
Þær leiðir sem hafa verið til skoðunar eru að halda í upphafleg áform og hafa hluta leikskólans á tveimur hæðum eða að stækka byggingarreit skólans og hafa leikskólann sex deildir á einni hæð. Við mat á þessum tveimur leiðum þykir ljóst að sú leið að byggja leikskólann í samræmi við upphaflega hönnum er hagkvæmari og uppfyllir betur markmið um mikilvæga samfélagslega uppbyggingu.
Í því sambandi er bent á eftirfarandi atriði.
- Betri aðstaða starfsmanna þar sem mætt er kröfum um að tryggja öruggt og heilsusamlegt umhverfi.
- Skerðir ekki útileiksvæði barna innan lóðar
- Styttri framkvæmdatími
- Hagkvæmri bygging í rekstri
- Minni framkvæmdakostnaður
- Kallar ekki á lóðarstækkun
- Er í samræmi við niðurstöður hönnunarsamkeppni
Bæjarráð leggur áherslu á þá samfélagslegu hagsmuni sem liggja því til grundvallar að byggja leikskóla fyrir 120 börn í Urriðaholti til standa undir væntingum og kröfum ungra barnafjölskyldna um að eiga kost á leikskóladvöl barna sinna frá 12 mánaða aldri.
Bæjarráð samþykkir að vísa til skipulagsnefndar að móta tillögu að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 20 þannig að upphafleg hönnun byggingar leikskóla falli að skilmálum deiliskipulagsins.
Bæjarráð lýsir yfir vilja til að leita leiða til að lækka heildarhæð þess hluta leikskólans sem er tveggja hæða til að koma á móts við sjónarmið íbúa um að takmarka útsýnisskerðingu þeirra eins og kostur er.
Bæjarráð Garðabæjar
02
8. (2061). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi með fulltrúum íbúa við Holtsveg 16-18 þar sem rædd voru sjónarmið íbúa sem koma fram í bréfi þeirra sem lagt var fram á fundi bæjarráðs 7. febrúar sl. Þar kemur fram krafa um að ekki verði gerð breyting á deiliskipulagi lóðarinnar í þeim tilgangi að húsnæði skólans verði að hluta tvær hæðir eins og upphafleg hönnun gerir ráð fyrir.
Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri kom á fund bæjarráð undir þessum lið og gerði grein fyrir mögulegum lausnum varðandi breytingar á deiliskipulagi og áhrifum þess á næsta nágrenni meðal annars m.t.t. skuggavarps.
Bæjarráð Garðabæjar
03
6. (2059). fundur
Í bréfinu er farið yfir niðurstöður úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem byggingarleyfi leikskólans var fellt úr gildi þar sem byggingin var að hluta talin fara upp fyrir hámarkshæð samkvæmt skilmálum. Þá er í bréfinu gerð krafa um að ekki verði gerð breyting á deiliskipulagi lóðarinnar í þeim tilgangi að hækka hæð byggingarinnar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
04
4. (2057). fundur
Sviðsstjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir stöðu mála við framkvæmd leikskóla við Holtsveg en byggingarleyfi vegna framkvæmdanna var endurútgefið fyrir fimm deilda leikskóla á einni hæð. Verið er að vinna að mögulegri útfærslu á breytingum til að skólinn geti verið 6 deilda eins og gert var ráð fyrir í upphafi.
Bæjarráð vísar málinu til frekari úrvinnslu umhverfissviðs.