Beint í efni

Samþykkt um breytingu á stjórn Garðabæjar vegna barnaverndarþjónustu (síðari umræða).

Málsnúmer 2301333

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

2. (917). fundur

Almar Guðmundsson fór yfir tillögur að breytingum á viðauka III við samþykktir um stjórn Garðabæjar er varðar fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu Garðabæjar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkomnar breytingartillögur.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu að breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022 ásamt viðauka III með áorðnum breytingartillögum.

Samþykkt að breytingum á samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022 skal send innviðaráðuneytinu til staðfestingar.

Bæjarráð Garðabæjar

02

4. (2057). fundur

Á fund bæjarráðs kom Sigríður Logadóttir, lögfræðingur og persónuverndarfulltrúi og gerði grein fyrir tillögu að breytingu á samþykktum Garðabæjar vegna barnaverndarþjónustu. Fór hún yfir athugasemdir og ábendingar sem hafa komið frá ráðuneytinu en þær verða útfærðar nánar sem breytingartillögur við síðari umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

1. (916). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði tillögu að breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022 ásamt viðauka III um fullnaðarafgreiðslur mála hjá barnaverndarþjónustu Garðabæjar.

„Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu að breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar ásamt viðauka III til síðari umræðu í bæjarstjórn.“