Súlunes 26 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
1. (916). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna beiðni lóðareiganda um stækkun lóðarinnar við útgáfu á byggingarleyfi vegna stækkunar einbýlishússins að Súlunesi 26. Um er að ræða opið svæði sem eðlilegt er að verði áfram óbyggt m.a. með tilliti til nálægðar við Hafnarfjarðarveg.“ (Mál nr. 2209645)
Bæjarráð Garðabæjar
02
3. (2056). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna beiðni lóðareiganda um stækkun lóðarinnar við útgáfu á byggingarleyfi vegna stækkunar einbýlishússins að Súlunesi 26. Um er að ræða opið svæði sem eðlilegt er að verði áfram óbyggt m.a. með tilliti til nálægðar við Hafnarfjarðarveg.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
1. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir því að lóðarmörk Súluness 26 færist til norðaustur um 10 metra út á óbyggt svæði milli götunnar Súluness og Hafnarfjarðarvegar. Lóð myndi því stækka sem því nemur.
Svæðið hefur haft stöðu sem óbyggt svæði allt frá því að svæðið var deiliskipulagt fyrir meira en hálfri öld. Þar var m.a. tekið tillit til fornminja sem eru greinilegar á svæðinu, svokölluð Þorgarðsdys og gömul þjóðbraut sem mótar fyrir á svæðinu.
Skipulagsnefnd mælir ekki með því að gengið verði á þetta opna svæði.