Vífilsstaðavegur og Bæjarbraut deiliskipulag, breyting vegna útisvæða veitingarstaða og verslana við Garðatorg.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
1. (916). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar sem gerir ráð fyrir útisvæði veitingastaða og verslana við Garðatorg. Tillagan var grenndarkynnt og barst athugasemd frá Húsfélaginu að Garðatorgi 6.
Tekið er tilliti til athugasemdar og eftirfarandi ákvæði bætt við tillöguna.
"Opnunartími útisvæða verslana og veitingastaða við Garðatorg 4 og 6 verði ekki lengri en til kl. 21 á kvöldin og allri starfsemi og frágangi á útisvæði verði lokið eigi síðar en kl. 22 á kvöldin. Gerð verði krafa um að verslanir og veitingastaðir sem nýta sér útisvæði, sjái um að þrífa viðkomandi svæði eftir notkun hverju sinni og halda því snyrtilegu.“
Samþykkt tillaga um deiliskipulagsbreytingu skal send Skipulagsstofnun og auglýsing birt í B-deild Stjórnartíðinda.“ (Mál nr. 2207039)
Bæjarráð Garðabæjar
02
3. (2056). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar sem gerir ráð fyrir útisvæði veitingastaða og verslana við Garðatorg. Tillagan var grenndarkynnt og barst athugasemd frá Húsfélaginu að Garðatorgi 6.
Tekið er tilliti til athugasemdar og eftirfarandi ákvæði bætt við tillöguna.
"Opnunartími útisvæða verslana og veitingastaða við Garðatorg 4 og 6 verði ekki lengri en til kl. 21 á kvöldin og allri starfsemi og frágangi á útisvæði verði lokið eigi síðar en kl. 22 á kvöldin. Gerð verði krafa um að verslanir og veitingastaðir sem nýta sér útisvæði, sjái um að þrífa viðkomandi svæði eftir notkun hverju sinni og halda því snyrtilegu.“
Samþykkt tillaga um deiliskipulagsbreytingu skal send Skipulagsstofnun og auglýsing birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
1. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vífilsstaðavegar sem gerir ráð fyrir útisvæðum fyrir veitingastaði við húsvegg lóðanna Garðatorg 4 og 6 meðfram Vífilsstaðavegi ásamt athugasemd sem barst í grenndarkynningu.
Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi ákvæði verði bætt við tillöguna:
"Opnunartími útisvæða verslana og veitingastaða við Garðatorg 4 og 6 verði ekki lengri en til kl. 21 á kvöldin og allri starfsemi og frágangi á útisvæði verði lokið eigi síðar en kl. 22 á kvöldin. Gerð verði krafa um að verslanir og veitingastaðir sem nýta sér útisvæði, sjái um að þrífa viðkomandi svæði eftir notkun hverju sinni og halda því snyrtilegu.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri breytingu sem óverulega breytingu deiliskipulags Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar í samræmi við 41.grein Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
11. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vífilsstaðavegar sem gerir ráð fyrir útisvæðum veitingarstaða og verslana við Garðatorg ásamt athugasemd sem barst við grenndarkynningu.
Eftirfarandi ákvæði hefur verið bætt við tillöguna til að koma til móts við innsenda athugasemd:
Opnunartími útisvæða verslana og veitingastaða við Garðatorg 6 og 4 verði ekki lengri en til
kl. 21 á kvöldin og allri starfsemi og frágangi á svæðinu verði lokið eigi síðar en kl. 22 á kvöldin.
Þetta á t.d. við um að gengið verði frá stólum og borðum og þeim raðað upp á viðhlítandi hátt.
Gerð verði krafa um að verslanir og veitingastaðir sem nýta sér útisvæði, sjái um að þrífa viðkomandi
svæði eftir notkun hverju sinni og halda því snyrtilegu gagnvart íbúum húsanna.
Sett verði fram krafa um að eigendur verslana og veitingastaða sjái til þess að starfsemi þeirra á
útisvæði við húsið trufli á engan hátt friðhelgi og einkalíf íbúanna á heimilum sínum.
Vísað til skoðunar hjá Umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
10. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Vífilsstaðavegar sem gerir ráð fyrir reitum fyrir útistarfsemi veitingastaða að lokinni grenndarkynningu.
Ein athugasemd hefur borist.
Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
10. (906). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar varðandi lóðir við Garðatorg nr. 4 og 6, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir heimild fyrir verslanir og veitingastaði að nýta sér útisvæði. Tillagan skal grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga.“ (Mál nr. 2207039)
Bæjarráð Garðabæjar
07
28. (2035). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar varðandi lóðir við Garðatorg nr. 4 og 6, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir heimild fyrir verslanir og veitingastaði að nýta sér útisvæði. Tillagan skal grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
7. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar sem gerir ráð fyrir útisvæðum veitingastaða sunnan húsa við Garðatorg 4 og 6 meðfram Vífilsstaðavegi. Rekstraraðilar veitingastaða og kaffihúsa í umræddum húsum hafa óskað eftir því að hafa heimild til þess að útbúa útisvæði þar sem hægt verður að bera fram veitingar á sólríkum dögum. Nú þegar hafa stéttir utan lóðar við hús númer 6 verið notaðar í þessum tilgangi. Tillögunni er ætlað að skapa stoð í deiliskipulagi fyrir rekstri útisvæða veitingastaða og verslana.
Tillagan er í samræmi við markmið deiliskipulags Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar og deiliskipulags miðbæjar Garðabæjar sem eru m.a. að styrkja ímynd Garðatorgs sem miðbæjar Garðabæjar.
Í greinargerð á uppdrætti deiliskipulags Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar bætist við grein:
2.6 Útisvæði við verslunar-og þjónustuhús
Meðfram suðurhlið húsanna Garðatorg 4 og Garðatorg 6 er heimilt að útbúa útisvæði fyrir veitingahús og verslanir utan lóðar í allt að 2 m fjarlægð frá húsvegg enda liggi fyrir leyfi sýslumanns til útiveitinga og landeiganda (Garðabæjar). Stjórn viðkomandi húsfélags skal gefinn kostur á veita umsögn um veitingu leyfis og er landeiganda heimilt að setja skilyrði fyrir starfseminni. Yfirborð verði hellulagt og heimilt verður að gróðursetja lágreistan runnagróður milli gangstéttar og útisvæðis. Heimilt er að gera skjólveggi í kringum útisvæði sem að hámarki geta verið 1 m háir og skulu þeir hannaðir af arkitekt viðkomandi húss.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum, íbúum og húsfélögum að Garðatorgi 4 og Garðatorgi 6.