Beint í efni

4. (2057). fundur

24.01.2023
Bæjarráð Garðabæjar

4. (2057). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

24.01.2023

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2212136

01

Aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.

Lagt fram minnisblað um stöðu heildarúttektar á húsnæði Hofsstaðaskóla og yfirlit um ástandsskýrslur og endurbætur á húsnæðinu undanfarin ár.

Bæjarstjóri upplýsti að í gær bárust niðurstöður úr sýnatökum bæði úr Flataskóla og Hofsstaðaskóla sem kalla á að gripið verði til þess ráðs að loka rýmum í báðum skólunum. Foreldrar, forráðamenn og starfsfólk fengu upplýsingar um stöðu mála sendar í tölvupósti í gær og tilkynnt hefur verið um að kennsla muni raskast í skólunum vegna þessa næstu tvo daga fyrir ákveðnar bekkjadeildir. Lögð er áherslu á að grípa til aðgerða strax til að tryggja öryggi starfsfólks og nemenda

Málsnúmer 2301333

02

Tillaga að breytingu á samþykktum Garðabæjar vegna barnaverndarþjónustu

Á fund bæjarráðs kom Sigríður Logadóttir, lögfræðingur og persónuverndarfulltrúi og gerði grein fyrir tillögu að breytingu á samþykktum Garðabæjar vegna barnaverndarþjónustu. Fór hún yfir athugasemdir og ábendingar sem hafa komið frá ráðuneytinu en þær verða útfærðar nánar sem breytingartillögur við síðari umræðu í bæjarstjórn.

Málsnúmer 2301461

03

Skýrsla persónuverndarfulltrúa 2022.

Sigríður Logadóttir, persónuverndarfulltrúi og lögfræðingur gerði grein fyrir helstu atriðum í skýrslu persónuverndarfulltrúa fyrir árið 2022.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2205465

04

Opnun tilboða í framkvæmdir við stígagerð, veitulagnir og frágang í Hraunhólum.

Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við stígagerð, veitulagnir og frágang í Hraunhólum.

Óskata ehf. kr. 80.911.950

Emkan ehf. kr. 127.500.000

Grafa og grjót ehf. kr. 59.343.300

Stjörnugarðar ehf. kr. 94.734.975

JJ pípulagnir ehf. kr. 86.277.380

Berg verktakar ehf. kr. 96.528.100

Stéttafélagið ehf. kr. 78.485.700

SS Verktak ehf. kr. 136.526.700

Kostnaðaráætlun kr. 68.297.890

Sviðsstjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir stöðu málsins. Bæjarráð frestar afgreiðslu til næsta fundar.

Málsnúmer 2201384

05

Erindi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi tillögu að loftslagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið, dags. 18.11.22.

Loftlagsstefna fyrir höfuðborgarsvæðið hefur verið til umfjöllunar í skipulagsnefnd og umhverfisnefnd.

Fyrir liggur jákvæð umsögn umhverfisnefndar.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2208507

06

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi skýrslu Betri samgangna um framgang verkefna, dags. 17.01.23.

Lagt fram.

Málsnúmer 2301288

07

Bréf UMF-Stjörnunnar varðandi niðurfellingu fasteignagjalda árið 2023, dags. 16.01.23.

Bæjarráð samþykkir að veita UMF-Stjörnunni styrk að fjárhæð kr. 2.151.520 til greiðslu fasteignagjalda árið 2023.

Málsnúmer 2301359

08

Bréf Garðasóknar varðandi niðurfellingu fasteignagjalda árið 2023.

Bæjarráð samþykkir að veita Garðasókn styrk að fjárhæð kr. 1.092.571 til greiðslu fasteignagjalda árið 2023.

Málsnúmer 2209382

09

Staða framkvæmda við leikskóla við Holtsveg 20.

Sviðsstjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir stöðu mála við framkvæmd leikskóla við Holtsveg en byggingarleyfi vegna framkvæmdanna var endurútgefið fyrir fimm deilda leikskóla á einni hæð. Verið er að vinna að mögulegri útfærslu á breytingum til að skólinn geti verið 6 deilda eins og gert var ráð fyrir í upphafi.

Bæjarráð vísar málinu til frekari úrvinnslu umhverfissviðs.

Málsnúmer 2211413

10

Drög að viljayfirlýsingu Garðabæjar og Brynju leigufélags ses. um uppbyggingu á íbúðum fyrir öryrkja í Garðabæ 2022 - 2026.

Lögð fram drög að viljayfirlýsingu Garðabæjar og Brynju leigufélags ses. þar sem að lýst er yfir vilja aðila til eiga samstarf um að fjölga á íbúðum fyrir öryrkja í Garðabæ á tímabilinu 2022 -2026

Bæjaráð samþykkir viljayfirlýsinguna og felur bæjarstjóra undirritun hennar.