1. fundur
1. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
12.01.2023
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - varamaður
- Hlynur Elías Bæringsson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 8.Arnarnesháls/Arnarland
Lögð fram skipulagslýsing fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulag Arnarlands ásamt umsögnum sem borist hafa í kynningu hennar.
Jóhanna Helgadóttir skipulagsráðgjafi gerði grein fyrir þeirri vinnu sem hefur farið fram við mótun tillögunnar síðan að lýsing var kynnt. Lilja Karlsdóttir samgönguverkfræðingur fór yfir forsendur samgangna og þau verkefni sem staðið er frammi fyrir.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til áframhaldandi mótunar og leggur áherslu á gott samráð og samvinnu við Kópavogsbæ.
02
Arnarland. Deiliskipulag
Lögð fram skipulagslýsing fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulag Arnarlands ásamt umsögnum sem borist hafa í kynningu hennar.
Jóhanna Helgadóttir skipulagsráðgjafi gerði grein fyrir þeirri vinnu sem hefur farið fram við mótun tillögunnar síðan að lýsing var kynnt. Lilja Karlsdóttir samgönguverkfræðingur fór yfir forsendur samgangna og þau verkefni sem staðið er frammi fyrir.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til áframhaldandi mótunar og leggur áherslu á gott samráð og samvinnu við Kópavogsbæ.
03
Áform um friðlýsingu Urriðakotshrauns
Lögð fram tillaga að skilmálum fólkvangsins í Urriðakotshrauni ásamt uppdrætti sem sýnir afmörkun fólkvangsins. Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að tillagan verði auglýst á vegum Umhverfisstofnunar í samræmi við lög um náttúruvernd og samhliða tillögum að deiliskipulagi Útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum og fólkvangs í Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum ásamt tillögum að breytingum á deiliskipulagi Heiðmerkur og Sandahlíðar og Urriðaholts austurhluta. Vinna við undirbúning friðlýsingar hófst áður en að ákvæði í núgildandi náttúruverndarlögum um lengd auglýsinga var breytt og því skal auglýsingartími friðlýsingar vera 3 mánuðir en ekki 6 vikur. Þær skipulagsáætlanir sem búið er að samþykkja að verði auglýstar samhliða áformum um friðlýsingu Urriðakotshrauns sem fólkvangs hafa sama auglýsingartíma.
04
Miðskógar 17 viðbygging - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu fyrir viðbyggingu með léttu yfirbragði sem er lægri en íbúðarhúsið.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Miðskóga í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal íbúum og eigendum við Miðskóga nr.9,11,15 og 19.
05
Lækjarás 5 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um hvort veitt verði rekstrarleyfi fyrir útleigu húsnæðisins til gistingar ferðarmanna á ársgrundvelli.
Svar: Skipulagsnefnd tekur neikvætt í fyrirspurnina þar sem engar forsendur eru til staðar í skipulagi, hvorki deiliskipulagi né aðalskipulagi, til þess að heimila rekstrarleyfi fyrir gistingu ferðamanna á ársgrundvelli á svæðum sem eru skilgreind sem íbúðarbyggð.
06
Vífilsstaðavegur og Bæjarbraut deiliskipulag, breyting vegna útisvæða veitingarstaða og verslana við Garðatorg.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vífilsstaðavegar sem gerir ráð fyrir útisvæðum fyrir veitingastaði við húsvegg lóðanna Garðatorg 4 og 6 meðfram Vífilsstaðavegi ásamt athugasemd sem barst í grenndarkynningu.
Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi ákvæði verði bætt við tillöguna:
"Opnunartími útisvæða verslana og veitingastaða við Garðatorg 4 og 6 verði ekki lengri en til kl. 21 á kvöldin og allri starfsemi og frágangi á útisvæði verði lokið eigi síðar en kl. 22 á kvöldin. Gerð verði krafa um að verslanir og veitingastaðir sem nýta sér útisvæði, sjái um að þrífa viðkomandi svæði eftir notkun hverju sinni og halda því snyrtilegu.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri breytingu sem óverulega breytingu deiliskipulags Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar í samræmi við 41.grein Skipulagslaga nr.123/2010.
07
Súlunes 26 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir því að lóðarmörk Súluness 26 færist til norðaustur um 10 metra út á óbyggt svæði milli götunnar Súluness og Hafnarfjarðarvegar. Lóð myndi því stækka sem því nemur.
Svæðið hefur haft stöðu sem óbyggt svæði allt frá því að svæðið var deiliskipulagt fyrir meira en hálfri öld. Þar var m.a. tekið tillit til fornminja sem eru greinilegar á svæðinu, svokölluð Þorgarðsdys og gömul þjóðbraut sem mótar fyrir á svæðinu.
Skipulagsnefnd mælir ekki með því að gengið verði á þetta opna svæði.
08
Blikanes 27 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um stækkun og breytingar á einbýlishúsinu að Blikanesi 27 og hvort þær kalli á deiliskipulagsbreytingar.
Tillögu vísað til umsagnar deiliskipulagsráðgjafa við endurskoðun deiliskipulags Arnarness.
09
Miðhraun 18 breyting - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um viðbyggingu við þann enda hússins að Miðhrauni 18 sem snýr að götunni og kallar á stækkun byggingarreits.
Fyrirspurn vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
10
Þorraholt 1 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa fjölbýlishúsalóðarinnar Þorraholt 1 ásamt umbeðinni umsögn deiliskipulagshöfundar, Batterísins ehf.
Í kafla 4.2.5 í skilmálum samþykkts skipulags fyrir Hnoðraholt norður er krafa um að a.m.k. eitt bílastæði á íbúð sé í bílakjallara. Fyrirspurn þessi snýst um hvort bregða megi út af þessari kröfu fyrir 2. herbergja íbúðir sem eru að hámarki 9 talsins. Þessi stæði yrðu leyst út í götu innan lóðar hússins. Við götu er nú þegar reiknað með ca. 25-30 stæðum.
Hugmyndir þróunaraðila er að bjóða uppá fjölbreyttar íbúðagerðir, allt frá minni 2 herbergja íbúðum hugsaðar fyrir ungt fólk upp í stærri íbúðir fyrir fjölskyldur og eldra fólk.
Umsögn deiliskipulagshöfundar er jákvæð hvað þetta atriði varðar.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts Norður í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að umsóknin varðar ekki hagsmuni annarra en lóðarhafa og sveitarfélagsins.
11
Hönnun - Útboð - Þorraholt
Lögð fram umsókn umhverfissviðs um framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð við Þorraholt.
Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerðinni í samræmi við framlögð gögn sbr.13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
12
Hnoðraholt N, óveruleg dsk br
Lagt fram minnisblað deiliskipulagshöfundar um mögulegar breytingar á ákvæðum deiliskipulagsins.
Vísað til frekari skoðunar hjá Umhverfissviði.
13
Vetrarmýri, dsk br
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar.
Tillagan gerir ráð fyrir:
-að byggingarreitur kjallara að Vetrarbraut 2-4 er stækkaður um 3,5 m til austurs og að hámarks byggingarmagn í kjallara stækki út 3.363 m2 í 3.490 m2 eða sem nemur breikkun.
-að krafa um inndregna byggingarreiti breytist til aðlögunar á landhalla.
-að hluti efstu hæðar fjölbýlishúsa í Vetrarmýri geti náð út að úthlið byggingar á nokkrum stöðum þó svo að hún sé inndregin.
-að svalir í fjölbýlishúsum í Vetrarmýri geti náð 1 m út fyrir byggingarreit í stað 0,6 m.
-að uppgefnir fermetrar í stærðartöflum fjölbýlishúsa í Vetrarmýri eigi eingöngu við A-rými skv skráningartöflu.
-að áréttað verði í greinargerð deiliskipulags Vetrarmýrar að ákvæði í kafla 2.6.4. um bílastæði sé miðað við birta stærð íbúðar ofanjarðar eins og hún er skráð í skráningartöflu.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41.gr.Skipulagslaga nr.1123/2010.
14
Dýjagata 7 - breyting á deiliskipulagi - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsnefnd tekur undir umsögnina.
15
Vörðugata 2 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um byggingarreit bílakjallara ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað útfærslu byggingarreits bílakjallara varðar eins og fram kemur í fyrirspurn.
16
Dreyravellir 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir þaki og risi sem er hærra en deiliskipulag heimilar.
Tillögu er vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar ásamt þeirri hugmynd hvort hugsanlegt væri að breyta deiliskipulagi hesthúsahverfisins hvað þetta varðar.
17
Aðalskipulagsbreyting - Hamraneslína 1 og 2
Erindi vísað til frekari skoðunar hjá Umhverfissviði.
18
Vatnsendahvarf. Forkynning á nýju deiliskipulagi í Kópavogi.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugsemd við tillöguna en áskilur sér rétt til að gera athugasemd á síðari stigum skipulagsferlis.
19
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 12
19.1 - 2107442 - Fífumýri 15 - Tilkynning um framkvæmd
Lögð fram byggingarleyfisumsókn vegna breytinga í risi íbúðarhússins sem gerir ráð fyrir því að svalir í suðurgafli verði lokaðar af.
Ekkert deiliskipulag telst í gildi á svæðinu.
Skipulagsstjóri vísar byggingarleyfisumsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Fífumýri 12, 13 og 14 sem og Krókamýri 16 og 18 og Ljósamýri 1.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
19.2 - 2211185 - Smáraflöt 3 stækkun - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Flata sem gerir ráð fyrir óverulegri stækkun byggingarreits götumegin húss.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal lóðarhöfum og íbúum að Smáraflöt nr.1, 2,4,5,6, 49 og 51.
Undirrituð yfirlýsing allra sem grenndarkynning nær til liggur fyrir og þar kemur fram að þeir geri ekki athugasemd við breytinguna. Tillagan er því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Flata sbr.2.mgr.43.gr.og 44.gr.SKipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
19.3 - 2201132 - Víðilundur 8, breyting á deiliskipulagi Lunda
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu breytinga sem gerir ráð fyrir viðbyggingu við íbúðarhúsið. Viðbygging er innan deiliskipulags, byggður flötur er minni en 35% af flatarmáli lóðar og því í samræmi við deiliskipulag. Arinn fer lítillega út fyrir byggingarreit.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað arinn sem fer lítlilega út fyrir byggingarreit varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
19.4 - 2211236 - Kinnargata 36 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
19.5 - 2211156 - Deiliskipulagsbreyting Kjóavellir
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu deiliskipulags Kjóavalla sem gerir ráð fyrir lóð fyrir dælustöð hitaveitu neðan við lóðina Æsuvellir 11.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Kjóavalla og vísar til grenndarkynningar í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Grenndarkynna skal Kópavogsbæ, stjórn Hestamannafélagsins Spretts og lóðarhafa við Tinnuvelli og Sunnuvelli að neðanverðu.
20
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 13
20.1 - 2211062 - Hólmatún 57 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi þar sem m.a. er gert ráð fyrir viðbyggingu við vesturgafl fyrir um 5 m2 anddyri. Andyri fer lítillega útfyrir byggingarreit.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað viðbyggingu utan byggingarreits varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022..
20.10 - 2211236 - Kinnargata 36 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar um fyrirspurnina. Skipulagsstjóri tekur undir niðurstöðu umsagnar og óska skal eftir samþykki eigenda aðliggjandi lóðar.
20.11 - 2206276 - Stætóskýli við Bæjarbraut
Lögð fram umsókn umhverfissviðs Garðabæjar um framkvæmdaleyfi fyrir uppsetningu strætóskýlis og göngustígs í gegnum hljóðmön við Bæjarbraut á móts við Austurakra og Maltakur.
Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis sem er í samræmi við deiliskipulagsbreytingu sem hefur tekið gildi.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til greinar 2.h. í viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
20.2 - 2212216 - Grásteinsmýri - hækkun gólfkvóta -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um hækkun gólfkóta úr 5,70 mys í 5,90.
Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
20.3 - 2212107 - Þóroddarkot 2 - stækkun - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um hugsanlega stækkun íbúðarhúss að Þóroddarkoti 2. Stærð lóðar er 866 m2.
Ekkert deiliskipulag er í gildi en hverfið hefur byggst samkvæmi skipulagi sem ekki hlaut staðfestingu.
Flatarmál núverandi húss húss 164,7 m2, sem þýðir að nýtingarhlutfall er 0,19.
Byggingarreitur 13mx20m eða 260 m2. Heimilt er að stækka hús innan byggingarreits. Ef byggingarreitur er fullbyggður nemur það nýtingarhlutfalli 0,3 sem er í samræmi við byggðamynstur í Kotum.
Þar sem að ekkert deiliskipulag er í gildi verður að vísa öllum byggingarleyfisumsóknum í grenndarkynningu skv. 44.gr.Skipulags-og byggingarlaga nr.123/2010.
20.4 - 2210134 - Sunnuflöt 21 - Stækkun byggingarreits - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar.
Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
20.5 - 2210283 - Víðilundur 9- stækkun á byggingareit - fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Lunda að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar.
Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
20.6 - 2206452 - Gilsbúð 5 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits á baklóð vegna viðbyggingar. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0.45 í 0.55.
Engar athugasemdir bárust og gerir skipulagsstjóri því ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis fyrir stækkun sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
20.7 - 2212012 - Holtsbúð 33 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingar á einbýlishúsi. Samkvæmt deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar er hámarks vegghæð húss 3,5 m og mænis 5,5. Útveggir húss samkvæmt teikningu eru allt að 3,74 m.
Sækja skal um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir hækkaðir vegghæð.
Skipulagsstjóri metur þá breytingu sem óverulega breytingu deiliskipulags Ábúðar og Holtsbúðar í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Holtsbúð 31, 35, 14,16 og 18.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
20.8 - 2212201 - Vörðugata 2 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu byggingarinnar. Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
20.9 - 2211157 - Vörðugata 2 - breyting á númeri í Vörðugata 1
Lögð fram tillaga að breytingu á húsnúmeri að Vörðugötu 2. Lagt er til að húsnúmerið verði nr. 1 enda eru engin önnur hús í götunni.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að húsnúmeri verði breytt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
21
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 1
21.1 - 2209212 - Hagaflöt 1 - Deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Flata sem nær til lóðarinnar Hagaflöt 1. Tillagan gerir ráð fyrir viðbyggingu á baklóð sem nær út fyrir byggingarreit og heildarlengd húss á lóðarmörkum er lengri en 7,5 metrar.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Hagaflöt nr. 2 og 3, Garðaflöt nr. 35 og 37 sem og Móaflöt nr.11,13 og 15.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
21.2 - 2301057 - Holtsbúð 33 - Deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ásbúðar og Holtsbúðar sem gerir ráð fyrir að hæð útveggja sé 24 cm hærri en deiliskipulag heimilar. (grein 2.2.2. Hæðarkótar í greinargerð deiliskipulags)
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Ásbúðar og Holtsbúðar í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Holtsbúð 14, 16,18,31 og 35.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
21.3 - 2301108 - Skólabraut 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lögð fram umsókn Umhverfissviðs um breytingu á deiliskipulagi Íþrótta-og skólasvæðis við Skólabraut sem hlaut staðfestingu árið 2002.
Í deiliskipulagsbreytingunni felst að eftirfarandi ákvæðum er bætt við greinargerð deiliskipulagsins:
Heimilt er að nýta bílastæði norðan við Hofstaðaskóla sem stæði fyrir 5 bráðabirgðaskólastofur á meðan unnið er að endurbótum skólabyggingar sem eru nauðsynlegar vegna mygluvandamála sem bregðast þarf við.
Heimilt er að útbúa 25 bílastæði á lóð íþróttasvæðis með aðkomu frá bílastæði við Skólabraut á meðan að bílastæði við Hofstaðaskóla eru nýtt undir bráðabirgðaskólastofur.
Skipulagsstjóri samþykkir deiliskipulagsbreytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Íþrótta-og skólasvæðis við Skólabraut í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Með vísan í 2.ml.3.mgr.44.gr. ofangreindra laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.