1. (916). fundur
1. (916). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
19.01.2023
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
- Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Bjarni Theódór Bjarnason - varabæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
- Sara Dögg Svanhildardóttir - bæjarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerðir funda bæjarstjórnar frá 15. desember 2022 og 29. desember 2022 eru lagðar fram.
Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og óskaði íþróttafólki Garðabæjar sem heiðrað var á íþróttahátíð Garðabæjar þann 8. janúar sl. til hamingju með viðurkenningar sem þeim voru veittar. Þá óskaði Ingvar körfuknattleiksdeild Stjörnunnar til hamingju með góðan árangur í bikarkeppni KKÍ.
Forseti tók undir hamingjuóskir til íþróttafólks í Garðabæ í nafni bæjarstjórnar.
Dagskrá
Málsnúmer 2212024F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 20/12 ´22.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi, 11. tl., móttöku flóttafólks.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 11. tl., móttöku flóttafólks.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 11. tl., móttöku flóttafólks.
Almar Guðmundsson, ræddi 11. tl., móttöku flóttafólks.
Fundargerðin sem er 13 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2301004F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 6/1 ´23.
Fundargerðin sem er 1 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2301010F
03
Fundargerð bæjarráðs frá 10/1 ´23.
Ingvar Arnarson, ræddi 21. tl., umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar vegna fyrirspurnar Landsnets um matsskyldu framkvæmda við breytingu á Hamraneslínu og 22. tl., bréf Landsnets varðandi breytingu á aðalskipulagi vegna Hamraneslínu 1 og 2.
Fundargerðin sem er 22 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2301022F
04
Fundargerð bæjarráðs frá 17/1 ´23.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 12. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 12. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.
Ingvar Arnarson, ræddi 12. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.
„Fyrirspurn Garðabæjarlistans varðandi úttekt Eflu á húsnæði Flataskóla frá 3. júlí 2019 og tengd mál:
1. Að hvaða tilefni var ákveðið að ráðast í úttekt á húsnæði Flataskóla vorið 2019?
2. Hverjir tóku ákvörðun um úttekt?
3. Hvaða aðilar fengu skýrslu úttektar?
4. Hvaða aðgerðir á húsnæði Flataskóla var ákveðið að ráðast í eftir úttekt Eflu? Óskað er eftir vísunum í skýrsluna þar sem við á.
5. Hvers vegna kom þessi skýrsla ekki fyrr fram í samskiptum bæjarins við foreldrafélag Flataskóla?
6. Hvaða rök voru fyrir því að hætta samskiptum við Eflu eftir afhendingu á skýrslu árið 2019 og leita til Mannvits?
7. Hvaða úttektir vegna gruns um rakaskemmdir og myglu hafa verið framkvæmdar á skólahúsnæði í Garðabæ frá árinu 2018?
8. Af hverju var skýrsla um úttekt í Hofsstaðaskóla frá árinu 2021 ekki aðgengileg fyrr en nú í janúar 2023?
9. Til hvaða aðgerða var gripið á grundvelli þeirrar úttektar?“
Ingvar Arnarson og Þorbjörg Þorvaldsdóttir bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 12. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 12. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.
Björg Fenger, ræddi 12. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði. Björg lagði fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
„Nú er stutt í að niðurstöður úr heildarúttekt á ástandi húsnæðis Flataskóla og Hofsstaðaskóla liggi fyrir. Framkvæmdir og undirbúningur þeirra munu fara af stað í beinu framhaldi af því. Í samþykktri fjárhagsáætlun 2023 er gert ráð fyrir verulegu fjármagni til endurbóta á húsnæði stofnana bæjarins á yfirstandandi ári og þar verða þessir tveir skólar settir í forgang.
Þegar hefur verið gripið til ráðstafana í báðum skólum varðandi lokun rýma þar sem mygla mældist í sýnatökum í haust. Þetta er gert skv. ráðgjöf sérfræðinga og í samræmi við það verkferli sem unnið hefur verið eftir síðan þá. Þekking á málefninu hefur aukist síðustu ár og vinnulag byggir nú á gagnsæi og opnum samskiptum, ávallt með heilsu og öryggi nemenda og starfsmanna að leiðarljósi. Starfsmenn, foreldrar og nemendur fá reglubundnar upplýsingar um stöðu mála í gegnum tölvupóst. Þá eru sérstakar upplýsingasíður aðgengilegar á vef bæjarins þar sem gögn vegna ástandsmats og framkvæmda í skólunum liggja frammi. Við áréttum mikilvægi þess að fullt traust sé á þeim ferlum sem unnið er eftir.
Það er lykilatriði að öll viðhaldsverkefni sem snúa að rakaskemmdum og myglu í skólum bæjarins fái algjöran forgang og séu ávallt unnin í fullu samráði við skólastjórnendur og með vitund starfsfólks þannig að koma megi í veg fyrir að forráðamenn, nemendur og starfsfólk þurfi að upplifa álag og óþægindi vegna slíkra mála.“
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi að nýju ræddi 12. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.
Almar Guðmundsson, ræddi 12. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 12. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Viðreisn leggur áherslu á gagnsæi og trausta upplýsingagjöf og ítrekar mikilvægi þess að verkferlar um skjölun gagna séu rýndir og bættir svo koma megi í veg fyrir ógagnsæi og ófullnægjandi upplýsingagjöf í jafn alvarlegum málum og á við um mál Flataskóla og óskjalaðra skýrslu frá árinu 2019.“
Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi Viðreisnar.
Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 12. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.
Fundargerðin sem er 12 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
Málsnúmer 2212025F
05
Fundargerð fjölskylduráðs frá 21/12 ´22.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., samning um samræmda móttöku flóttafólks og 7. tl., félagsstarf eldri borgara í Jónshúsi.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2212018F
06
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 14/12 ´22.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi 1. tl., íþróttahátíð Garðabæjar og fjallaði nánar um viðurkenningar sem íþróttafólki í Garðabæ var veitt á hátíðinni. Hrannar Bragi færði öllum þeim sem voru heiðruð á hátíðinni hamingjuóskir og sérstaklega Hilmari Snæ Örvarssyni, íþróttakarli Garðabæjar og Ástu Kristinsdóttur, íþróttakonu Garðabæjar árið 2022.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2301001F
07
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 4/1 ´23.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 2. tl., auglýsingu umsóknarfrests vegna umsókna um afreksstyrki.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., hvatapeninga og óskaði eftir að bókun fulltrúa Garðabæjarlistans og Framsóknarflokksins í fundargerðinni verði færð til bókar í fundargerð bæjarstjórnar.
"Hækkun hvatapeninga er fagnaðarefni en betur má ef duga skal og er það skoðun Garðabæjarlistans og Framsóknar að lengra hefði þurft að ganga. Undanfarnar verðlagshækkanir eru þungar byrgðar fyrir alla landsmenn og sérstaklega barnafjölskyldur. Tómstundir barna eru kostnaðarsamar og hvatapeningar flestum heimilum mikilvæg búbót".
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi 1. tl. hvatapeninga og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Fjárhagsáætlunarvinna felst ávallt í forgangsröðun fjármuna og áherslna. Í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023 er m.a. lögð áhersla á endurbætur og viðhald á skóla- og íþróttamannvirkjum í bænum auk mikillar innviðauppbyggingar í Urriðaholti. Nú sem áður er lögð áhersla á ábyrgan rekstur, lágar álögur og sterka fjárhagsstöðu bæjarins.
Alveg frá upphafi hefur mikil áhersla verið lögð á að efla og styðja við íþrótta- og tómstundastarf í bænum. Garðabær var t.d. fyrsta sveitarfélagið til að veita beinan fjárhagslegan styrk til þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi með hvatapeningum, árið 2005. Í fjárhagsáætlun ársins 2023 er áfram lögð áhersla á að styðja við fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf í bænum m.a. með hækkun hvatapeninga ásamt því að veita styrki til félaga í bænum. Garðabær setur hlutfallslega mest í íþrótta- og æskulýðsmál af stærri sveitarfélögum á Íslandi, m.a. í því skyni að styðja barnafjölskyldur í bænum og gera bæjarbúum, jafnt ungum sem öldnum, kleift á að lifa góðu og heilsusamlegu lífi.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins árétta að áætlunin var unnin í góðu samráði milli allra flokka sem allir samþykktu fjárhagsáætlun fyrir árið 2023, þar á meðal Framsókn og Garðabæjarlistinn.“
Ingvar Arnarson, ræddi að nýju 1 tl. hvatapeninga.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., hvatapeninga.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 1. tl., hvatpeninga.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2301013F
08
Fundargerð leikskólanefndar frá 10/1 ´23.
Margrét Bjarnadóttir, ræddi 1. tl., verklag vegna fáliðunar í leikskólum Garðabæjar og 2. tl., stöðu innritunar í leikskólum Garðabæjar.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi starfskjör starfsfólks í leikskólum.
Almar Guðmundsson, ræddi starfskjör starfsfólks í leikskólum.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju starfskjör starfsfólks í leikskólum.
Almar Guðmundsson, ræddi að nýju starfskjör starfsfólks í leikskólum.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju starfskjör starfsfólks í leikskólum.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2212003F
09
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 11/1 ´23.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., starfsemi og framtíðarsýn Bókasafns Garðabæjar og 5. tl., dagskrá vetrarhátíðar 2023.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2301015F
10
Fundargerð skipulagsnefndar frá 12/1 ´23.
Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., skipulagslýsingu vegna tillögu að deiliskipulagi Arnarlands og breytinga á aðalskipulagi.
Björg Fenger, ræddi 2. tl., skipulagslýsingu vegna tillögu að deiliskipulagi Arnarlands og breytinga á aðalskipulagi.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., skipulagslýsingu vegna tillögu að deiliskipulagi Arnarlands og breytinga á aðalskipulagi.
Björg Fenger, ræddi að nýju 2. tl., 2. tl., skipulagslýsingu vegna tillögu að deiliskipulagi Arnarlands og breytinga á aðalskipulagi.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 2. tl., skipulagslýsingu vegna tillögu að deiliskipulagi Arnarlands og breytinga á aðalskipulagi.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 2. tl., skipulagslýsingu vegna tillögu að deiliskipulagi Arnarlands og breytinga á aðalskipulagi.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi að nýju 2. tl., skipulagslýsingu vegna tillögu að deiliskipulagi Arnarlands og breytinga á aðalskipulagi.
Björg Fenger, ræddi að nýju 2. tl., skipulagslýsingu vegna tillögu að deiliskipulagi Arnarlands og breytinga á aðalskipulagi.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2211033F
11
Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 23/11 ´22.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2301011F
12
Fundargerð umhverfisnefndar frá 11/1 ´23.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2201365
13
Fundargerð stjórnar SSH frá 12/12 ´22.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2301318
14
Fundargerð stjórnar SSH frá 9/1 ´23.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 1. tl., málefni heimilislausra með fjölþættan vanda.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2202087
15
Fundargerðir stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsv. frá 28/11 og 9/12 ´22.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2201281
16
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 14/12 ´22.
Bjarni Th. Bjarnason, ræddi 1. tl., stöðuna í fjöllunum og málefni skíðasvæðanna.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2201214
17
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 16/12 ´22.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi 1. tl., útboð á aðkeyptum akstri Strætó, 2. tl., áherslur í markaðsmálum og gjaldskrárstefnu Strætó og 5. tl., skipulag nýs leiðanets.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 5. tl., skipulag nýs leiðanets.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi að nýju 5. tl. skipulag nýs leiðanets.
Björg Fenger, ræddi 5. tl., skipulag nýs leiðanets.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2201292
18
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 9/12 ´22.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2210263
19
Samningur um stofnun Áfangastaðastofu höfuðborgarsvæðisins.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir drögum að samningi um áfangastaðastofu höfuðborgarsvæðisins en samningsdrögin hafa verið samþykkt í stjórn SSH. Almar þakkaði Huldu Hauksdóttur, starfsmanni bæjarins fyrir þátttöku hennar í undirbúningi málsins
„Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti samning sveitarfélaganna Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Mosfellsbæjar, Kópavogs, Reykjavíkur, Seltjarnarness, Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Ferðamálasamtökum höfuðborgarsvæðisins um áfangastaðastofu höfuðborgarsvæðisins.“
Málsnúmer 2212234
20
Tillaga til staðfestingar á samþykkt um hækkun álagningarhlutfalls útsvars vegna fjármögnunar þjónustu við fatlað fólk.
„Bæjarstjórn staðfestir tillögu frá fundi bæjarstjórnar frá 29. desember sl. um að álagningarhlutfall útsvars á tekjur manna á árinu 2023 hækki um 0,22% eða úr 13,70% í 13,92% ,sbr. XXVII kafli laga nr. 129/2022 um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.“
Breyting á álagningarhlutfalli útsvars felur ekki í sér auknar álögur á íbúa þar sem tekjuskattur ríkisins lækkar um samsvarandi hlutfall í báðum skattþrepum.
Málsnúmer 2206112
21
Fjárhagsáætlun 2023 - tillaga að útfærslu á hagræðingakröfu sviða.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um hagræðingarkröfu sviða.
Hagræðing Samþ. áætlun Hlutfall
Fjölskyldusvið 23.000.000 3.308.757.179 0,7%
02340 - Úrræði á heimili vegna barna 1.000.000 26.050.000 3,84%
02310 - Umdæmisráð barnaverndar 1.000.000 13.300.000 7,52%
02330 ? Vistun barna utan heimilis 2.000.000 50.000.000 4,00%
02420 - Félags- og íþróttastarf eldri borgara 3.000.000 95.368.000 3,15%
02490 - Önnur þjónusta við aldraða, akstur 3.000.000 43.700.000 6,86%
02581 - Sumarúrræði fyrir fatlaða 5.000.000 58.325.000 8,57%
02582 - Lengd viðvera fatlaðra ungmenna 6.000.000 60.000.000 10,00%
02564 - Miðskógar 2.000.000 124.365.000 1,61%
Hagræðing Samþ. áætlun Hlutfall
Fræðslu- og menningarsvið 104.000.000 14.196.332.808 0,7%
04010 - Skólaskrifstofa 23.000.000 466.674.000 4,9%
04LEI - Leikskólar 21.000.000 2.582.976.000 0,8%
04170 - Greiðslur til dagforeldra 3.000.000 81.495.000 3,7%
04GRU - Grunnskólar 34.000.000 4.711.960.000 0,7%
04264 - Alþjóðaskólinn 10.000.000 74.098.000 13,5%
04515 - Námsvistargjöld í tónlistarskólum 3.500.000 16.000.000 21,9%
06511 ? Íþróttamiðstöðvar 9.500.000 1.022.026.569 0,9%
Hagræðing Samþ. áætlun Hlutfall
Umhverfissvið 17.000.000 2.658.871.924 0,6%
09220 - Aðaskipulag 3.000.000 46.200.000 6,49%
09230 - Deiliskipulag 3.000.000 58.440.000 5,13%
10310 - Viðhald gatna og gangstétta 5.500.000 98.500.000 5,58%
10770 - Strætisvagnaskýli 1.000.000 17.542.000 5,70%
11520 - Vorhreinsun lóða 4.500.000 25.130.000 17,91%
Hagræðing Samþ. áætlun Hlutfall
Fjármála-og stjórnsýslusvið 6.000.000 861.092.110 0,7%
21400 - Bæjarskrifstofa 2.000.000 847.351.626 0,24%
21450 - Stafræn þróun 1.000.000 25.000.000 4,00%
21600 - Starfsmannakostnaður 2.000.000 49.700.000 4,02%
21850 - Ýmis útgjöld 1.000.000 23.500.000 4,26%
Bæjarstjórn samþykkir tillögu að útfærslu á hagræðingarkröfu sviða samkvæmt fjárhagsáætlun 2023.
Málsnúmer 2301333
22
Samþykkt um breytingu á stjórn Garðabæjar vegna barnaverndarþjónustu - Fyrri umræða.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði tillögu að breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022 ásamt viðauka III um fullnaðarafgreiðslur mála hjá barnaverndarþjónustu Garðabæjar.
„Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu að breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar ásamt viðauka III til síðari umræðu í bæjarstjórn.“