Hönnun - Útboð - Þorraholt
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
1. (916). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð í Þorraholti. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.“ (Mál nr. 2201317)
Bæjarráð Garðabæjar
02
3. (2056). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð í Þorraholti. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
1. fundur
Lögð fram umsókn umhverfissviðs um framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð við Þorraholt.
Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerðinni í samræmi við framlögð gögn sbr.13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
04
46. (2053). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við gatnagerð í Þorraholti.
Óskatak ehf. kr. 362.251.375
Grafa og grjót ehf. kr. 372.525.591
Loftorka Reykjavík kr. 393.700.000
D. ING ? verk ehf. kr. 337.771.500
Stéttafélagið ehf. kr. 392.382.300
Snókur verktakar ehf. kr. 342.277.029
Kostnaðaráætlun kr. 396.630.200
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda D-ING - verk ehf.. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.