46. (2053). fundur
46. (2053). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
20.12.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - varamaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2211061
01
Smáraflöt 20 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Rafblikki, kt. 460112-1920, leyfi fyrir breytingum á viðbyggingu við einbýlishúsið að Smáraflöt 20.
Málsnúmer 2201317
02
Opnun tilboða í framkvæmdir við gatnagerð í Þorraholti.
Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við gatnagerð í Þorraholti.
Óskatak ehf. kr. 362.251.375
Grafa og grjót ehf. kr. 372.525.591
Loftorka Reykjavík kr. 393.700.000
D. ING ? verk ehf. kr. 337.771.500
Stéttafélagið ehf. kr. 392.382.300
Snókur verktakar ehf. kr. 342.277.029
Kostnaðaráætlun kr. 396.630.200
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda D-ING - verk ehf.. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2212180
03
Tilkynning frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun varðandi breytingu á húsaleigulögum, dags. 12.12.22.
Lögð fram til kynningar.
Málsnúmer 2212188
04
Bréf innviðaráðuneytis og mennta- og barnamálaráðuneytis varðandi breytingar á barnaverndarlögum, dags. 13.12.22.
Lagt fram og vísað til bæjarstjóra.
Málsnúmer 2210263
05
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi stofnun áfangastaðastofu höfuðborgarsvæðisins, dags. 14.12.22.
Bæjarráð vísar samningi um stofnun áfangastaðastofu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2211475
06
Umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi grænbók um sveitarstjórnarmál. dags. 12.12.22.
Lögð fram.
Málsnúmer 2212234
07
Samkomulag ríkisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi fjármögnun þjónustu við fatlað fólk og hækkun útsvarsálagningar, dags. 16.12.22.
Lagt fram samkomulag ríkisins og sveitarfélaganna sem felur í sér breytingu á fjármögnun lögbundinnar þjónustu við fatlað fólk. Í samkomulaginu er gert ráð fyrir breytingum á lögum um tekjustofna sveitarfélaga er varðar hækkun á hámarksálagningu útsvars um 0,22% og lækkun tekjuskatts um samsvarandi hlutfall í báðum skattþrepum. Breyting gildir fyrir árið 2023 og er sveitarfélögum heimilt ákvarða álagningarhlutfall útsvar þess árs til og með 30. desember 2022 og skal það tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu eigi síðar en þann sama dag.
Bæjarráð vísar ákvörðun um breytingu á álagningu útsvars til bæjarstjórnar.
Málsnúmer 2211118
08
Umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi áform um breytingar á lagaumhverfi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Lögð fram.
Málsnúmer 2212232
09
Tilkynning frá Þjóðskjalasafni Íslands varðandi drög að reglum um varðveislu og eyðingu á skjölum úr fjárhagsbókhaldi, dags. 07.12.22.
Lögð fram.
Málsnúmer 2212242
10
Reglur um hvatapeninga 2023.
Bæjarráð samþykkir reglur um hvatapeninga árið 2023. Samkvæmt reglunum hækkar greiðsla hvatapeninga úr kr. 50.000 í kr. 55.000.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2205327
11
Móttaka flóttafólks - staða mála.
Á fund bæjarráðs kom Guðrún Jónsdóttir, verkefnastjóri og gerði ásamt sviðstjóra grein fyrir stöðum mála varðandi móttöku flóttafólks. Farið var yfir minnisblað, dags. 16.12.2022, sem vistað hefur verið í fundargátt bæjarráðs.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2212136
12
Aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á húsnæði Flataskóla og Hofsstaðaskóla.
Sviðsstjóri umhverfissviðs upplýsti að í undirbúningi er að gera samning um leigu á fimm lausum kennslustofum fyrir Hofsstaðaskóla sem verða staðsettar á bílastæði skólans. Stefnt er að því að skólastarf geti hafist í stofunum í byrjun næsta árs. Í Flataskóla er í undirbúningi að gera heildarúttekt á húsnæði skólans og fyrirhugað er að fara í viðgerðir á skilgreindum stöðum vegna rakaskemmda.
Bréf til forráðamanna í Flataskóla og Hofsstaðaskóla var sent í gær og þar kemur fram að sett hefur verið upp upplýsingasíða á vef Garðabæjar vegna aðgerða sem verður farið í varðandi viðgerðir á húsnæði skólanna. Reglulega verða settar inn upplýsingar um stöðu mála hverju sinni.
Málsnúmer 2211021
13
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna kæru á ákvörðun bæjarráðs Garðabæjar að veita leyfi fyrir byggingu leikskóla að Holtsvegi 20.
Í úrskurðarorði kemur fram að felld er úr gildi ákvörðun bæjarráðs Garðabæjar frá 15. febrúar 2022 um að samþykkja leyfi til að byggja sex deilda leikskóla að Holtsvegi 20.