3. (2056). fundur
3. (2056). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
17.01.2023
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - varamaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2206112
01
Fjárhagsáætlun 2023 - útfærsla hagræðingarkröfu sviða.
Bæjarstjóri og sviðstjórar gerðu grein fyrir tillögu um útfærslu á hagræðingarkröfu sviða að fjárhæð kr. 150.000.000 sem skiptist á eftirfarandi hátt.
Fjölskyldusvið kr. 23.000.000
Fræðslu- og menningarsvið kr. 104.000.000
Umhverfissvið kr. 17.000.000
Fjármála- og stjórnsýslusvið kr. 6.000.000
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 2209503
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingar á deiliskipulagi Vetrarmýrar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar.
Í tillögunni kemur eftirfarandi fram.
Byggingarreitur kjallara að Vetrarbraut 2-4 er stækkaður.
Krafa um inndregna byggingarreiti breytist til aðlögunar á landhalla.
Hluti efstu hæðar fjölbýlishúsa í Vetrarmýri geta náð út að úthlið byggingar á nokkrum stöðum þó svo að hún sé inndregin.
Svalir í fjölbýlishúsum í Vetrarmýri mega fara 1 metra út fyrir byggingarreit í stað 0,6 m.
Uppgefnir fermetrar í stærðartöflum fjölbýlishúsa í Vetrarmýri eiga eingöngu við A-rými skv. skráningartöflu.
Í greinargerð deiliskipulags Vetrarmýrar verði að ákvæði í kafla 2.6.4. um bílastæði að miðað sé við birta stærð íbúðar ofanjarðar eins og hún er skráð í skráningartöflu.
Málsnúmer 2209645
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um stækkun lóðar að Súlunesi 26.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna beiðni lóðareiganda um stækkun lóðarinnar við útgáfu á byggingarleyfi vegna stækkunar einbýlishússins að Súlunesi 26. Um er að ræða opið svæði sem eðlilegt er að verði áfram óbyggt m.a. með tilliti til nálægðar við Hafnarfjarðarveg.
Málsnúmer 2009650
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að auglýsingu um fólkvang í Urriðakotshrauni.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að friðlýsingu Urriðakotshrauns. Umhverfisstofnun hefur annast undirbúning að gerð tillögunnar í samstarfi við Garðabæ og Styrktar- og líknarsjóð Oddfellowa. Þá hefur við gerð tillögunnar verið haft samráð við Skógræktarfélag Reykjavíkur.
Tillaga að friðlýsingu svæðisins verður auglýst opinberlega í þrjá mánuði og öllum gefinn kostur á gera athugasemdir við framlagða tillögu. Deiliskipulag fyrir svæðið er unnið samhliða undirbúningi friðlýsingar.
Umhverfisnefnd Garðabæjar samþykkti tillöguna á fundi þann 11. janúar 2023.
Málsnúmer 2212201
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi frávik frá skipulagi við útgáfu á byggingarleyfi fjölbýlishúss að Vörðugötu 2.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að um sé að ræða stækkum byggingarreits bílakjallara neðanjarðar í fjölbýlishúsinu að Vörðugötu 2 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 2201317
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð í Þorraholti.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð í Þorraholti. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.
Málsnúmer 2209581
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Miðskóga vegna lóðarinnar við Miðskóga 17.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Miðskóga í tilefni umsóknar um viðbyggingu við núverandi einbýlishús við Miðskóga 17. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum og íbúum að Miðskógum nr. 9, 11, 15, og 19.
Málsnúmer 2207039
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar um leyfi fyrir útisvæði rekstraraðila á Garðatorgi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar sem gerir ráð fyrir útisvæði veitingastaða og verslana við Garðatorg. Tillagan var grenndarkynnt og barst athugasemd frá Húsfélaginu að Garðatorgi 6.
Tekið er tilliti til athugasemdar og eftirfarandi ákvæði bætt við tillöguna.
"Opnunartími útisvæða verslana og veitingastaða við Garðatorg 4 og 6 verði ekki lengri en til kl. 21 á kvöldin og allri starfsemi og frágangi á útisvæði verði lokið eigi síðar en kl. 22 á kvöldin. Gerð verði krafa um að verslanir og veitingastaðir sem nýta sér útisvæði, sjái um að þrífa viðkomandi svæði eftir notkun hverju sinni og halda því snyrtilegu.“
Samþykkt tillaga um deiliskipulagsbreytingu skal send Skipulagsstofnun og auglýsing birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Málsnúmer 2211068
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna lóðarinnar við Þorraholt 1.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts varðandi lóðina við Þorraholt 1, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, Breytingin felst í að falla frá kröfu um eitt stæði í bílakjallara fyrir tveggja herbergja íbúðir og mæta bílastæða þörf þeirra utandyra.
Skipulagsnefnd samþykkir samkvæmt í heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda/lóðarhafa.
Málsnúmer 2203294
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi kynningu á tillögu um breytingu á aðalskipulagi Kópavogs fyrir Vatnsendahvarf/Vatnsendahæð.
Lögð fram.
Málsnúmer 2301223
11
Tilkynning frá Úrvinnslusjóði varðandi gjaldskrá fyrir greiðslur til sveitarfélaga vegna sérstakrar söfnunar samkvæmt lögum um meðhöndlun úrgangs, dags. 11.01.23.
Lögð fram.
Málsnúmer 2212136
12
Aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.
Lagt fram minnisblað um stöðu heildarúttektar á húsnæði Flataskóla og yfirlit um ástandsskýrslur og endurbætur undanfarin ár.
Einnig er lögð fram ályktun starfsfólks Flataskóla varðandi stöðu húsnæðismála skólans.
Á fund bæjarráðs kom Alma Dagbjört Ívarsdóttir, verkfræðingur hjá Mannviti og fór hún yfir næstu skref varðandi niðurstöður úr heildarúttekt sem unnið er að á húsnæði Flataskóla
Jafnframt gerði Alma Dagbjört grein fyrir stöðu mála varðandi úttekt og aðgerðir í Hofsstaðaskóla. Upplýst var að skólastarf er hafið í færanlegum kennslustofum við Hofsstaðskóla. Í undirbúningi er að hefja viðgerðir vegna skemmda og umbætur á húsnæði skólans.
Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir helstu atriði í minnisblaði er varða endurbætur á húsnæði Flataskóla undanfarin ár.
Bæjarstjóri greindi frá að haldnir hafa verið tveir fundir með starfsmönnum skólans þar sem farið var yfir stöðu úttektar og aðgerðir samkvæmt verkferli sem kynnt hefur verið en allar upplýsingar eru aðgengilegar á vefsíðu bæjarins.