Beint í efni

Tillaga til staðfestingar á samþykkt um hækkun álagningarhlutfalls útsvars vegna fjármögnunar þjónustu við fatlað fólk.

Málsnúmer 2212234

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

1. (916). fundur

„Bæjarstjórn staðfestir tillögu frá fundi bæjarstjórnar frá 29. desember sl. um að álagningarhlutfall útsvars á tekjur manna á árinu 2023 hækki um 0,22% eða úr 13,70% í 13,92% ,sbr. XXVII kafli laga nr. 129/2022 um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.“

Breyting á álagningarhlutfalli útsvars felur ekki í sér auknar álögur á íbúa þar sem tekjuskattur ríkisins lækkar um samsvarandi hlutfall í báðum skattþrepum.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

19. (915). fundur

Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu að samþykkt sem fylgdi fundarboði.

„Samband íslenskra sveitarfélaga og ríkið undirrituðu þann 16. desember 2022 samning um breytingu á fjármögnun lögbundinnar þjónustu við fatlað fólk. Sama dag voru samþykkt lög á Alþingi um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 þar sem hámarksútsvar samkvæmt 1. mgr. 23. gr. laganna er hækkað um 0.22% eða úr 14,52% í 14,74%.
Samkvæmt samkomulaginu er gert ráð fyrir að samhliða hækkun á álagningu útsvars sveitarfélaga um 0,22% komi til lækkunar á tekjuskatti ríkisins um samsvarandi hlutfall í báðum skattþrepum.
Á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var 18. nóvember 2022 var samþykkt að álagningarhlutfall útsvars verði 13,70% á tekjur manna á árinu 2023 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24. gr. laganna. Ákvörðun bæjarstjórnar var tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu með bréfi, dags. 7. desember 2022.
Bæjarstjórn samþykkir, með vísan til heimildar í ofangreindum lögum sem samþykkt hafa verið á Alþingi, að álagningarhlutfall útsvars á tekjur manna á árinu 2023 hækki um 0,22% eða úr 13,70% í 13,92.
Ákvörðun bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu eigi síðar en 30. desember 2022.
Hafi lög samþykkt á Alþingi um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga ekki verið birt í Stjórnartíðindum þegar tillaga þessi er samþykkt á fundi bæjarstjórnar 29. desember 2022 mun bæjarstjórn samþykkja hana að nýju þegar lögin hafa verið staðfest með birtingu í A - deild Stjórnartíðinda.“

Almar lagði fram eftirfarandi bókun sem allir bæjarfulltrúar standa að.

„Bæjarstjórn Garðabæjar áréttar að hækkun útsvars í Garðabæ um 0,22% felur ekki í sér auknar álögur á íbúa, enda mun tekjuskattur einstaklinga af ríkisins hálfu lækka um samsvarandi hlutfall í báðum skattþrepum. Almennt er sama breyting gerð á útsvarsprósentu annarra sveitarfélaga. Eftir breytingu verður útsvar í Garðabæ 13,92% samanborið við 14,74% lögbundið hámarksútsvar og stendur munurinn þarna á milli óbreyttur.
Bæjarstjórn Garðabæjar fagnar því að framlög úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga til málaflokks fatlaðs fólks aukist vegna þessarar ráðstöfunar. Mikilvægt er þó að árétta að enn vantar mikið upp á að málaflokkurinn teljist að fullu fjármagnaður af hálfu ríkisins.“

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu.

Bæjarráð Garðabæjar

03

46. (2053). fundur

Lagt fram samkomulag ríkisins og sveitarfélaganna sem felur í sér breytingu á fjármögnun lögbundinnar þjónustu við fatlað fólk. Í samkomulaginu er gert ráð fyrir breytingum á lögum um tekjustofna sveitarfélaga er varðar hækkun á hámarksálagningu útsvars um 0,22% og lækkun tekjuskatts um samsvarandi hlutfall í báðum skattþrepum. Breyting gildir fyrir árið 2023 og er sveitarfélögum heimilt ákvarða álagningarhlutfall útsvar þess árs til og með 30. desember 2022 og skal það tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu eigi síðar en þann sama dag.

Bæjarráð vísar ákvörðun um breytingu á álagningu útsvars til bæjarstjórnar.